Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1920, Síða 41
26. ár
1920
Almattak
WINNIPEG
Georges Benjamín Clemenceau
forsœtisráðherra Frakka.
Fátækt, framgirni, föóurlandsást, æfintýralöng-
un og takmarkalaust kapp, meg;v kallast aSalþættirnir
í lífi Clemenceaus. Æfisaga þessa frakkneska mikil-
mennis líkist mest skáldsögu, svo auSug er hún af ó-
venjulegum atburSum. MeS afrekum sínum hefir
hann aflaS sér viðurnefna, sem lýsa vel skapferli hans
og starfi, svo sem ,,tígrisdýriS“, ,,stjórnabrjótur“,
,,sigurfaSir“, „frelsari Frakklands" o. fl.
Clemenceau fæddist 28. september 1841 í Mouil-
leron en-Parades í Vendee, sem var þá hiS síSasta
vígi konungssinna á Frakklandi. ForfeSur hans voru
meSal hinna svæsnustu mótstöSumanna konungs-
yaldsins. FaSir hans, sem var læknir, var ákafur
lýSveldismaSur, og afi hans í föSurætt hafSi einnig
staSiS framarlega í baráttunni fyrir afnámi konungs-
valdsins.