Vikan - 31.03.1977, Síða 4
Litir páskanna eru gu/ur og grænn,
og bióm, egg og guiir kjúklingar eru
nauðsyn/egir hiutir, þegar við
skreytum fyrir páskana. Og svo/ítið
páskaskraut finnst okkur tiiheyra —
sérstak/ega, þegar við getum búið
það tii sjáif án mikiiiar fyrirhafnar.
Páskaskreytingar
EGGJABLÓM
Á
PÁSKABORÐINU
Páskaborðið getum við skreytt
með skemmtilegri „blómaskreyt-
ingu," sem er búin til á einfaldan
hátt. Blómknapparnireru venjuleg
egg, sem eru soðin í vatni ásamt
laukhýði til að fá þennan fína
rauðbrúna lit. Blómstöngullinn er
gulmáluð spýta, og blómakrans-
inn er búinn til úr stálþræði og
gulum og hvítum silkipappír.
Blómin eru búin til þannig:
Klippið silkipappírinn í 10 sm
breiðar ræmur, eins og sýnt er á
teikningu 1. Sléttið úr ræmunum,
og límið saman tvær og tvær,
þannig að þið fáið tvöfalda lengd.
Leggið tvær þessara samanlímdu
ræma ofan á hvor aðra, eina gula
og eina hvíta, brjótið saman
tvöfalt og klippið 2 sm raufar
upp í, eins og sýnt er á teikningu
2, með 1 sm millibili. Vefjið
pappírsræmunum utan um ca. 40
sm langan stálþráð, og festið þær
með límbandi á hvorum enda.
Beygið stálþráðinn, þannig að
hann verði egglaga, og festið
hann á spýtuna, ca. 2sm neðan við
endann (notið töng). Vefjið svo-
litlum álpappír efst á spýtuna, og
stingið henni inn í harðsoðna
eggið. Við höfum valið vorlegan
dúk og munnþurrkur úr græn- og
hvít köflóttu bómullarefni í stíl við
gulan borðbúnaðinn og þessi
skemmtilegu „eggjablóm".
Munnþurrkurnar og dúkurinn
eru prýdd með grænu skábandi,
eins og sjá má á mynd. Eggja-
hettunum megum við heldur ekki
gleyma, en það eru litlar hænur,
sem sitja á eggjunum. Klippið
t T -T
i i i
i i i
1 1 ■
í
hænurnar út fríhendis, mátið
stærðina við eggjabikar með eggi
í. Saumið höfuðið, stélið og
vængina á röngunni, snúið rétt-
unni út og fyllið með svolítilli
bómull innan í. Saumið aftur opið
á vængjunum (4 stk. á hverja
hænu, 2 gul og 2 köflótt) í
höndunum. Strauið flísilín á búk-
hlutana, saumið saman á röng-
unni, takið höfuðið og stélið með í
sauminn. Saumið litinn fald að
neðan og handsaumið vængina á.
legan „vönd," getið þið búið til
nokkur einlit og nokkur tvílit egg
með því að stinga hvorum enda
eggsins í sitt hvort „litarbaðið."
Rákirnar renna niður eftir egginu,
þegar þið hellið vaxinu yfir, og
doppurnar eru settar á með
teskeið, eða með logandi kerti.
FALLEG
BORÐSKREYTING
EGG
Á STILKUM
Þegar páskaeggin eru húðuð
með vaxi, fá þau alveg nýtt útlit,
og þegar þau eru sett á drykkjarrör
í vasa eða skál, verða þau að
skemmtilegu borðskrauti. Við
skreytinguna getið þið notað kerti,
sem eru brædd og vaxið kælt
aðeins, áður en þið dýfið eggjun-
um, sem búið er að blása innan úr,
ofan í. Til þess að fá fjölbreyti-
Eggjabikar með litlum periu-
blómum og gulum fjöðrum er
páskaskraut, sem gaman er að
hafa við hvern disk, og það tekur
ekki nema augnablik að búa það
til. Blómin eru búin til úr litlum búti
af pípuhreinsara með kúlu efst.
Þessu er síðan stungið í lítinn
leirköggul (eða oasis) ásamt gulu
fjöðrunum. Stærri vöndurinn er
búinn til úr blómapinnum og
lökkuðum eplum. Gulu fjaðrirnar
eru límdar á stilkana.
BLÓM
ÚR GJAFABÖNDUM
Þennan falleg blómvönd getið
þið búið til sjálf. í 6 blóm þarf 2
rúllur af gulu og 1 rúllu af grænu
allbreiðu gjafabandi úr stífa glans-
andi efninu, 9 granna blómapinna
eða stálþræði og 12 þurrkuð
blómahöfuð. Hvert blóm er búið
til úr 9 12 sm löngum böndum,
sem eru heft saman eða fest
saman með títuprjóni. í miðjuna
eru límd blómahöfuð eða nokkrar
perlur. Stönglinum er stungið inn í
mitt blómið og límt fast. Blöðin
eru búin til úr 12 sm löngum
ræmum, sem eru klipptar í þunnar
flísar og límdar við stönglana.
Blómin eru fest í leir.
PÁSKAHÆNA
Þessi snotra páskahæna er búin
til úr 2 rúllum af stífu glansandi
gjafabandi, 2 pappaspjöldum og
lítilli skál á fæti. Milli spjaldanna
eru límdir bútar af bandi, sem
mynda kamb og gogg, sjá
fyrirmynd. Augun eru teiknuð eftir
10 kr. peningi og límd á. Klippið
rauf í pappann og festið hann á
skálarbrúnina. Vængirnir og stél-
ið, sem hvorttveggja er búið til úr
15 sm löngu bandi, er límt á með
límbandi.
4VIKAN 13. TBL.