Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Blaðsíða 32

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Blaðsíða 32
32 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ Flutningi sjómannamenntunarinnar mótmælt Frá stofnfundi Hollvinasamtaka Sjómannaskóla íslands þann 26. nóvember 1997 Sjómannadagsblaðið fjallar að þessu sinni ítarlega um menntunar- mál sjómanna. Þótt víst sé það vel viðeigandi á afmælisári, þá gefur sú umræða sem orðið hefur um málefni Sjómannaskólans enn rík- ari ástæðu til þess. Hér er því rætt við skólameistara beggja skólanna og ennfremur formann Hollvina- samtaka Sjómannaskóla Islands. Þótt meðgöngutími Hollvinasam- takanna væri sem kunnugt er skammur, þá kom það ekki í veg fyrir að þegar við fæðinguna voru þau voldug og sterk. A stofnfundin- um var hátíðarsalur Sjómannaskól- ans þétt setinn og umsóknir dreif að og ekki síst var bragð að umsókn- um sjómanna á hafi úti er á fund- inn bárust. Síðan hefur Hollvina- samtökunum sífellt vaxið fiskur um hrygg og það hve marga velunnara skólinn hefur reynst eiga utan sjó- mannastéttarinnar vekur athygli. Hér fer á eftir frásögn af því sem fram fór á stofnfundinum og von- um við að stemmningin skili sér til lesenda okkar. Það vakti þjóðarathygli þegar svohljóðandi auglýsing kom í útvarpi og sjónvarpi þann 26. nóvember sl.: „Stofnfundur Hollvinasamtaka Sjó- mannaskóla íslands verður haldinn í hátíðasal skólans í kvöld kl. 20.30.“ Að baki þessarari auglýsingu stóð sér- stök undirbúningsnefnd sem unnið hafði að stofnunini, en í henni voru þessir: Ásgeir Guðnason, Björn Herberts- son, Elís Jónsson, Garðar Pálsson, Georg Árnason, Guðmundur Hall- varðsson, Guðmundur Kjærnested, Guðmundur Lýðsson, Gunnar Gutt- ormsson, Gunnar Hafsteinsson, Hannes Þ. Hafstein, Haukur Óskars- son, Haukur Þórhallsson, Hálfdan Henrysson, Helgi Hallvarðsson, Jó- hann Ólafur Ársælsson, Kristján Páls- son, Magni Sigurhansson, Unnþór Torfason, Þorsteinn Gíslason og Ævar Guðmundsson. Þungavigtarmenn uppskáru laun erfiðisins Þegar Hálfdan Henrysson setti fundinn var augljóst að þessir þunga- vigtarmenn höfðu uppskorið laun erf- iðis síns. Hátíðarsalurinn var þétt set- inn og nemendur beggja skólanna viku úr sætum fyrir eldri mönnum og röðuðu sér í þéttar raðir með báðum langveggjum salarins og í anddyrið við innganginn. Hálfdan bauð menn velkomna, lýsti ánægju með þann mikla stuðning sem hið þarfa málefni hefði fengið og bað að því búnu Krist- ján Pálsson alþingismann að taka við fundarstjórninni og Þráin Karlsson vélstjóra að gerast fundarritari. Fyrsta verk fundarstjóra var að lesa upp skeyti sem borist höfðu og byrj- aði hann á skeyti frá stjórn Fulltrúa- ráðs Sjómannadagsins í Reykjavík og Hafnarfirði, sem hljóðaði svo: „Stjórn Fulltrúaráðs Sjómannadagsins í Reykjavík og Hafnarfirði lýsir yfir eindregnum stuðningi við stofnun Hollvinasamtaka Sjómannaskóla ís- lands. Á haustfundi fulltrúaráðsins 20. nóvember sl. hvar fulltrúar 11 stéttarfélaga sjómanna í Reykjavík og Hafnarfirði voru mættir, var öllum áformum um flutning sjómanna- menntunar úr Sjómannaskóla íslands við Rauðarárholt harðlega mótmælt. Þá lýsti fundurinn yfir að til vansa væri fyrir þjóð sem byggir aikomu sína á sjávarútvegi og siglingum, hve áfátt væri viðhaldi á menntasetri ís- lenskrar sjómannastéttar, Sjómanna- skóla íslands. Stöndum saman — það er okkar afl gegn tilflutningi sjó- mannamenntunar úr húsnæði Sjó- mannaskóla íslands við Rauðarárholt. F.h. stjórnar og trúnaðarmannaráðs Sjómannadagsins í Reykjavík og Hafnarfirði. Guðmundur Hallvarðsson.“ „Stendur hátt með stoltar- ráð...“ Þá las fundarstjóri skeyti og sím- bréf sem innihéldu ýmist hvatningar- orð eða inntökubeiðnir — stundum hvort tveggja. Áberandi voru skeyti frá gömlum nemendum Sjómanna- skólans sem staddir voru á hafi úti og má nefna kveðjur frá skipstjórunum á hafrannsóknaskipinu Árna Friðriks- syni, varðskipinu Óðni, Akureyri-EA og Snæfugli-SU. Hollvinasamtök Há- skóla Islands sendu árnaðaróskir og óvænt ánægja var að því er Þórarinn Eldjárn rithöfundur hringdi og upp- lýsti að í Sjómannablaðinu Víkingi árið 1946 væri að finna tvö erindi eft- ir Kristján Eldjárn sem helguð eru Sjómannaskólanum, þótt hans sé þar ekki getið sem höfundar. Hefði hann ort þau þegar hann eitt sinn kom til Reykjavíkur og sá turn skólans gnæfa yfir Reykjavíkurbæ. Erindin eru á þessa leið: „Stendur hátt með stoltarráð Stýrimannaskóli, horfir yfir lög og láð langt af sjónarhóli. Hœrra þó við himin her heiður þeirra tíma, er menn lœrðu afsjálfum sér sjóinn við að glíma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.