Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1915, Blaðsíða 63
,,Stjörnu-bænin“.
»Ó, þú meistari meistaranna í hinu hvíla bræðra-
lagi, þú herra trúmálanna, Kristur, — heyr vora
bæn, og blessa þú jörðina enn þá einu sinni með
heilagri návist þinni!
Hjálpa þú kynslóð vorri, sem er í nauðum
stödd!
Mæl þú það friðarins orð, sem eitt megnar að
láta þjóðirnar leggja niður vopnin. Mæl þú það
bræðrafélagsskaparins orð, sem kcnl getur and-
stæðum þjóðfélagsflokkum og stéttum að skilja
það, að allir eru hlutir úr einni sameiginlegri
heild.
Kom þú til vor í guðdómlegri fyllingu allsher-
jar-kærleika þíns, — kom til vor í kral’ti dýrðar
þinnar, og frelsa þú heiminn, sem ákallar þig í
eftirvæntingu, þú meistarinn engla og manna!
Amen«.