Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1956, Qupperneq 48

Kirkjuritið - 01.01.1956, Qupperneq 48
38 KIRKJURITIÐ aði fremur en lífið sjálft. Hann uppfyllti þá kröfu, sem menn eru alltaf að gera og ekki sízt á vorum dögum: Sýndu mér trú þína. Fáir menn hafa orðið mér ógleymanlegri, og ég á ekki mörg- um meira að þakka. Þess vegna helgaði ég honum þessa fyrstu smágrein um kristna áhrifamenn. G. Á. --------------------|BÆKUR ------------------------------------ j——— »——■—“—4 Kenn þeim ungu Svo nefnist námskerfi í kristnumfræðum til fenningarundirbúnings ásamt ágripi af barnaspurningafræði, og hefir Bjöm prófessor Magnússon tekið saman. Barnaspurningafræðin er í 10 köflum, sem hér segir: I. Nafn og tilgangur þessarar fræðigreinar. II. Sögulegt yfirlit. III. Takmark barnaspuminga. IV. Aðferðir við barnaspurningar. V. Ytra fyrirkomulag spuminga. VI. Bækur og kennslutæki. VII. Samband við heimilin. VIII. Kynni af börnunum. IX. Samvinna við skólana. X. Á undan og eftir. Þetta ágrip er fyrst og fremst ætlað guðfræðinemum, sem taka þátt í barnaspumingum, en jafnframt á það erindi til allra, sem kenna bömum kristin fræði. Það er ljóst og handhægt og laust með öllu við óþarfar mála- lengingar. Margt er ágætlega athugað og bendingar þarfar og góðar og hnitmiðaðar við aðstæður hér á landi. Námskerfið er miðað við það, að bömin hafi Nýja testamentið til undir- búnings undir spurningatimana og lesi þar eða læri þá kafla, sem teknir em til meðferðar hverju sinni. Meginuppistaðan, sem fræðiefnið er fellt inn í, er ævi Jesú, frá fæðingu hans til upprisu, þannig að höfuðatriði kenn- ingar hans, bæði um trú og siðgæði, koma fram. Jafnframt er leitazt við

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.