Búnaðarrit - 01.01.1937, Blaðsíða 78
r>8
BÚNAÐARRIT
1935 Meðal- 1936 Meöal-
Dilka- Uropp- Dilka- kropp-
tala þungi tala þungi
Bakkafjörður 1703 12,43 547 12,17
Eyrarbakki 714 12,37 755 12,00
Vestmannaeyjar 303 11,31 434 11,89
Stöðvarf jörður 980 11,13 1083 11,83
Kolkuós 265 11,95 211 11,82
Djúpivogur 4688 11,59 5381 11,72
Hornafjörður 6927 10,90 6687 11,70
Öræfi 767 10,21 843 11,12
1934 er alls slátrað um 353 þúsund dilkum. Þá hafa
þeir 12,47 kg. meðalkroppþunga, og voru taldir vænni
en árið á undan, en um meðalkroppþunga fyrir slátur-
dilka þá eru ekki til tölur.
1935 er slátrað um 345 þúsund dilkum. Þá er ineðal-
kroppþunginn 12,94 kg.
1936 er slátrað 355 þúsund dilkum, og þó kannske
meir, því í desember er nokkru slátrað, sem ekki er
enn talið með. Þá er kroppþunginn að meðaltali fyrir
landsheildina 13,46.
1933 var féð í landinu komið upp í 728. þúsund og
orðið það flest sem það hefir orðið.
1934 fækkar því aftur niður í 699 þúsund.
1935 fækkar því enn og keinst þá niður í 657 þúsund.
1936 liggur ekki enn fyrir hve það er margt, en vitað
er, að þvi hefir aftur fækkað. Trúlegt að það sé ekki
fleira en um 640 þús.
í þessu sambandi vil ég benda á það, að þó féð 1936
sé orðið mikið færra en það var 1933 og 1934, þá hefir
aldrei verið slátrað fleiri dilkum hér á landi á einu
hausti en 1936. Og þó er þá um haustið sett á mikið
af lömbum, nema í Borgarfirði og Vcstur-Húnavatns-
sýslu.
Um verðið á sláturfénu þessi haust liggja fyrir upp-
lýsingar, er sýna verðið á hverjum stáð til bænda,
og af því iná svo aftur finna meðalverðið fyrir lands-
lieildina. Til hægðarauka flokka ég þetta sundur í þær