Vikan - 31.03.1977, Side 11
sé gömul? Með fyrirfram þökk
fyrir birtinguna,
Ein á móti áfengi.
Það er nú það. Nú þekki ég
vininn ekki og get því ekki dæmt
um, hvort hann drekkur af því
hann þolir þig ekki. Þó tel ég nú
líklegra, að því sé öfugt farið, að
hann sé eitthvaö ,,skotinn" í þér
og þurfi þess vegna að fá sér
eitthvað styrkjandi til að þora að
tala við þig. Það, að hann segir
ekkert merkilegt þá, styrkir grun
minn enn meira, þ.e.a.s. ef hann
segir eitthvað af viti ódrukkinn,
sem eflaust systir þín og fleiri geta
frætt þig um. Bogmannsstelpa og
krabbastrákur eiga sérstak/ega vel
saman, og samband þeirra getur
varað alla ævi, án þess að þau fái
leið hvort á öðru. Or skriftinni má
lesa vingjarnleika og góða greind.
Ætli þú sért ekki svona 16 ára eða
þar um bil.
LIFANDI EÐUR El?
Minn ágæti Póstur!
Ég hef nú aldrei skrifaö þér fyrr
en nú. En vegna þess hve ég er
voðalega forvitin, mátti ég til með
að skrifa þér, því ég hef heyrt
sagt, að þú vitir allt. Er ekki svo?
Jæja, ég ætla að koma mér að
efninu, áður en þú færð leið á
þessu rövli. — Ég er mikill
aðdáandi Wolfmans Jack (svo þú
vitirbetur, þá er hannfrákl. 11-12
í Kananum). Um daginn heyrði ég
sagt, að hann væri dáinn, og ég
hef tekið eftir því, að hann hefur
spilað „undarlega" gömul lög upp
á síðkastið. Ég held nefnilega, að
þetta séu gamlar upptökur.
Minn alvitri póstmaður! Getur
þú nokkuð verið svo vænn að
hjálpa mér að komast að hinu
sanna? Ég yrði skúffuð, ef ég
missti „úlfinn" úr útvarpinu. Að
lokum: Hvað lestu úr skriftinni?
Hver er happatala og happalitur
tvíburastelpu? Hvernig eiga Ijóns-
strákur og tvíburastelpa saman?
Kærar kveðjur og þakkir,
Aðdáandi.
Shane Coomber, 56 Bonar Street,
West Heidelberg 3081, Victoria,
Australia. Hann er 16 ára og vill
skrifast á við stelpur og stráka á
svipuðum aldri. Áugamál hans eru
frímerkjasöfnun, íþróttir o. fl.
Hann skrifar á ensku.
Gunn Dybvik, 6020 Vegsund, PR.
Alesund, Norge. Hún er 14 ára og
vill skrifast á viö stelpur og stráka.
Áhugamál hennar eru frímerki,
handbolti, lestur bóka og íþróttir.
Wildtrud Schurr, Innstrasse
8.8201 Raubling, Germany. Hún
er 14 ára og vill skrifast á viö
stelpur á svipuðum aldri. Áhuga-
mál hennar eru poppmúsik,
tennis, dans og íþróttir. Hún
skrifar á þýsku og ensku.
Theresa Barbara, 19 stk. Cathrine,
Str. Mqabba, Malta. Hún er 14 ára
og óskar eftir pennavinum á
svipuðum aldri. Áhugamál eru
mörg, og hún svarar öllum
bréfum. Hún skrifar á ensku.
Holly Hudson, 21309 Ibanez Ave.,
Woodland Hills, Cal. 91364, U.S.
A. Holly er 15 ára gömul.
Áhugamál hennar eru sund,
fótbolti, kvikmyndir, popptónlist,
dans o. fl. Hún skrifar á ensku, og
óskar eftir pennavinum, stelpum
og strákum.
Benedikt Sæmundsson, Vega-
mótum, Snæfellsnesi, óskar eftir
pennavinum á aldrinum 9-11 ára.
Sjálfur er hann 9 ára og áhugamál
hans eru íþróttir, skák, módel-
smíði, bækur o.fl. Mynd fylgi
fyrsta bréfi.
Sólveig Guðjónsdóttir, Selja-
landsvegi 2, Isafirði, óskar eftir
pennavinumá aldrinum 15-17 ára.
Hún svarar öllum bréfum.
Mrs. Coro/ V. Smith, 2 Fernhurst
Road, Ashford, Middx, TW15
1AH, Englandi, óskar eftir að
skrifast á við konur á íslandi. Hún
er 37 ára gömul, og áhugamál
hennar eru dúkkur, póstkort,
frímerki, bréfaskriftir, handavinna
og að safna merkjum úr flóka eða
öðrum efnum með bæjar/borgar-
nöfnum.
Það er mikið rétt hjá þér, að
Pósturinn veit allt! Þess vegna get
ég g/att þig með því, að vinur vor
Wolfman Jack er eins sprelllifandi
og bæði ég og þú, eða var það að
minnsta kosti sfðast þegar ég
vissi. Þeir eru kannski bara að rifja
upp gamlar endurminningar með
þvi að spi/a /ögin frá gömlu góðu
dögunum, hver veit? Úr skriftinni
/es ég, að þú ert gffur/egur
aðdáandi Wolfmans Jack og hefur
gaman af að hlusta á ,,Kanann. "
Happata/a tvlburastelpu er 5 og
happa/itur grænn. Ljónsstrákur og
tvíburastelpa geta orðið góðir vinir
— en ekkert meira.
Eínn a dag
kemur skapinu í lag
13. TBL. VIKAN 11