Æskan - 01.11.1980, Blaðsíða 51
Kóngsdóttirin í Furðulandi
21. Eftir langa göngu hitti hann loks gamlan
mann, sem bjó ífjalllendi nokkru. Hann réði yfir
flestum dýrum á þessum slóðum og ef hann
blés í horn sitt komu þau. — ,,Ég skal spyrja
dýrin mín,“ sagði hann við Val.
123. ,,Ef þú kemur til bróður míns, sem býr 100
mílur héðan, gæti verió að hann gæti sagt þér
þetta, því að hann ræður yfir flestum fuglum
loftsins. Einhver þeirra kann að hafa flogið þar
yfir.“
22. Dýrin komu og hlustuðu á spurninguna
meö athygli. ,,Hvar er Furðuland?" en ekkert
þeirra gat svarað henni. Snjór haföi fallið á
þessum slóðum og lánaði gamli maðurinn Val
góð skíði til þess að ganga á.
24. Þegar Valur kom til þessa manns eftir
langa ferö, sneri hann skíðunum við eins og
maður dýranna hafði sagt honum að gera, og
þá runnu þau til baka og hurfu í fjarska. Valur
sneri sér að fugla-manninum og sagði: ,,Getur
þú frætt mig á því hvar Furðuland er?“
Skemmtileg myndasaga í litum