Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1915, Blaðsíða 4
Undir yfirstjórn Krishnamurti er félaginu stjórnað af alls-
herjar-ritara þess, E. A. Wodehouse professor í London, en
einkaritari höfuðsmannsins er G. S. Arundale rektor, báðir
ritsnillingar miklir og ógætismenn.
í hverju landi stjórna félaginu fulltrúar (National Repre-
sentanls) og ritarar hverri félagsdeild. Félagið hefir náð
óvenjulega skjótri útbreiðslu um viða veröld, og eru nú
deildir þess í þessum löndum utan Evrópu: Afríku, Norður-
Ameríku, Cosla Rica, Cul)a, Mexikó, Porto Rico, Argentínu,
lioliviu, Brasilíu, Chile, Paraguay, Peru, Yenezuela, Birma,
Indíalöndum, Ástralíu, Nýja Sjálandi.
En í Norðurálfunni eru fulltrúar og félagsdeildir í þessum
löndum: Austurriki, Belgíu, Búlgaríu, Danmörku, Englandi,
Finnlandi, Frakklandi, Hollandi, íslandi, Ilalíu, Noregi,
Rússlandi, Skotlandi, Spáni, Sviss, Sviþjóð, Ungverjalandi,
þýzkalandi.
Félagið hefir engin lög og engin árstillög. Inngöngueyrir
hjer á landi er 2 krónur, og l'á félngar fyrir það merki fé-
lagsins, sem er fimm-álnmð sljarna úr silfri. Hver meðlimur
fær félagsskirteini. Þess er vænsl, að félagar beri að jafnaði
félagsmerkið.
Nú mun spurt verða: Ilvaða félag er »Stjarnan í austri«,
og hver eru skilyrði fyrir upptöku í félagið?
„Stjarnan í auslri“ er alþjóða-bræðrafélag allra þeirra
manna, án tillits til kynllokks, kynferðis, þjóðfélags, trúar-
játningar eða mannfélagsstöðu, er vænla þess og telja nauð-
syn bera til, að áður en langt um liði muni koma fram i
heiminum mikill andlegur leiðlogi, gæddur um fram aðra
Ijósi og kral'ti guðdómsins, — guð íklæddur holdi og hlóði,
— frelsari allra manna, allra þjóða, — meistari meistaranna,
— Kristur.
4