Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 38
hesthús, og er því verki nú nýlokið. Pá er frágangi að utan lokið og aðeins
eftir að innrétta aðstöðuhús. Þá er bygging hlöðu, sem jafnframt getur orðið
reiðskáli, eftir.
Til byggingarinnar hefur nú verið varið rétt um þrjátíu og sex milljónum
króna á verðlagi hvers árs, en hún hófst árið 1988.
Stofnverndarsjóður
Stofnverndarsjóður íslenska hrossastofnsins er lögum samkvæmt í vörslu
Búnaðarfélags íslands. Ákvæði um hann voru í eldri lögum um búfjárrækt,
og hefur hann starfað með sama hætti, þar sem enn hefur ekki verið sett
sérstök reglugerð um starfsemi hans samkvæmt hinum nýju lögum um
búfjárrækt frá árinu 1989. Samkvæmt grein þeirra laga er heimilt verksvið
sjóðssins til annarra búfjártegunda en hrossa.
Stjórn sjóðsins skipar hrossaræktarnefnd.
Tekjursjóðsinsárið 1990 urðu um 6,021 millj. kr.,en þá voru flutt út 1631
hross, þar af 722 hryssur og 62 stóðhestar. í ár hafa verið flutt út 1834 hross,
þar af 812 hryssur og 47 stóðhestar.
Frá Stofnverndarsjóðnum segir nánar í skýrslu Þorkels Bjarnasonar.
Bændahöllin
Búnaðarfélag íslands á Bændahöllina að tveimur þriðju á móti Stéttarsam-
bandi bænda. Húsið er rekið sem sameignarfyrirtæki þessara aðila, og er
rekstur Hótel Sögu lang- umfangsmestur í því sambandi.
Forstjóri Bændahallar er Konráð Guðmundsson, sem lengi var einnig
hótelstjóri, en hótelstjóri er Jónas Hvannberg.
Á árinu tók Hótel Saga að sér með sérstökum samningi að sjá um rekstur
á Hótel íslandi, sem tók til starfa á miðju ári. Samningurinn felur ekki í sér
neina áhættu eða fjárhagsskuldbindingu fyrir Hótel Sögu.
Rekstur Hótel Sögu gekk vel á árinu þrátt fyrir aukna samkeppni og
heldur minni aukningu ferðamanna en ætlað var.
Stjórn Bændahallarinnar var þannig skipuð á árinu: Jónas Jónsson, sem
var formaður, og Hjalti Gestsson og Ólafur E. Stefánsson voru fulltrúar
Búnaðarfélags íslands, en Haukur Halldórsson og Þórarinn Forvaldsson,
sem var ritari stjórnar, voru fulltrúar Stéttarsambands bænda.
Lokaorð
Ég þakka búnaðarþingsfulltrúum svo og öllum stjórnarmönnum, sem ég
hef starfað með, bæði þeim, sem frá fóru, og hinum, sem til komu, fyrir
mjög ánægjulegt samstarf á árinu. Samstarfsfólki mínu öllu þakka ég fyrir
vel unnin störf og góða samvinnu. Héraðsráðunautum, forsvarsmönnum
búnaðarsambandanna og öðrum innan bændasamtakanna svo og bændum
öllum, sem félagið hefur átt samstarf við, þakka ég fyrir góð samskipti á
árinu. Jónas Jónsson
36