Vikan


Vikan - 31.03.1977, Síða 46

Vikan - 31.03.1977, Síða 46
Um galdrastafi ognáttúru þeirra ,, Fjandinn meö fúlai fastí Jdsinn blási” Halldór Stefénsson tók saman. Margt hefur verið skrifað um galdrastafi og galdramenn fyrr á tímum og enn meira skrafað. Menn, sem vissu lengra nefi sínu, voru oft orðaðir við galdra og allskyns fjölkynngi. Var það að vonum að þeirrar tíðar haetti, þar sem tröll bjuggu í fjöllum og álfar og huldufólk í klettum og hólum, enda eru huldufólkssögur næstum óþrjótandi. Upp- fræðslu almennings var svo þröngur stakkur skorinn, að ekki var á færi annarra en lærdómsmanna aðfást við hin æðri vísindi. Þó gluggaði alþýðan mjög í galdur, enda fyrirmyndir ekki af lakara taginu úr fornum sögum, og margur hefur eflaust öfundað Sæmund prest í Odda fyrir kunnáttu sína í meðferð púka og snilli gagnvart kölska sjálfum. Yfirleitt eiga slíkar þjóðsögur sam- merkt í því, að hið illa verður að lúta í l^egra haldi fyrir ráðkænsku mannsins í bland við guðsorð. Hinar fornu galdrasögur höfðu á sér allt annan blæ en síðari tíma sagnir. Einatt voru þær blandnar kímni og frekar meinlausar, sýnilega sprottnar af aðdáun á visku og lærdómi. Þetta átti þó eftir að breytast til hins verra á miðöldum, og á 17. öld var svo komið, að nærri stappaði múgsefjun, og var það ekkert séríslenskt fyrirbrigði. Hér verður þó eingöngu að því vikið. Fábreytni og fátækt var ríkjandi, drepsóttir, eldgos og harðindi gerðu lífið nær gbærilegt, 46VIKAN 13. TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.