Vikan


Vikan - 12.09.2000, Blaðsíða 29

Vikan - 12.09.2000, Blaðsíða 29
opið fram eftir á föstudags- kvöldi. Ég brunaði aftur upp á herbergi og skipaði vinkonu minni að koma með mér þangað og hjálpa mér að velja eitthvað sæmilegt til að fara í Ég uæri nú meira fíflið að láta hafa mig út í hetta asnalega ferðalag með henni. Ég hefðí ekkert er- indi átt harna norður og nú kæmi hetta tíl með að kosta míg stórfé. um kvöldið. í leigubílnum á leið í verslunina gerði ég ekki annað en skamma stöllu mína. Hún hlyti að vera alvar- lega nærsýn að sjá ekki betur en þetta hvaða föt hún var að taka til og að ég væri nú meira fíflið að láta hafa mig út í þetta asnalega ferðalag með henni. Ég hefði ekkert erindi átt þarna norður og nú kæmi þetta til með að kosta mig stórfé. Hún sat að mestu þegj- andi og reyndi að láta skapillskuna í mér fara inn um annað eyrað og út um hitt. Kurteis heiðursmaður kemur til sögunnar í Hagkaupi var eitthvað til af kjólum á góðu verði sem mér þóttu hæfa mínum aldri og sem pössuðu mér. Ég keypti einn sem ég var alveg þokkalega ánægð með og nærföt til að geta nú látið eft- ir mér að skipta um helgina. Við rukum aftur heim á hótelið, hentumst í sturtu og skiptum um föt. Við vorum alltof seinar á veitingastaðinn og þjóninn tjáði okkur að borðinu okkar hefði verið ráðstafað annað þegar við mættum ekki. Ég leit mann- drápsaugum á vinkonu mína og sneri snúðug við til að strunsa út um dyrnar. Þetta var nú til að kóróna allt. Kvöldmaturinn góði sem ég var búin að hlakka til að fá og keypt mér nýj an kj ól af því tilefni yrði sennilega ekki annað en hamborgari sem mér yrði réttur út um einhverja lúguna í bæn- um. Þá heyrði ég allt í einu kurteislega karl- mannsrödd spyrja hvort við gætum hugs- að okkur að setjast við borð hjá sér og vini sín- um. Ég leit við og sá að ungur maður sem sat við borð rétt innan við dyrnar hafði staðið upp og nú bauð hann okkur að setj ast hj á sér og vini sínum. Hann sagði þá tvo eina á ferð og þar sem þetta væri fjögurra manna borð væri sjálf- sagt að við fengjum að tylla okkur hjá þeim. Við vinkonurnar settumst hjá þessum ungu mönnum og það fór mjög vel á með mér og þeim sem hafði boð- ið okkur sæti. Sá sem stóð á fætur til að bjóða okkur sæti var mjög vinalegur við mig og þegar hann dáðist að því hversu fínn kjóllinn minn væri kímdi vin- kona mín í barminn. Seinna um kvöldið fór- um við í Sjallann og dönsuðum saman allt kvöldið. Þessir strákar voru að sunnan eins og við en voru í vinnuferð og gistu á öðru hóteli. Þeir áttu bókað flug heim aftur um leið og við og það var ákveðið að við myndum hittast aftur um leið og vinnu- degi þeirra lyki daginn eftir. Við eyddum saman laugardagskvöldinu og á sunnudeginum vorum við samferða í flugvélinni heim. Ég og þessi strákur, sem við skulum kalla Bjarna, urðum góðir vinir í ferðinni. Við héldum sambandi og fyrir tæpu ári fórum við að búa saman. Vinkona mín þreytist aldrei þessa dagana á að minna mig á það að ég hefði margsagt henni í leigubílnum á leið niður í Hagkaup að ég hefði ekki átt að asnast í þessa ferð því norður í land ætti ég ekkert erindi. Erindið reynd- ist heldur merkilegra en tóm skemmtun og mikið skelfing er ég fegin að hún pakkaði vitlausum kjól og að ég var nógu þrjósk til að þeytast enda á milli í Akureyrarbæ til að leita að viðeigandi flík fyrir kvöldverðinn. Lesandi segir Steingerði Steinarsdóttur sögu sína Vilt þú deila sögu þinni með okkur? Er eitthvað sem hefur haft mikil áhrif á þig, jafnvel breytt lífi þínu? Þér er vel- komið að skrifa eða hringja til okkar. Við gætum fyllstu nafnleyndar. Hviniilisf'anj’iA er: Viknn 101 Keykjiník. Netfang: vikan@frodi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.