Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 86
hin ýmsu mál, sem fyrir fundinum lágu, það er fullkomlega eðlilegt, en
málin voru rædd án allra svívirðinga og æsings. Á væntanlegu Búnaðarþingi
verður ný Hrossaræktarnefnd skipuð. Það er vandaverk í ljósi fenginnar
reynslu.
Ritstörf og útgáfa. Hvað þennan þátt starfsins varðar, er fyrst og fremst
vitnað til ritskrár hér í lok skýrslunnar, en mikill hluti ritstarfa minna á árinu
voru tengd útgáfu Hrossarœktarinnar, en ég skrifaði mikið í hana og
ritstýrði henni sem fyrr. Hrossaræktin 1990 kom út í september. Það er
auðvitað allt of seint, bókin þarf að koma út í febrúar ár hvert, ef útgáfan á
að þjóna vel tilgangi sínum. Að því er stefnt og gæti, ef vel gengur, tekist,
þegar ritið fyrir árið 1992 kemur út. Samþykktir þær, sem félagasamtök
hestafólks og hrossabænda gerðu á fundum sínum um útgáfutíma bókarinn-
ar og getið er um hér fyrr í skýrslunni, eru góðra gjalda verðar. Slíkar
samþykktir lengja þó ekki sólarhringinn, en þær sýna áhuga hestafólks á
ritinu, og það er vel. Hrossarœktin 1990 var í sama broti og fyrr, 250 bls. að
lengd. í þetta sinn las ég sjálfur allar prófarkir, og nær allt efni bókarinnar
fór fullbúið í prentsmiðju og var keyrt þar út úr tölvu. Halldór Árnason
lagði mikið starf í uppsetningu bókarinnar með mér. Þannig tókst að
minnka kostnað við útgáfuna töluvert. Sala bókarinnar er ákaflega örugg,
þannig að útgáfan skilar nokkrum tekjum.
Á árinu hafa blöð tekið við mig nokkur viðtöl, mest eru það stuttir
viðtalsstúfar um það, sem efst er á baugi í hrossaræktinni á hverjum tíma. í
10. tbl. Eiðfaxa 1991 birtist þó við mig nokkuð ítarlegt viðtal um útgáfumál,
skýrsluhald og dómstörf í hrossarækt. Á árinu var ég fjóruni sinnuin í
útvarpsþáttum. í fyrri tvö skiptin var um dómsstörf fjallað, það var í vor. í
sumar og haust var í tvígang til umræðu fjölmargt, er lýtur að kynbótastarfi í
hrossarækt.
Samskipti við útlönd. Á árinu hefur sá þáttur starfs míns, er varðar
samskipti við útlönd, mest verið fólginn í að svara ýmsum fyrirspurnum
bréflega eða símleiðis. Ég sótti ráðstefnu ræktunarfulltrúa þjóða innan
FEIF, sem haldin var í Hollandi 9. og 10. mars. Pað hygg ég, að hal'i verið
gagnleg ferð upp á framhaldið.
Hinn 9. maí fór fram forskoðun hrossa í Þýskalandi vegna væntanlegra
Heimsleika á íslenskum hestum. Hrossin, sem voru dæmd, eru öll fædd á
íslandi. Hliðstæð forskoðun fór fram hér heima samhliða forskoðun fyrir
Fjórðungsmót á Suðurlandi. Sama dómnefnd dæmdi úti og í forskoðun hér
heima, við Þorkell ásamt Jóni Vilmundarsyni frá Bsb. Suðurlands. Hins
vegar sótti ég ekki Heimsleikana siálfa (áður nefnt Evrópumeistaramót),
sem haldnir voru í Svíþjóð í ágúst. í ljósi skoöunar þáverandi ræktunarfull-
trúa FEIF á stöðu íslands í þessu samstarfi og af reynslu minni af
samskiptum við hann, taldi ég ekki rétt að gera það eða að dómari á vegum
Búnaðarfélags Islands starfaði þar í dómnefnd. Hins vegar hef ég trú á því,
84