Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1932, Blaðsíða 92
378
Bækur.
ÐUNN
manr.eðlinu frá instu rótum. En í manneðlinu búa mögu-
leikar til margra hluta, og það eru hinar ytri aðstæður,
sem skera úr um pað, liverir þessara möguleika ná vexti
og þroska og hverir verða að poka til hliðar.
Frægð og vinsældir pessarar hókar byggjast alveg vafa-
laust á pví fyrst og fremst, að jafnframt því að vera les-
bók um áætlunina miklu, fjallar hún um hin erfiðustu vanda-
mál, sem mennirnir eru að glíina við eins og stendur og
verða að ráða fram úr, ef inenning nútímans á ekki að
líði undir lok. Og þessi höf. er liressandi bjartsýnn og
steikur I trú sinni á möguleikana til lausnar á þessum
vandamálum. Það er óhætt að mæla með bók hans við
unga og gamla — þá, sem eiga andlegri heilbrigði að
fagna og vakandi eru og sjáandi.
1 fcimála að bókinni segir þýðandinn meðal annars þessi
orð, sem vel mega standa sem niðurlagsorð þessarar um-
sagnar:
„Hætt er við, að þeir, sem lesa þessa bók með athygli.
lykist sannfærast um, að annaðhvort hafi eitthvað verið
bogið við þá fræðslu, sem áreiðanlega einu sinni, ef ekki
oftar, hefir verið borin á borð fyrir islenzka blaðalesendur,
að byltingin í Rússlandi hafi ekki verið annað en hégómlegt
upjiátæki 4—5 æfintýramanna, til þess að geta komist þar
í stjórn — og átt náðuga daga! — eða þá, að þeirn hinum
sönni hafi hraparlega mistekist þær ráðagerðir.
Hugsanlegt er, að góðfús lesari þurfi fleira að leiðrétta.
Vera má, að ekki sé alt beinlínis siðspillandi, sem þessir
guðlausu blóðhundar kenna börnum sinum.
Hver veit nema einhverjum finnist, að bolsévíkamir séu
ekki eingöngu niðurrifsmenn.
Og ef til vill er ekki full ástæða til að örvænta svo
geisamlega um framtíð menningarinnar, sem mörgum spök-
um mönnuin hættir við á þessum síðustu og verstu tímum,
fyrr en séð er, hvort hinum rússnesku bræðrum vorum mis-
tekst að skapa það þjóðfélag, er í fyrsta skifti sé heiðar-
legum mönnum samboðið og þeir berjast nú fyrir af
svo miklum eldmóði.“