Vikan - 31.03.1977, Blaðsíða 31
o
UtÉæk Verölaunakrossgátur fyrir börn og fullorðna — Getraunin 1X2 — Skák- þraut — Bridgeþraut — Finndu 6
Heilabrot villur — Myndagáta. Skemmtun, fróðleikur og vinnings- von fyrir alla fjölskylduna.
1 X 2
UMSJÓN: SIGURJÓN JÓHANNSSON
1 Annar þingmanna Samtakanna telur að þau eigi að leggjast niður. Hvað heitir þingmaöurinn. 1 Magnús Torfi Ólafsson X Jón Ármann Héðinsson 2 Karvel Pálmason.
2 Í Angóla eru hermenn frá fjarlægu landi þeirra erinda að þerjast gegn heimsvaldastefnu. Hvaðan eru hermennirnir. 1 Kúbu, X Rhódesíu 2 írlandi.
3 Meðan einvígið Spassky-Hort stóð sem hæst birtist óvænt á hðtel Loftleiðum þekkt manneskja. Hver var hér á ferð. 1 Fischer X Brigitte Bardot 2 Muhamed Ali
4 Sprenging varð í bát í Þorlákshöfn á dögunum og skipstjórinn slapp naumlega frá borði. Hvað heitir báturinn. 1 Goöi X Fróöi 2 Boði
5 Leikfélag Reykjavíkur sýnir nú leikrit eftir Halldór Laxness sem heitir. 1 Straumrof X Straumkast 2 Straumur
6 Hreinn Halldórsson kúluvarpari kom, sá og sigraði á EM á Spáni. Hvaða atvinnu stundar Hreinn. 1 Leigubílstjóri X Strætisvagnastjóri 2 Verkstjóri
7 Dr. Max Euwe vill fá Friðrik Ólafsson sem eftirmann sinn hjá Alþjóða skáksambandinu FIDE. Euwe er frá 1 Svíþjóð X Belglu 2 Hollandi.
8 i íslensku kvikmyndinni Morðsaga leikur aðalhlutverk stúlka sem ekki hefur leikið áður og fær hún góða dóma. Hvað heitir hún. 1 Þóra X Dóra 2 Nóra
9 Málsháttur hljóðar svo: ,,Hver dagur hefur sína " 1 Kosti X Mæðu 2 Lesti
10 Kanaríeyjar eru undir stjórn 1 Spánverja X Portúgala 2 Frakka
11 Sami maður hefur verið formaður Verkamannafélagsins Hlífar ( Hafnarfirði í 35 ár og lætur senn af störfum. Hann heitir. 1 Guðmundur J. Guðmundsson X Hermann Guðmundsson 2 Guðjón Jónsson.
12 Sverrir Hermannsson þingmaður var kosinn af 1 Vestfirðingum X Norðlendingum 2 Austfirðingum
13 Al Oerter nefnist þekktur íþróttamaður. Hann er 1 Sleggjukastari X Kúluvarpari 2 Kringlukastari.
Þegar þið hafið leyst getraunina, þá færið úrslitin í sérstakan reit á 4. síðu, ef þið viljið prófa að vinna til verðlauna.
13. TBL. VIKAN31