Iðunn : nýr flokkur - 01.03.1927, Page 15

Iðunn : nýr flokkur - 01.03.1927, Page 15
IÐUNN ]ón A. Hjaltalín. 9 unum, og í ýmsum efnum virðist hann ekkert hafa breyzt við dvöl sína erlendis. Það sem Hjaltalín hafði fyrst og fremst lært af Eng- lendingum, var að treysta á drengskap lærisveinanna, og láta þá sem mest stjórna sér sjálfa. Hann hélt því fram, að lífið í enskum heimavistarskólum (Colleges) væri fyrirmyndin, sem vér ættum að líkja eftir. »Því ættu ungir íslendingar ekki að geta hagað sér eins vel og ungir Englendingar?« sagði hann eitt sinn við mann, sem andmælti því, að skólar með ensku sniði gætu þrifist hér á landi. Hjaltalín hélt fast fram þessari skoðun sinni, og í álitsskjali til stjórnarinnar, þegar verið var að undirbúa reglugerð Gagnfræðaskólans á Akureyri, kemst hann svo að orði: »Að binda fjöruga æskumenn á klafa ætla eg að sé það versta uppeldi, sem menn geta gefið þeim. Mentun, og meina eg með því, að gera manninn að manni, þróast ekki svo til nytja verði, nema í frelsi, og eigi síður við það, að sá er mentast vill, hafi við nokkra erfiðleika að berjast«. 1 þessum orðum kemur eiginlega fram stefna Hjalta- líns sem skólastjóra. Hann ætlaði lærisveinum sínum að leysa af hendi erfið verk, en hann vildi láta þá sjálfráða um það, hvernig þeir verðu frístundum sínum. Hann hafði óbifanlega trú á hið góða í mannssálinni, en að sama skapi hafði hann ótrú á öllum þvingunarlögum. En hóf er bezt í hverjum hlut, segir máltækið. Tak- markalaust frelsi getur auðveldlega leitt til sjálfræðis og agaleysis, sem geta haft hinar verstu afleiðingar. Að stefna Hjaltalíns lánaðist vel, er einkum því að þakka, að lærisveinarnir voru góðir og skólastjórinn ekki síður afburðamaður. Flestir þeir menn, sem á Möðruvallaskólann komu, voru um og yfir tvítugt. Sumir jafnvel komnir að þrítugu.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.