Jazzblaðið - 01.09.1952, Page 16
— Eru góðir einleikarar í hljómsveit-
inni?
— Já, sumir þeir beztu í Englandi.
Trompetleikarinn Jimmy Deuchar er lang
beztur. Er mér nær að halda að hann sé
í hópi meztu jazztrompetleikara sem nú
eru uppi. Trompetleikarinn Jimmy Watson
er einnig góður. Altóistinn Derek Humble
er einnig skínandi. Hann leikur stíl sem
minnir mann nokkuð á Konitz en þá um
leið Parker. Mack Minshull okkar bezti
trombónleikari lék í hljómsveitinni en er
nýhættur. Trommuleikarinn Phil Seamen er
mjög góður. Áreiðanlega bezti trommuleik-
arinn í Evrópu í stórri hljómsveit.
— Nokkrir aðrir enskir jazzleikarar, sem
þú vilt nef na?
— Já, þeir eru margir góðir, eiginlega
of margir til að ég fari að telja þá alla upp
og ætla ég því aðeins að nefna einn, sem
að ég held að sé mesti jazzleikari sem
nokkurntíman hefur komið fram í Eng-
landi. Á ég þar við hinn átján ára gamla
Victor Feldman. Hann er lang bezti víbra-
fónleikarinn okkar, ef ekki sá bezti í heim-
inum. Hann er einnig bezti jazzpíanóleikar-
inn okkar, leikur öðru vísi en allir aðrir,
og flestir vita, að þegar hann er setztur á
bak við trommurnar þá er enginn hon-
um fremri. Það eru reyndar til trommu-
leikarar sem leika betri rhythma en hann,
en þegar hann leikur sóló þá fallast þeim
öllum hendur. Tæknin er svo gífurleg.
Hann er líka búinn að leika á trommur
frá því að hann var smábarn. Hann lék
með Glenn Miller hljómsveitinni þegar hún
var í Englandi í síðasta stríði, þá var hann
víst um tíu ára. Og auk þess er hann
skínandi útsetjari og hefur samið nokkur
ágætis jazzlög. Já, svo sannarlega mesti
jazzleikari sem fæðst hefur í Englandi.
— Gætirðu að endingu gefið jazzleikur-
unum hér nokkur heilræði?
— Ekki annað en það, að þeir þurfa að
leika miklu meira. Koma eins oft saman og
þeir mögulega geta til að leika. Það kost-
ar tíma og kannske stundum peninga, en
menn verða oftast nær að borga með sér
ef þeir ætla að verða góðir jazzleikarar,
svo það þýðir ekki að setja það fyrir sig,
auk þess hafa þeir flestir góðar stöður
í danshljómsveitum. Til að verða góður
jazzleikari er fyrsta atriðið að leika jazz
sem oftast. Allir eru þeir á réttri leið, eða
í það minnsta þeir sem ég heyrði í, ég
vona að hinir séu það líka. Komið bara
oftar saman og leikið jazz. S. G.
Ronnie Scott. — Framh. af hls. 5.
á hljómleikum og dansleik á Akureyri, dans-
leik á Selfossi og dansleik í Sandgerði.
Síðan voru hljómleikai-nir endurteknir í
Gamla Bíó mánudaginn 1. sept. og fór
Ronnie Scott með flugvél til London strax
og hann hafði leikið fjögur lög. íslending-
arnir héldu uppi síðari hluta hljómleik-
anna, en tókst ekki eins vel og skyldi
þar sem Ronnie varð að fara svo snemma
og gat ekki tekið þátt í sessioninni í lok
hljómleikanna.
Hingaðkoma Ronnie Scott markar stórt
spor í sögu jazzins hér á landi. Jazzleik-
ararnir hafa allir orðið fyrir miklum á-
hrifum vegna leiks hans, sérstaklega þeir
er fengu tækifæri til að leika með honum.
Er vonandi að jazzleikur okkar manna
eigi eftir að taka miklum framförum, því
ekki þrætum við fyrir, að íslenzkir jazz-
leikarar hafa staðið erlendum jazzleikurum
talsvert að baki. En með komu manna eins
og Lee Konitz og Ronnie Scott er að verða
breyting á, áður en langt um líður munum
við hafa eignast hóp jazzleikara, sem er
þess megnugur að gera hið sama og fremstu
menn annara þjóða á sviði jazzins. Það
þarf að sjálfsögðu að fá menn eins og
Lee og Ronnie hingað sem oftast til að
læra af þeim og byggja upp eftir því, mun
þá árangurinn fljótlega koma í ljós.
16 #a~ltaSiS