Vikan - 31.03.1977, Side 62
Tilvalin fermingargjöf
BRflun
BLÁSIÐ NÝJU
LÍFI í HÁRIÐ!
BRAUN hársnyrtitækin eru ein þau fullkomnustu á
markaðinum — og hönnunin sérlega glæsileg.
ATHYGLISVERÐAST
er það nýjasta frá BRAUN - hársnyrtisettið PLUS 2, en
þá er þætt við venjulegt sett úðara og lokkajárni. Þetta
þýðirað sjálfsögðu, að þérgetið ætíð þlásið nýju lífi í hárið
— fyrirvaralaust.
GOTT VERÐ
Þetta glæsilega hársnyrtisett er á góðu verði — kostar
kr. 11.950 (mars 1977).
FLEIRI GERÐIR
Seljum ennfremur BRAUN krullujárn, hárþuf rkurog hár-
burstasett sem eru nokkuð ódýrari en PLUS 2.
KAUPMENN KAUPFÉLÖG:
Vinsamlegast gerið pantanir á BRAUN vörum
sem fyrst.
Verslunin
IMi
(heildsala smásala)
Skólavörðustíg 1 - 3, Bergstaðastræti 7
vodka a.m.k. tvisvar sinnum. Það
þýddi ekkert annað.
Sjónvarpið var búið, og ég setti
„Eine kleine Nachtmusik” á
fóninn. Alltaf er Mozart
jafnyndislegur. Ég hugsaði til
þeirra tima, þegar fyrirfólkið leið
um skrautbúna sali í glæsilegum
menúett. 0, hvað ég vildi hafa lifað
á þeim timum, þegar menn gáfu
eitthvað fyrir elegans í dansinum og
dansmúsíkinni, en ekki þetta grófa,
háværa og holdlega, sem allir vilja
hafa núna.
I huganum var ég horfin aftur í
tímann og sá fyrir mér hóp af
prúðbúnu fólki, karlmenn með
hárkollur, í hnébuxum, silkisokkum
og háhæluðum skóm, konur með
ótrúlega grannt mitti í krinólínum,
með háa, íburðarmikla hárgreiðslu.
En skyndilega hrökk ég við.
Ég sá Gráa jarlinn ljóslifandi inni
í stofunni hjá mér.
Hann hallaðist upp að eldhús-
dyrastafnum. Hann var í sömu gráu
fötunum, og ég sá silfurgrátt,
mjúkt, liðað hárið og skeggið
greinilega. Aðeins augnabrúnirnar
voru dökkar. Hann var samt ekki
aldurslegur, ekki meira en svona sjö
úrum eldri en ég, svona um sextugt.
Svipurinn var hýr og mildur.
Hann var reglulega fallegur, ég held
ég hafi aldrei séð fríðari mann.
Hann hélt á gamaldags tebolla,
hvítum með gylltu flúri og stóru,
gylltu handarhaldi. Og hallaði sér
upp að eldhúsdyrastafnum mínum.
En það var alls ekki dyrakarmur-
inn minn. Karmarnir eru frekar
mjóir og hvítmálaðir, en þeim
megin, sem hann stóð, var karmur-
inn breiður, úr dökkum viði. Ég sá
greinilega glampa á viðaræðarnar,
sem hrísluðust um hann.
Grái jarlinn brosti svo hlýlega til
min og sagði lágri og dálitið hásri
röddu: ,,Þú kemst til mín, ef þú
stígur skrefið.”
Undrandi stóð ég á fætur og gekk
til hans. En þegar mér var litið inn i
eldhúsið mitt, eða það sem ég hélt
að væri eldhúsið mitt, brá mér svo
óskaplega, að því verður ekki með
orðum lýst. Þarna var nefnilega
ekki lengur lítið eldhús með
gamaldags, hvítmálaðri eldhúsinn-
réttingu, heldur stór, ríkmannlegur
salur.
Á gólfinu var glansandi parkett
með fallegu og margbrotnu tigla-
mynstri, á veggjunum grænt dam-
askveggfóður, og upp við þá stóðu
skrautlegir, gylltir og útflúraðir
stólar með rauðu plussáklæði,
gylltir kertastjakar voru á veggj-
unum með logandi kertum, og ljósin
endurspegluðust í kristalsstrend-
ingum, sem voru til skrauts á
stjökunum. Á miðju gólfi stóð álagt
borð með knipplingadúk, gylltu og
Framleitt og selt aðeins hjá okkur.
Framleiðum og seljum
allskonar bólstruð húsgögn.
Áklæði í miklu úrvali.
'BéUtmrinn
Hverfisgötu 7(j Sími 15102
62VIKAN 13. TBL.