Vikan - 31.03.1977, Qupperneq 70
Eldhus
Yikunnar
UMSJÖN:
DRÖFN
FARESTVEIT
Marinerað kjöt
í páskamatinn
Svínakjöt
HVITLAUKSMARINERAÐ NAUTAKJÖT
11 /4— 11 /2 kg nautakjöt, t.d. innanlærisvöðvi.
/ marineringu:
2 púrrulaukar, 1 biti sellerí, 2 gulrætur, 2
hvítlauksbátar, 3/4 dl olía, 1 msk söxuð
steinselja, 1 tsk timian, 1 lárviðarlauf, 1 tsk.
gróftmöluð piparkorn, 1/2tsk salt, 1 fl. hvítvín
eða pilsner, 2 dl edik, 2 msk maísolía.
Sósan: Steikarsoð og marinering, 1 dl rjómi,
soyasósa, mjöl.
Sneiðið lauk, gulrót, sellerí og saxið
hvítlaukinn. Steikið allt í olíunni. Blandið
saman við kryddi, steinselju, víni og ediki.
Látið sjóða undir loki í 1/2 klst. Látið kólna.
Hellið 2 msk af olíunni í marineringuna, þegar
hún er orðin köld, og blandið öllu saman.
Kjötið sett í og lok yfir og látið standa á köldum
stað 2 sólarhringa. Snúið kjötinu nokkrum
sinnum. Kjötið sett á ofngrind, setjið kjötmæli
í. Setjið 1/2 I af marineringunni í steikarskúff-
una. Steikið við 175°, þar til kjötmælirinn sýnir
70°. Skolið skúfxuna að innan með dálitlu af
vatni. Jafniðsósunaogkryddið. Beriðfram með
bökuðum kartöflum, glóðarsteiktum tómöt-
um, grænum baunum og grænu salati.
KRYDDMARINERAÐ SVlNAKJÖT
1 1/4—1 1/2 kg svínakjöt, salt og pipar.
Tii marineringar:
1 msk af hvoru: söxuðum lauk, steinse.ju
selleríi, 2 tsk basilkum, 1 msk hvít piparkorn,
fl. hvítvín, safi úr 1 sítrónu, 1 dl olía.
Sósan: Steikarsoð, sigtuð marinering, 1 d
rjómi, soyasósa, mjöl.
Nuddið kjötið með salti og pipar. Blandii
saman grænmetinu og setjið kjötið á. Blandil
saman víni, sítrónusafa, olíu og kryddi ol
hellið yfir kjötið. Setjið lok yfir og látið standa í
köldum stað í 2 sólarhringa. Látið renna a
kjötinu og setjið kjötið á rist í ofnrnum. Stingi*
kjötmæli í kjötið og setjið ca. 1/2 I af mariper
ingunni í skúffuna. Látið steikjast við 175°, ái
þess að ausa yfir kjötið. Kjötmælirinn sýni 85°
(ca. 2 klst.) Búið til sósu með því að skol
innan úr ofnskúffunni og nota af marinering
unni. Kryddið eftir smekk. Berið fram me'
soðnum kartöflum, sósu, rauðkáli og sýrð'
eplamauki.
70VIKAN 13. TBL.