19. júní


19. júní - 19.06.1987, Page 41

19. júní - 19.06.1987, Page 41
með láglaunakonum sem verka fisk og ræsta hús. - Þær eiga allar sameig- inlegan óvin, hvar í flokki, stöðu eða stétt sem þær eru, það er þverpólitísk karlremba misjafnlega vel grímubú- in.“ - Og þú ert ánægð með þver- pólitískt starf KRFÍ? „Já, ég fullyrði að einmitt vegna þverpólitískrar samvinnu hefur KRFÍ komið ótrúlega mörgu til leiðar um málefni kvenna. Það er svo margt í lífinu sem ekkcrt hefur með flokka- pólitík að gera. Jafnvel alþingismenn vinna stundum saman þverpólitískt ef því er að skipta. Menn snúa oftast bökum saman þegar um sérstakt átak er að ræða í mannúðar og menningar- málum. Og á margt væri hægt að benda.“ - En hvað með launamál kvenna? „Ég álít að samtök kvenna á vinnu- markaði verði að vinna þverpólitískt ef þau ætla sér að ná árangri. Vinn- andi konur hafa misjafnar stjórn- málaskoðanir. Það er þessvegna vonlaust að ætla sér að vinna bara á einum væng. Markmiðið verður að vera sameig- inlegur vilji til að rétta hlut allra kvenna bæði í orði og á borði." - Og nú hefur þú snúið þér að því að rifja upp sögu KRFÍ?„ Við erum svo heppin í KRFÍ að ágætur sagnfræðingur, Sigríður Erlendsdóttir, hefur tekið að sér að skrifa sögu félagsins. Ég hef svolítið verið að aðstoða hana við að rifja upp það sem ég þekki til, t.d. útvarps- starfsemi félagsins.“ - Já, þú hefur töluvert komið við sögu varðandi útvarpsstarfsemi og varst sjálf með útvarpsþætti. „Mér hefur alltaf falliö vel að vinna fyrir útvarp. Ég hafði ábyrgð á all- mörgum dagskrám sent KRFÍ átti aðild að. Svo var ég í nokkur ár með þáttinn Hin gömlu kynni. Hann var hugsaður til að stytta þeim stundir sem heima væru á morgnana og þá var miðað við efni sem þeir hcfðu áhuga á sem væru á mínu aldurs- skeiði. Hlustendur mínir voru þakk- látir og fékk ég margar góðar kveðjur frá þeim.“ Valborg hefur víða komið við í samtali okkar, en þó ræddum við fjöl- margt sem ekki var fest á blað. Það er vel að hún vinnur nreð Sigríði Erlendsdóttur við sögu KRFÍ þar sem Valborg er hafsjór af fróð- leik um starf félagsins og vitneskja hennar má ekki glatast. Þú opnar /\ \ y dós og gæðin koma í Ijós! FYRIRHYGGJA, \n c« Ái Fcörni ] GÓÐUR 1 U JJf \L;1 OV/VJL/U IMDIRBÚNINGUR OGRÉTTUR AÐDRAGANDI HF. ÖLGERÐIN eru forsendur þess að íbúðar- EGILLSKALLAGRÍMSSON kaup eða -byggingar heppnist til hlítar. Vandaðu vel allan undir- búning svo nýja lánakerfið komi þér að sem bestum notum. Mundu, að vel skal það vanda, •^ÞEIM sem lengi á að standa. MÁ TREYSTA Húsnæðisstofnun HAMPIÐJAN HF % ríkisins 41

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.