Fréttablaðið - 04.01.2010, Blaðsíða 8
8 4. janúar 2010 MÁNUDAGUR
FÆKKUN FERÐA
Básaskersbryggju | 900 Vestmannaeyjar | Sími 481 2800 | Fax 481 2991 | www.eimskip.is | www.herjolfur.is
Að ósk Vegagerðarinnar verður ferðum Herjólfs fækkað um tvær í viku frá og með 13. janúar
og út apríl 2010. Því verður aðeins ein ferð á laugardögum og miðvikudögum á þessu tímabili.
Seinni ferðin á þessum dögum verður felld niður og því aðeins siglt kl. 8.15 frá Vestmannaeyjum
og 12.00 frá Þorlákshöfn.
Athugið að breytingin tekur gildi miðvikudaginn 13. janúar.
Nánar um siglingaáætlun á herjolfur.is
1. Hvaða plata var valin plata
síðasta árs af dómnefnd Frétta-
blaðsins?
2. Hvað heitir grínhópurinn
sem heimsótti Litla-Hraun?
3. Hvað heitir leikstjóri Ára-
mótskaupsins?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30
BRETLAND Lífi breska rithöfundar-
ins Sue Townsend var bjargað fyrr
á þessu ári þegar í hana var grætt
nýra úr elsta syni hennar. Townsend
greindi frá aðgerðinni nú skömmu
fyrir áramótin til að styðja starf-
semi bresku nýrnasamtakanna og
vekja athygli á sárum skorti á líf-
færum til ígræðslu.
Townsend bendir á að í Bretlandi
einu bíði nú um tíu þúsund manns
eftir nýrnaígræðslu, en þar af deyi
þrír á degi hverjum. Af þeim 1.500
sem fengu grætt í sig nýra þar í
landi í fyrra fékk þriðjungurinn líf-
færið frá ættingja.
Sue Townsend varð heimsfræg
snemma á níunda áratug síðustu
aldar fyrir Dagbókina hans Dadda,
(The Secret Diary of Adrian Mole),
en af henni spannst átta bóka röð
um Dadda þar sem honum var fylgt
fram á fullorðinsár. Frú Townsend
er nú 63 ára og gantast með að hún
hafi þrjú nýru. „Þótt sonur minn
tali nú enn um nýrað sitt,“ segir
hún í viðtali við dagblaðið Leicest-
er Mercury í Bretlandi.
Aðgerðin gekk ekki áfallalaust
hjá Townsend, því nýrað starfaði
ekki í fyrstu, var tekið úr og sett
í aftur. Hún var því átta tíma á
skurðarborðinu. Sykursýki varð til
þess að hennar eigin nýru hættu að
virka.
„Fjölskylda mín kom saman, án
samráðs við mig, og ákvað hver ætti
að gefa nýra,“ sagði Townsend við
dagblaðið Independent. - óká
SUE TOWNSEND Rithöfundurinn
góðkunni var heiðraður af samtökum
fatlaðra í Bretlandi í haust. Hún hefur
verið lögblind í fimm ár og er bundin
við hjólastól. MYND/ABILITY MEDIA
Sue Townsend, höfundur Dagbókar Dadda, vekur athygli á líffæraskorti:
Nýra frá syni bjargar höfundi
SJÁVARÚTVEGUR Aflabrögð hjá tog-
araflota HB Granda voru með
miklum ágætum í fyrra. Alls
nam afli togaranna tæplega
47.700 tonnum og aflaverðmætið
var rúmir 9,3 milljarðar króna.
Til samanburðar má nefna að
aflinn nú er lítið eitt meiri en á
árinu 2008 er hann var 47.160
tonn. Aflaverðmætið hefur hins
vegar aukist um tæpa 2,2 millj-
arða í krónum talið eða um 30,7
prósent á milli ára.
HB Grandi gerir út fimm
frystitogara og þrjá ísfisktog-
ara til veiða. Afli frystitog-
aranna nam samtals tæplega
31.900 tonnum og aflaverðmæti
þeirra var tæpir 7,5 milljarðar
króna á árinu. Ísfisktogararnir
voru með samtals 15.800 tonna
afla að verðmæti 1,9 milljarðar
króna.
- shá
Verðmæti um tíu milljarðar:
Góð aflabrögð
hjá HB Granda
GRANDASKIP Vel aflaðist hjá Örfirisey
RE og Þerney RE. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
LÖGREGLUMÁL Ásýnd miðborgar
Reykjavíkur minnir meira á svína-
stíu en stræti og torg manna eftir
helgargleðskapinn.
Þetta segir lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu, sem hvetur fólk
til betri umgengni um borgina.
„Sérhvern morgun um helgar
sópa hópar hreingerningamanna
upp drasl eftir fullorðið fólk sem
átt hefur leið um miðborg Reykja-
víkur. Hvarvetna eru brotnar
flöskur og glös, tómar bjórdósir,
pappa- og blaðarusl, ælur og hland
í bland,“ segir lögreglan og biður
þetta sama fólk að bæta um betur,
losa sig við ruslið í þar til gerðar
fötur, nýta útisalerni og reyna í
alla staði að ganga þannig um að
til fyrirmyndar geti talist. Þá eru
veitingamenn og dyraverðir minnt-
ir á að gestum er óheimilt að bera
áfengi, til dæmis í glösum og flösk-
um, út af veitingastöðunum. Benda
má á að brothljóði, þegar glös
lenda í veggjum og gangstéttum,
fylgir mikið ónæði fyrir nálæga
íbúa. Lögregla bendir á notkun
plastglasa utan dyra. Almenn notk-
un þeirra myndi án efa koma í veg
fyrir alvarlega áverka á allmörg-
um gestum miðborgarinnar, sem
sumir hverjir hafa hlotið alvarlega
andlitsáverka þegar þungum gler-
bjórglösum hefur verið kastað að
þeim. - jss
Lögregla hvetur fólk til að ganga betur um:
Segir miðborgina
vera eins og svínastíu
SUNNUDAGSMORGUNN Þannig leit miðborgin út sunnudagsmorgun einn fyrir
skömmu.
