Æskan - 01.11.1980, Blaðsíða 57
Nýr þjóðhöfðingi
Vigdís Finnbogadóttir er fædd í
Reykjavík 15. apríl 1930. Móðir
hennar er Sigríður Eiríksdóttir
hjúkrunarkona, sem var formaður
Féiags íslenskra hjúkrunar-
kvenna um 36 ára skeið, og býr í
Reykjavík. Faðir Vigdísar var
Finnbogi Rútur Þorvaldsson,
hafnarverkfræðingur og pró-
fessor við Háskóla íslands. Hann
lést fyrir nokkrum árum.
Vigdís Finnbogadóttir lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um í Reykjavík árið 1949. Hún
stundaði nám í frönsku og
frönskum bókmenntum, með
leikbókmenntir sem sérgrein, í
hálft fjórða ár við háskólann í
Grenoble og Sorbonne í París.
Þegar heim kom starfaði hún í 5
ár sem bókavörður og ritstjóri
leikskrár í Þjóðleikhúsinu og
annaðist einnig blaðakynningar
fyrir leikhúsið. Þá stundaði hún
nám við Háskóla íslands í ensku
og enskum bókmenntum, með
leikbókmenntir sem sérgrein, og
hélt áfram námi í frönsku og
frönskum bókmenntum. Einnig
stundaði hún nám í uppeldis- og
kennslufræðum. Um skeið las
hún leiklistarsögu við Háskólann
í Kaupmannahöfn og í Svíþjóð las
hún franska málsögu og tók
áfangapróf í báðum greinum.
Lokapróf í háskólagreinum sín-
um tók Vigdís við Háskóla ís-
lands.
Vigdís Finnbogadóttir hóf aftur
störf í Þjóðleikhúsinu eftir dvöl
erlendis, en stundaði jafnframt
kennslu við Menntaskólann í
Reykjavík árin 1962 til 1968. Þeg-
ar Menntaskólinn við Hamrahlíð
var stofnaður réðst hún þar til
starfa. Á sumrin vann hún í mörg
ár hjá Ferðaskrifstofu ríkisins,
fyrst sem leiðsögumaður, en síð-
an við landkynningu og móttöku
erlendra rithöfunda og blaða-
manna, sem hingað leituðu eftir
efni ígreinar og bækur um l'sland.
Á þeim árum skipulagði hún leið-
sögumannanámskeið Ferðaskrif-
stofu ríkisins, stjórnaði þeim og
annaðist kennslu. Árið 1970 tók
Vigdís ársleyfi frá störfum og
dvaldi í Frakklandi þar sem hún
kynnti sér samskipti og menn-
ingartengsl íslendinga og Frakka
á 19. öld, hinni miklu skútuöld
Frakka á íslandsmiðum.
Síðan 1972 hefur Vigdís starfað
sem leikhússtjóri hjá Leikfélagi
Reykjavíkur í Iðnó, en hafði þegar
á síðasta hausti sagt starfi sínu
lausu frá 1. september s.l. Á
43