Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1929, Síða 46
368
Upton Sinclair.
IÐUNN
ani nýtt gyllingarnafn, t. d. kallar Mr. Hoover það »hið
ameríska einstaklingseðli«, hvað útlegst á máli félags-
hyggjunnar eitthvað þvílíkt sem »einstaklingurinn gegn
einstaklingnum, en sá þjóíurinn beztur, sem lagnastur er
að seilast niður í vasa þinn«. Annars eru heimspeki-
vangaveltur Mr. Hoovers sízt gáfulegri en Fords, enda
er bókmentaþekking hans mest fengin úr morðreyfurum
og leynilögreglusögum, hvað meðhaldsblöð hans töldu
honum líka til ágætis í fyrra, sem sönnun þess að þar
væri maður, sem hægt væri að trúa fyrir forsetatign í
Bandaríkjunum, — þar væri enginn »draumamaður«
(dreamer) á ferðum, en svo nefna amerískir prangarar
mentaða menn, og einkum þá, sem aðhyllast tímabærar
skoðanir á stjórnmálum. ]afnaðareinstaklingurinn (the
average) meðal amerískra kaupahéðna felur í sér sam-
þjappaða í eitt þá eiginleika, sem eru fóstraðir af félags-
lögmáli, þar sem matið á einstaklingnum byggist ekki
framar á manninum sjálfum sem sálrænni veru, heldur
á buddu hans og bankabók. Einkennin eru sem sagt
græðgi, hégómagirni, skinmentun og annað sýndarágæti
(behaviorism o. s. frv.), félagslegt afskiftaleysi, viðskifta-
óskammfeilni, sleikjuháttur (snobishness), ærslafýsn, trúar-
hræsni, mertahatur, ruddaskapur, þjóðrembingur, yfir-
gangssemi, hernaðaroftrú og alríkisstefna. JOO°lo Ame-
rícanism er hið algengasta heildarnafn einkenna þessara,
kallað á slæmri íslenzku »amerískur hundraðprócentismi*.
en gæti á betri íslenzku heitið vestheimsk alheimska.
Mentun sú, sem veitt er í hinum dýru og reisulegU
amerísku skólum, er öll miðuð við það að gera nem-
endurna að sjálfvirkum stykkjum í myllu verzlunarvalds-
ins. Menn verða að hugsa í samræmi við hagsmuni þess,
ella bönnuð skólavist. Aðalheimskunarstarfsemi skólanna