Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 70
tækifærið til að fara í stutta könnunarferð í nokkur heimalönd og í afrétt
sveitarinnar. Skömmu síðar auglýsti Ölfushreppur bann gegn lausagöngu
stórgripa. Þeim sveitarfélögum fer nú fjölgandi, sem takmarka lausagöngu
hrossa eða stórgripa og jafnvel alls búfjár þar, sem aðstæður leyfa, í
samræmi við lög um búfjárhald nr. 46/1991. í byrjun október flutti ég stutt
erindi ásamt Ólafi E. Stefánssyni á fræðslufundi á Rannsóknastofnun
landbúnaðarins á Keldnaholti um ráðstefnuferð okkar til Þýskalands í
september. A þessum tíma sat ég umræðufund um sinubrennslu, sem
umhverfisráðuneytið gekkst fyrir í Borgartúni 6. Dagana 16,-18. október
sótti ég ráðstefnu Alþjóðasambands búvöruframleiðenda, IFAP, í Bænda-
höllinni, aðstoðaði nokkuð við undirbúning hennar og var annar tveggja
fararstjóra í kynnisferð um Suðurland í lok ráðstefnunnar. Umhverfismál,
nánar tiltekið „landbúnaður og sjálfbær þróun“, var efni þessarar alþjóð-
legu ráðstefnu, sem tókst með ágætum, og munu ályktanir hennar verða
lagðar fram á Heimsráðstefnu þjóðarleiðtoga, sem Sameinuðu þjóðirnar
halda í Rio de Janeiro í Brasilíu í júní 1992, en þar verða umhverfis- og
þróunarmál sett í öndvegi. í lok október var ég einn þriggja frummælenda í
umræðum um hrossabúskap á Islandi á 42. ársþingi Landssambands
hestamannafélaga í Félagsheimili Kópavogs (sjá ritskrá). í byrjun nóvem-
ber sat ég fjölmennan kynningarfund landbúnaðarráðuneytisins í Borgar-
túni 6 um gróðurvernd og landgræðslu og flutti þar erindi um breytta
beitarhætti (sjá ritskrá). Geitfjárræktarfélag íslands varstofnað22. nóvem-
ber í Bændahöllinni, og flutti ég þar stutt erindi um geitfjáreign í landinu.
Fyrr í mánuðinum hafði ég aðstoðað nokkra geitaeigendur á undirbúnings-
fundi á sama stað. í byrjun desember heimsótti Búfræðslunefnd Bænda-
skólanna á Hvanneyri í Borgarfirði og Hólum í Hjaltadal til að kanna
möguleika á verkaskiptingu skólanna, og var ég ritari nefndarinnar í
ferðinni. í annarri viku september sat ég 42. ráðstefnu Búfjárræktarsam-
bands Evrópu (EAAP) í Berlín í Þýskalandi. Ég hafði skipulagt einn fund
Sauðfjár- og geitadeildar, sem fjallaði um klippingu sauðfjár og geita, og
flutti þar yfirlitserindi um haust- og vetrarrúning sauðfjár. Það mun síðar
birtast í ritinu Búvísindum. Auk þess flutti ég stutt erindi um stöðu og
horfur sauðfjár- og geitfjárræktar á íslandi í sömu deild (sjá ritskrá).
Geitfjárrœkt. Ásettar geitur haustið 1990 voru samtals 332 samkvæmt
forðagæsluskýrslum, og hefur þeim fjölgað nokkuð á seinni árum. Geitaeig-
endur voru í flestum sýslum landsins, samtals 50 með 1-47 geitur hver.
Skýrsluárið 1989-1990 skiluðu 32 geitaeigendur skýrslum fyrir samtals 259
geitur, og var stofnverndarframlagið, kr. 2.400 á ásetta geit, greitt í lok
nóvember. Ég hef leiðbeint nokkrum geitaeigendum við útvegun á höfrum
vegna skyldleika, í samráði við Sauðfjárveikivarnir. Þá aðstoðaði ég
geitaeigendur við undirbúning félagsskapar, og var Geitfjárræktarfélag
íslands stofnað 22. nóvember 1991, eins og áður var vikið að. Fyrstu stjórn
68