Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 199
með framvindu þeirra alþjóðasamninga, sem nú eiga sér stað um
viðskipti með landbúnaðarvörur. Sérstaklega verði lögð áherzla á að
kynna bændum niðurstöðu slíkra samninga og áhrif þeirra á landbún-
aðinn.
3. Upplýst verði um opinberan stuðning við landbúnað í nálægum löndum
og í framhaldi af því metin og kynnt staða landbúnaðar á íslandi.
4. Til að mæta auknum kröfum um framleiðni í landbúnaði og til að
treysta hag bænda verði hagfræðileiðbeiningar stórefldar svo og það
starf, sem liggur þeim til grundvallar. Vísað er til ályktana Búnaðar-
þings 1990 og 1991 um bókhaldsmál bænda í þessu sambandi.
Haft verði að markmiði, að bókhald verði tekið upp sem fastur liður í
búrekstri.
5. Úttekt verði gerð á öllu ræktunarlandi og skipuleg áætlun um úrbætur
þar, sem þeirra er þörf, miðað við hagkvæma búskaparhætti á hverri
jörð.
Jafnframt verði leitað leiða til að auka gæði uppskerunnar, tryggja
varðveizlu og arðbæra notkun, m.a. til þess að komast hjá notkun á
innfluttu fóðri til hefðbundinnar búvöruframleiðslu.
6. Búnaðarfélag íslands beiti kröftum sínum í auknum mæli að landbóta-
störfum og hafi um það samvinnu við búnaðarsamböndin. Með því
móti verði bændur enn virkari þátttakendur í landgræðslustarfinu.
Vakin er athygli á því, að með þeirri tækni, sem nú er fyrir hendi hjá
Landmælingum íslands í kortagerð, er auðvelt að ákvarða nauðsynleg-
ar landbótaaðgerðir.
Þar opnast leiðir fyrir víðtækara og almennara starf að landbótum.
7. Bændasamtökin gerist virkir aðilar að undirbúningi þeirrar áætlunar
um byggðamál, sem á grundvelli nýrra laga um Byggðastofnun er að
hefjast.
Með því starfi verði tryggt, að viðhorf og hagsmunir hinna dreifðu
byggða verði virt og leitað leiða, sem efla atvinnulíf í dreifbýli.
Stjórn Búnaðarfélags íslands kynni Stéttarsambandi bænda og landbún-
aðarráðuneytinu þau áform, sem í ályktun þessari felast, og leiti samráðs og
samstarfs um að hrinda þeim í framkvæmd.
Ennfremur efni stjórn félagsins svo fljótt, sem verða má, til funda með
stjórnum búnaðarsambandanna og ráðunautum þeirra ásamt öðrum þeim
aðilum í héraði, sem stjórnir búnaðarsambanda vilja kveðja til fundar um
þessi málefni.
Stjórn Búnaðarfélags íslands skipuleggi störf Búnaðarfélagsins til stuðn-
ings framangreindum markmiðum og geri næsta Búnaðarþingi grein fyrir
framgangi þessara mála.
197