Búnaðarrit - 01.01.1937, Blaðsíða 43
BÚNAÐARRIT
23
14. Bergljót Sigvaldadóttir, Hallgeirseyjarhjáleigu, A.-Landeyj.
15. Þórarinn Einarsson, Þúfum, N.-ísf.
16. Iíári Halldórsson, Þórisdal, Lóni, A.-Skaft.
17. Oddhjörg Sigfúsdóttir, Krossi, Fellum, N.-Múl.
Til verðlauna var varið kr. 839,00 árið 1935 og auk
þess veitli félagið Vilborgu Jónsdóttur, sem hefir ann-
ast hreingerningu á skrifstofum félagsins í 30 ár sam-
fleytt, 300 kr. heiðurslaun, fyrir langt og dyggilega
unnið starf. Árið 1936 var varið kr. 724,00 til verð-
launaveitinga.
Bókasafnið.
Samkvæmt ákvörðun síðasta Búnaðarþings, skipaði
félagsstjórnin á fundi 30. júní 1935 3ja manna bóka-
safnsnefnd. Nefndina skipa Metúsalem Stefánsson,
Theodór Arnbjörnsson og Steingrímur Steinþórsson,
'► sem er sjálfkjörinn. Nefndin ákveður hvaða bækur
skuli keyptar í safnið og sér um það að öðru leyti.
Árið 1935 var varið til bókakaupa og bókbands kr.
702,95 en árið 1936 var kr. 465,17 varið til þessa.
Bókasafnið hefir að undanförnu verið geymt í her-
bergi uppi á fyrstu hæð hússins, en forlagsbækur fél-
lagsins ai'tur í smáherbergi inn af vesturstofunni niðri.
Þetta var mjög óheppileg tilhögun, einkum með hlið-
sjón af því, að ef vesturstofan var leigð óviðkomandi
eins og gert hefir veiúð að undanförnu, var með öllu
óviðunandi að þurfa að ganga í gegnum hana til þess
að afgreiða bækur úr geymslu félagsins. Vegna þess
ákvað stjórnin, að láta innrétta vesturstofuna fyrir
bókasafn og hafa þar á sama stað, bæði safnið og
geymslu l'yrir bókaútgáfu félagsins.
Þetta var svo gert sumarið 1936. Hefir bókasafnið
nú verið flutt í hinn nýja stað. Hafa verið sett þar
nægilega mikið af skápum og hillum, lil þess að rúma
bæði bókasafnið og sölubækur félagsins. Er breyting
þessi mjög lil bóta, því að áður varð að hafa allmikið