Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1956, Qupperneq 24

Kirkjuritið - 01.01.1956, Qupperneq 24
PljSTLAR Hefir heimurinn snúið haki við kirkju og kristindómi? Þetta virðist allútbreidd skoðun hér á landi. Hún er dregin af umhugsun um slæma kirkjusókn a. m. k. víðast hvar, og vax- andi fákunnáttu í kristnum fræðum. En ég minni aðeins á tvö atriði, sem vert er að hugsa um í þessu sambandi. í fyrsta lagi hefir kristindómurinn ekki náð nema til minni hluta mannkynsins enn í dag. Og þrátt fyrir allt er hann í stöðugri sókn út á við. Kristniboð er starfandi í þremur álfum, þar sem önnur trúarbrögð eiga margfalt fleiri áhangendur. En svo virð- ist sem kristindómurinn muni þegar hafa haft þar mikil áhrif og eiga þar mikla framtíð. Hinir miklu þjóðleiðtogar Indverja Gandhi og Nehru eru meira og minna kristilega mótaðir, dæmi þess hvernig súrdeigið sýrir allt brauðið. Kristinna áhrifa gætir meir og meir í Japan, að því er kunnugir telja. Er þó næsta ólík- Iegt, að hernám og herseta vestrænna þjóða hafi mikið bætt fyr- ir honum að vissu leyti. Ekki er heldur annað að heyra, en að kirkjuleg starfsemi eigi sér enn stað í Kína og fari fremur vax- andi en minnkandi, þótt stjórnarvöldin muni ekki hlaða neitt undir hana. Mörgum er kunnugt um kristniboðsstarfið í Afríku, bæði sak- ir heimsfrægrar starfsemi Alberts Schweitzers, sem nú er ný- komin merk bók um á íslenzku eftir próf. Sigurbjörn Einarsson, — og eins af bréfum Felix Ólafssonar kristniboða, sem birzt hafa í Bjarma. Við lestur þessara frásagna er ekki ólíklegt, að einhverj- um verði Ijósara en ella, að kristindómurinn á erindi inn í heim-

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.