Nýjar kvöldvökur - 01.05.1960, Blaðsíða 12
66
SÍRA SIGTRYGGUR GUÐLAUGSSON
N. Kv.
kirkju að Núpi og skreytti hana með eigin
liendi á listrænan hátt.
Núpsskólinn.
Eins og að líkum lætur, fór síra Sigtrygg-
ur strax að kynna sér horfur í fræðslumálum
í prestakalli sínu. Þar átti liann góðan sam-
verkamann, þar sem Kristinn var bróðir
hans. Kristinn hafði kennt börnum fyrstu ár
sín í Mýrahreppi og verið þátttakandi og
stundum stofnandi ýmiss konar félagsskapar
meðal unga fólksins í sveitinni. Þar var söng-
félag og búnaðarfélag, og öflugt bindindis-
félag var þar starfandi. Nokkru áður en síra
Sigtryggur kom að Núpi, voru miklar um-
ræður um að stofna heimavistarbarnaskóla
í sveitinni. Var byrjað að grafa fyrir hús-
grunni, en þá strandaði málið vegna ósam-
konrulags um staðarvalið. Það er saga, sem
stöðugt endurtekur sig í skóla- og félags-
Síra Sigtryggur Guðlaugsson liklega um eða
yfir sextugl.
málum. Ég var þá fyrir innan fermingu og
hlakkaði til náms í skóla þessum og varð því
fyrir bitrum vonbrigðum, þegar málið féll
niður. En ég var ekki einn um það. Hinum
eldri framfaramönnum mun hafa l'allið
þetta þungt, ekki sízt Kristni á Núpi. Hann
var því fús til liðveizlu við bróður sinn í
þeim málum sem öðrum. Þeir voru eld-
heitir hugsjónamenn báðir tveir, og reiðu-
búnir að styðja hverja framfaraviðleitni í
þjóðfélaginu. Síra Sigtryggur mun í fyrstu
hafa hugsað sér, að sýslufélagið gæti átt ung-
mennaskóla á sínum vegum, en komst brátt
að því, að sú leið var ófær í bili, en mikil
þörfin á ungmennafræðslu, enda þótt
fræðslulögin væru þá í undirbúningi.
Sumarið 1906 fór síra Sigtryggur utan á
kristilegan stúdentafund Norðurlanda, sent
haldinn var í Einnlandi. Á leiðinni kom
hann við í Danmörku og komst þar í kynni
við ýnrsa menn. Var honum alls staðar vel
tekið, og var för þessi honum ánægjuleg og
lærdómsrík.
Þá um haustið mun hafa verið ákveðið
að stofna ungmennaskólann að Núpi, því
að um sumarið hafði verið byggt hús, sem
rúmaði slíka starfsemi. Það var í daglegu
tali kennt við góðtemplarastúkuna Gyðu
nr. 120, sem síra Sigtryggur hafði stofnað
lúnn 5. jan. 1906 í stofunni hjá Kristni á
Núpi. Síra Sigtryggur segir svo um húsbygg-
ingu þessa, að þegar fundur var haldinn um
að stofna stúku, liafi strax komið í ljós aðal-
hindrunin: húsnœðisleysi. Einn fundar-
manna hafði þá sagt: „Ég legg til, að hús sé
byggt og ekki óveglegt. Það má gera fleira
með það en hafa stúkufundi þar.“ Enginn
mótmælti, og lauk fundinum þannig, að 5
bændur gengu í ábyrgð fyrir byggingu nýs
húss. Síra Sigtryggur segir svo orðrétt í bréfi
til mín fyrir tveimur árum:
„Næsta fundarákvörðun varð þannig, að
Jón Kristjánsson, skipstjóri á Arnarnesi,
bauð að leggja frani frá sér verð 2/5 hluta
hússins gegn því, að efri hluti hússins væri
um sinn eign hans og bústaður. Verð %