SKÁK Hinn nítján ára gamli Norð-
maður, Magnus Carlsen, er stiga-
hæsti skákmaður heims. Enginn
svo ungur hefur náð efsta sæt-
inu í skáksögunni. Nýr stiga listi
Alþjóðaskáksambandsins, FIDE,
var gefinn út um áramót. Þar
er Carlsen efstur með 2810 stig.
Næstur er Búlgarinn Veselin
Topalov, sem var í efsta sæti, með
2805 stig og heimsmeistarinn
Viswanathan Anand með 2790 stig
en þeir heyja heimsmeistaraein-
vígi í apríl. Aðeins fimm hafa náð
2.800 stigum, Garrí Kasparov náði
hæst allra með 2851 stig, en hann
er hættur þátttöku í mótum og stig
hans því ekki í gildi. - pal
Stigalisti FIDE:
Magnus Carl-
sen stigahæstur
JEMEN, AP Sendiráðum Bandaríkj-
anna og Bretlands í Jemen hefur
verið lokað af öryggisástæðum.
Bandaríkjastjórn segist hafa haft
veður af áformum Al Kaída um
að gera árás á Bandaríkjamenn
í landinu, hugsanlega á sendi-
ráðið.
„Við ætlum okkur ekki að taka
neina áhættu,“ segir John Brenn-
an, yfirmaður hryðjuverkavarna
Hvíta hússins í Washington.
Eftir að nígerískur maður, sem
talinn er hafa hlotið hryðjuverka-
þjálfun í búðum Al Kaída í Jemen,
gerði tilraun til að sprengja upp
bandaríska farþegaþotu á jóla-
dag hafa bæði bresk og bandarísk
stjórnvöld hert öryggisráðstafan-
ir og hvatt ríkisborgara sína þar í
landi til að hafa varann á.
Bæði ríkin hafa einnig aukið
verulega fjárstuðning við stjórn-
ina í Jemen, sem á að nota til þess
að efla hryðjuverkavarnir lögregl-
unnar í landinu.
Í tilkynningu frá Bandaríkja-
mönnum segir ekkert um það hve
sendiráðið verður lokað lengi.
Bretar hafa ekki ákveðið hvenær
sendiráð þeirra verður opnað
aftur, en það gæti orðið strax í
dag.
Á árinu 2008 voru tvisvar gerð-
ar árásir á sendiráð Bandaríkj-
anna í höfuðborginni Sana. Banda-
ríkjamönnum er einnig í fersku
minni árás á bandaríska herskip-
ið USS Cole í Jemen árið 2000.
Osama bin Laden, leiðtogi Al
Kaída, er ættaður frá Jemen.
Samtökin virðast hafa verið að
færa sig upp á skaftið undanfar-
ið, þótt margt hafi verið óljóst
um skipulag þeirra og starfsemi
árum saman.
Í Jemen hafa samtökin komið
sér upp bækistöðvum. Landið er
fátækt og fjöllótt og stjórnvöld
hafa lítið eftirlit utan höfuðborg-
arinnar.
Fyrir ári tilkynntu samtök-
in um stofnun nýrrar deildar á
Arabíuskaga, sem skipuð er með-
limum þeirra frá Jemen og Sádi-
Arabíu. Leiðtogi þeirrar deildar
er Naser Abdel Karim al-Wahishi,
Jemenbúi sem áður var nákominn
Osama bin Laden.
Tveir Sádi-Arabar eru einnig
háttsettir í Jemendeild Al Kaída,
þeir Sahid al-Shihri og Ibrahim
Suleiman al-Rubaish, en báðir
voru þeir í haldi Bandaríkjahers
í Guantanamo-búðunum á Kúbu
þangað til þeir voru látnir lausir,
annar árið 2006 en hinn 2007.
gudsteinn@frettabladid.is
Sendiráðum lokað í Jemen
Bandaríkjastjórn býst við árásum frá Al Kaída í Jemen þar sem samtökin hafa verið í uppbyggingu. Bretar
og Bandaríkjamenn hafa lokað sendiráðum sínum þar og aukið stuðning sinn við þarlend stjórnvöld.
LEIÐTOGAR AL KAÍDA Í JEMEN Abu Hurayrah Qasim al-Reemi, Said al-Shihri, Naser
Abdel Karim al-Wahishi og Abu al-Hareth Muhammad al-Oufi. Þeir al-Shihri og al-
Oufi voru báðir í haldi Bandaríkjamanna í Guantanamo á Kúbu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
TUNGUMÁLASKÓLINN Í SANA Nígeríu-
maðurinn Umar Farouk Abdulmutallab,
sem gerði tilraun til að sprengja upp
bandaríska farþegaflugvél á jóladag,
lagði stund á arabískunám í þessum
skóla í höfuðborg Jemens. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VEISTU SVARIÐ?