Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 208
ýmsu fuglategunda og á hvaða árstíma það skuli gert. Ástæöa er til að
ætla, aðheppilegra sé, að ákvæði um friðun og ófriðun fuglategunda sé
lögbundin fremur en vera háð reglugerðum, og að embættismenn geti
hringlað með þau eftir geðþótta. Nauðsynlegt er, að festa ríki um það,
hvað má og má ekki í þessum efnum, þannig að menn hafi það á
tilfinningunni. Þó er eðlilegt, að yfirvöld geti gefið vissar undanþágur
frá lögbundnum veiðitíma, t.d. í sambandi við ásókn álfta- og gæsa-
hópa í ræktarlönd á vorin.
Margir telja, að offjölgun hettumáfs sé orðin vandamál víða og bitni illa
á öðrum tegundum. Ástæða kynni að vera til að hafa hann ófriðaðan og
jafnvel skúminn líka.
10. 19. grein fjallar um nýtingu hlunninda, og hún virðist vera vel heppnuð,
enda greinilega byggð á gömlum venjum og reynslu. Lagt skal til, að
smávegis viðbót komi í fyrstu línu 5. málsgreinar, þannig að þar standi:
Á takmörkuðum svæðum, þar sem andavarp er mikið -þar með talið
æðarvarp - skal veiðiréttarhafa heimilt -
Kunnugir vita, að skaðlaust er að nýta lítið eitt af æðareggjum, ef rétt er
að því staðið.
Reglur þurfa þó að skera úr um, hve langt megi ganga í því efni, og
viðbótin hér að framan á að skera úr um það, að ákvæðið um andavarp
nái yfir æðarvarp líka.
11. Ákvæði um hreindýr og hreindýraveiðar eru stutt og fábrotin í frum-
varpinu. Þar er greinilega stefnt að stjórnun með reglugerðum úr
Reykjavík. Engin ákvæði eru um aðild heimamanna að stjórn veið-
anna. Búnaðarþing telur mjög óeðlilegt, að lögin geri ekki ákveðið ráð
fyrir þátttöku heimamanna í hreindýraeftirliti og stjórn hreindýra-
veiða. Þar sem hreindýr eru bundin einum landshluta, er hér lagt til, að
miðstöð hreindýrarannsókna, hreindýraeftirlits og stjórn veiða verði á
Austurlandi, t.d. Skriðuklaustri. Haft sé viðtækt samráð um hrein-
dýramálin, svo sem gert er ráð fyrir í nýútgefinni reglugerð um þau.
Mál nr. 33
Frumvarp til laga um sinubrennur og meðferð elds á víðavangi. (Lagtfyrir
Alþingi á 115. löggjafarþingi 1991-92).
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 16 atkvæð-
um gegn einu.
Búnaðarþing hefur fjallað um frumvarp til laga um sinubrennur og
meðferð elds á víðavangi og getur eftir atvikum fellt sig við frumvarpið, ef
tekið verður tillit til eftirfarandi breytinga:
206