Heilbrigðismál - 01.03.1981, Blaðsíða 10
Á aðalfundi Krabbameinsfélags
Reykjavíkur, 23. mars, var Jón
Oddgeir Jónsson kjörinn heiðursfé-
lagi. Hann var framkvœmdastjóri
félagsins frá 1960 til 1975 og sat í
stjóm þess frá 1959 til 1981. Tómas
Ámi Jónasson formaður félagsins
(t. >>. á myndinni) afhenti Jóni Odd-
geiri heiðursskjal sem undirritað var
af öllum stjórnarmönnum félagsins.
ist að koma út eða væntanleg síðar
á þessu ári og hinu næsta. Á síðasta
starfsári voru tveir eldri fræðslu-
bæklingar endurprentaðir og út
kom nýtt fræðslurit, „Verðandi
mæður ættu ekki að reykja".
Veittir voru nokkrir styrkir til
ferða á námskeið og ráðstefnur er-
lendis varðandi baráttumál
krabbameinssamtakanna.
Félaginu hlotnaðist á árinu 15
milljón kr. arfur eftir Þorbjörn
Jónsson, Mímisvegi 2 hér í borg, en
hann lést fyrir nokkrum árum.
Rekstur happdrættisins gekk vel
á árinu 1980. Gat félagið lagt af
mörkum hartnær 90 milljónir gkr.
til starfsemi Krabbameinsfélags ís-
lands en það er rösklega helmingi
meira en árið áður.
Þegar kom að stjórnarkjöri var
tilkynnt að Alda Halldórsdóttir
hjúkrunarfræðingur og Jón Odd-
geir Jónsson fyrrv. framkvæmda-
stjóri, sem ganga áttu úr stjórninni.
hefðu bæði skorast undan endur-
kjöri. Þakkaði formaður þeim
margra ára heilladrjúgt starf í fé-
lagsstjórn og skýrði jafnframt frá
því að ákveðið hefði verið að gera
Jón Oddgeir að heiðursfélaga
Krabbameinsfélags Reykjavíkur,
en auk stjórnarstarfa var Jón um
langt skeið framkvæmdastjóri fé-
lagsins.
Stjórn Krabbameinsfélags
Reykjavíkur er nú þannig skipuð
að Tómas Á. Jónasson læknir er
formaður en aðrir í stjórn Baldvin
Tryggvason sparisjóðsstjóri, Erla
Einarsdóttir gjaldkeri, Jón Þorgeir
Hallgrímsson læknir, Páll Gíslason
yfirlæknir, Sigríður Lister hjúkr-
unarfræðingur og Þórarinn Sveins-
son læknir. í varastjórn eru Edda
Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur,
Guðmundur J. Kristjánsson deild-
arstjóri og Kristján Sigtryggsson
skólastjóri.
Samþykkt var á fundinum
ályktun þar sem ítrekaðar eru
ályktanir síðustu aðalfunda um
nauðsyn bættrar aðstöðu til
krabbameinslækninga. Sérstaklega
er bent á að ekki sé unnt að endur-
nýja geislunartæki vegna húsnæð-
isskorts, þótt nokkur lausn hafi
fengist til bráðabirgða fyrir göngu-
deild krabbameinssjúkra. Lýst er
áhyggjum vegna þess að fram-
kvæmdir hafa ekki enn hafist við
K-byggingu Landspítalans og
skorað á heilbrigðis og fjármála-
yfirvöld að láta það mál til sín taka.
Þ. Ö.
Jordan
tannbursti hinna vandlátu
Fæst í apótekum og verzlunum um land allt.
jordan er eina rétta lausnin
John Lindsay hf.
Skipholti 33, sími 26400
10 Fréttabréf um HEILBRIGÐISMÁL 1/1981
Mynd: Pétur A Oskars