Vikan - 31.03.1977, Blaðsíða 44
„Battle of Midway,, í Laugc
Fljótlega mun Laugarásbíó hefja
sýningar á stórmyndinni „Battle
of Midway". í apríl 1942, er
tilkynnt í Hirosima, að sprengjum
hafi verið kastað á Tokyo. Á sama
tíma eru bandaríkjamenn í Pearl
Harbor viðbúnir árás japana,
vegna þess að þeir hafa brotið
japanskar reglur. Inn í allan
viðbúnaðinn fléttast svo líf ein-
stakra persóna, sem gerir mynd-
ina raunverulegri. Á eynni Midway
er öllum vígbúnaði lokið, og menn
bíða átekta. Bandarískar flugvélar
hefja sig til flugs á Midway og
ráðast til móts við japanskar
flugvélar, sem þegar til kemur eru
mun skæðari og vinna í þessari
fyrstu atlögu. Og áfram heldur
orustan...
Bandaríski flotinn aðstoðaði við
gerð myndarinnar, og mörg atriði
voru mynduð um borð í skipum
hans. Einnig var varnardeild
flotans hjálpleg á ýmsan hátt.
Framleiðandi myndarinnar er
Walter Mirisch, en leikstjóri Jack
Smight. Tónlistin er eftir John
Williams. „Battle of Midway" er
ein þessara mynda, sem skarta
fjölmörgum kvikmyndastjörnum,
t.a.m.: Charlton Heston, Henry
Fonda, James Coburn, Glenn
Ford, Hal Holbrook, Toshiro
Mifune, Robert Mitchum, Cliff
Robertson, Robert Wagner og
Kevin Dobson.
Flugvélar eru skotnar niður (
hrönnum, bæði bandarískar og
japanskar. Á sex mínútum sökkva
bandaríkjamenn þremur stórum
skipum japana. Eftir langa og
harða orustu tekst bandaríkja-
mönnum að vinna orustuna.
Seinna í Honolulu hittast nokkrar
af aðalpersónum myndarinnar, og
þar má heyra eina þeirra segja
þessi orð: „Vorum við betri en
japanir... eða bara heppnari?"
Þetta er sennilega spurning, sem
erfitt er að svara, en hvað um það,
ef til vill verða menn einhvers
vísari, ef þeir sjá „Battle of
Midway."
„Live and lct die„ í Tónabíói
James Bond (fíoger Moore) ásamt Medeline Smith.
Loksins fáum við að sjá áttundu
James Bond myndina, en margir
hafa eflaust beðið hennar með
óþreyju. Þetta er reyndar fyrsta
Bond-myndin, sem Roger Moore
fer með aðalhlutverkið í, og
enginn skyldi ætla, að það væri
ekki við hans hæfi. Stráx árið
1962, þegar fyrsta Bond-myndin
var í undirbúningi, var Moore
talinn æskilegur í þetta hlutverk,
en hann gat ekki tekið það að sér,
vegna þess hve önnum kafinn
hann var við að leika Dýrlinginn
víðfræga. Flestir gagnrýnendur
telja, að Moore takist mun betur
að túlka persónu Bonds en fyrir-
rennurum hans, þeim Sean Con-
nery og George Lazenby. Fleming
hefur líka lýst þessari frægu
sögupersónu sinni sem fáguðum
englendingi af góðum ættum og
menntuðum í Harrow eða Eton.
Moore fellur vel að þeirri mynd.
í „Live and Let Die" lendir
Bond í höggi við illgjarnan,
dularfullan, svartan harðstjóra,
Dr. Kananga að nafni, en hann
ætlar sér að ná völdum í hinum
vestræna heimi og nýtur til þess
aðstoðar hinnar fögru spákonu,
Solitaire.
Myndin er framleidd af Harry
Seltzman og Albert R. Broccoli.
Leikstjóri er Guy Hamilton, en
hann stjórnaði á sínum tíma þriðju
Bond-myndinni „Goldfinger".
Handritið skrifaði Tom Manki-
ewicz, sem einnig hafði hönd í
bagga við gerð handrits „Dia-
monds Are Forever". Titillag
myndarinnar er samiö og flutt af
Paul og Lindu McCartney, en
önnur tónlist er eftir George
Martin.
Með helstu hlutverk í myndinni
fara:
James Bond Roger Moore
Doctor Kananga Yaphet Kotto
Solitaire Jane Seymor
Rosie Gloria Hendry
Þetta er sennilega sú Bond-
mynd, sem hvað mestum vin-
sældum hefur átt að fagna, enda
mikið í hana lagt. Hún er afar
spennandi, og ekki er Roger
Moore í vandræðum með að
„sjarmera" kvenfólkið upp úr
skónum fremur en svo oft áður.