Iðunn : nýr flokkur - 01.03.1927, Side 11

Iðunn : nýr flokkur - 01.03.1927, Side 11
IÐUNN Jón A. Hjallalín. 5 lín annar þeirra, en hinn enskur rithöfundur. Fóru suo leikar að Englendingurinn hlaut embættið. Mun þjóð- ernið hafa ráðið þeim úrslitum. Hjaltalín hneigðist snemma að trúarkenningum Swe- denborgs. Mun þetta hafa ráðið mestu um, að hann vildi ekki gerast prestur í íslenzku þjóðkirkjunni. Hann gekk í söfnuð Swedenborgsmanna í Edinborg og pré- dikaði oft í kirkju þeirra. Trúhneigður var Hjaltalín alla æfi, eins og vænta má um slíkan alvörumann. Frá því Hjaltalín kom að Möðruvöllum helgaði hann skólanum krafta sína, alla og óskifta. Enda var hér ærið viðfangsefni, því sjaldan mun hafa verið stofnað til skóla af minni fyrirhyggju en einmitt Möðruvallaskólans. En þar sem þessi skóli, þrátt fyrir ill húsakynni, fjárskort og forsjárleysi þings og stjórnar, varð engu að síður merki- legasta alþýðufræðslustofnun íslands á síðari tímum, þykir hlýða að segja hér dálítið frá skólahaldinu á Möðruvöllum. Nú fer Möðruvellingum senn að fækka, og væri æskilegt að einhverir þeirra vildu semja ítar- lega lýsingu af skólalífinu á Möðruvöllum fyrir alda- mótin síðustu. Norðlendingar höfðu jafnan unað því illa, er hinn forni Hólaskóli var lagður niður, og jafnskjótt og Alþingi fékk fjárveitingarvald fóru þeir fram á, að skóli yrði settur á stofn á Möðruvöllum. Hið fyrsta löggjafarþing, 1875, veitti fé til þess að undirbúa málið og 1877 var samþykt frumvarp um að stofna skólann, og skyldu þar einkum kend búvísindi, og skólastjórinn vera búfræð- ingur. Þessi lög fengu staðfestingu konungs 14. des. 1877, en var breytt með lögum 7. nóv. 1879. Var þá minni áherzla lögð á búfræðiskensluna, og skólastjóri ekki skyldaður til að vera búfræðingur, en annar kenn- ari skólans skyldi vera það, Eftir þessu átti skólinn að

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.