Morgunn - 01.12.1947, Blaðsíða 29
MORGUNN
107
6. fundur.
„Hófst miðvikudaginn 17. sept. á venjulega stað og tíma,
með venjulegum hætti. Þá ávarpaði af vörum miðils-
ins fundarmenn einn úr hópi stjórnenda hans, er nefndi
sig Pétur. Hann kvað það vera mikið starf að æfa miðl-
ana og undirbúa þá fyrir það mikilvæga hlutverk, sem
þeir ættu að gegna, að útbreiða þekkinguna á þeim sann-
leika, að látinn lifi. Frá því er miðillinn var 14 ára dreng-
ur, kvaðst Pétur hafa stöðuglega starfað að því að æfa
hann og hjálpa honum, ásamt þeim Míka og dr. Monarch
og fleiri stjórnendum. Og við höldum því starfi áfram,
sagði hann, því að nóg er að starfa. Við þurfum að vernda
miðilinn á fundunum og hjálpa til ef krafturinn ætlar að
þrjóta eða eitthvað að koma fyrir.
Næstur talaði Míka. Hann kvað það afaráríðandi, eink-
um um þá, er innsta hring sitja, að þeir neyttu eigi tóbaks
síðustu klukkustundirnar áður en fundir hefjast, því að
slíkt gæti haft mjög skaðleg áhrif á útfrymið. Að lokum
lýsti hann blessun Guðs yfir fundargestunum og yfir hverj-
um þeim, er í innsta hringnum sat, sérstaklega.
Kl. 9,15 byrjaði Ríta að tala fyrir innan byrgistjaldið.
Sagði m. a. að hjá sér stæði einhver Árnason eða Árni,
sem langaði mjög mikið til að heilsa fundarmönnum. Síð-
an kom hún fram fyrir tjaldið, sveif þar um, talaði enn
við fundarmenn og tók undir söng þeirra.
Næstur birtist dr. Monarch. Þá kom Benito fram í þrjú
skipti, hvert eftir annað. Hann tók slæðurnar frá andlit-
inu og sáu fundarmenn greinilega hið dökka hár hans og
skegg. Hörundsliturinn á andliti lians og höndum var mjög
eðlilegur, en þó fremur dökkur eins og væri hann blakkur
af sól. I síðasta skiptið rétti hann fram fæturna til þess að
sýna þá fundargestum. Voru fæturnir naktir og sáust
mjög skýrt. Var þetta sterkasti sálgerfingurinn og sá
greinilegasti, sem hingað til hefir birzt á þessum fundum.
Næst kom fram vera, sem nefndist systir Lára og þá
vera, sem tjáði sig vera sálmaskáldið danska, T. Kingo.