Jazzblaðið - 01.09.1952, Qupperneq 18
FLASH!
Ronnie Scott er hættur hjá Jack Parnell
og hefur stofnað eigin hljómsveit. Nánar
í næsta blaði.
HANLON .
Þau mistök urðu í síðasta blaði, að það
fórst fyrir að geta þess, að hinar ágætu
myndir, sem birtust í blaðinu af Ronnie
Scott voru góðfúslega lánaðar af Hanlon,
ljósmyndara enska músikblaðsins Musical
Express. Hanlon er með kunnari mynda-
tökumönnum í London og hefur hann lagt
sig sérstaklega fram við að taka mynd-
ir af jazzleikurum. Hélt hann m. a. fyrir
nokkru opinbera ljósmyndasýningu í
London, þar sem hann sjndi aðeins mynd-
ir af jazzleikurum.
Vonumst við til að geta birt í framtíð-
inni, fleiri myndir eftir þennan ágæta
ljósmyndara.
MÚSIK-STJÖRNUR.
Eins og sjá má í auglýsingu á öðrum
stað í blaðinu þá gefst jazzunendum og
öðrum tækifæri til að eignast fyrsta flokks
ljósmyndir af þeim erlendu listamönnum
er hingað hafa komið í seinni tíð, — og
jafnframt þeim er von er á bráðlega.
Til að byrja með verður hægt að fá
myndir af sex listamönnum: Tyree Glenn,
Lee Konitz, Ronnie Scott, Toralf Tollefsen,
Marie Bryant og Mike McKenzie. Verð
hverrar myndar er kr. 7, en hægt er að fá
þær allar sex fyrir kr. 35.
Bráðlega verður hægt að hafa til sölu
jafnframt fyrrgreindum myndum, myndir
af íslenzkum hljóðfæraleikurum. Verður
nánar skýrt frá því í næsta blaði.
Jazzheimsókn ...
Frh. af bls. 3.
er völ verður á. Auk þessa munu ein eða
tvær aðrar hljómsveitir koma fram á hljóm-
leikunum og jafnvel fleiri söngvarar, eða
öllu heldur söngkvartet, en eins og stendur
gat klúbburinn ekki gefið blaðinu endan-
legar upplýsingar um það.
Það er von blaðsins að sem flestir fjöl-
menni á þessa hljómleika og láti ekki þetta
einstaka tækifæri ganga sér úr greipum.
Sagt hefur það verið...
„Tristano/Konitz stílnum hefi ég ekki
nokkurn tíma til að skipta mér af, og held
ég að hann muni hafa lítinn eða engan
rétt á sér þegar að saga nútíma jazzins
verður skrifuð“.
Steve Race í Jazz Journal, Maí ,52.
„Öllu því unga fólki, sem nýlega hefur
fengið áhuga fyrir jazzinum, bendi ég á,
að hlusta á hljómsveit Count Basie þó, ekki
væri nema til að sannfærast um, að „riff“
er endilega ekki alltaf leiðinlegt, og að
stór hljómsveit getur leikið alveg eins góð-
an jazz og sjö-manna „New Orleans“-
hljómsveit".
Sinclair Traill í Jazz Journal, Maí ’52.
„Vald Svíans Arne Domnerus yfir altó-
saxófóninum er fullkomið, tónn hans er
óaðfinnanlegur (kannske kaldur) og það
sem mestu máli skiptir, þar sem hann er
jazzleikari — hugmyndir hans eru hans
eigin“.
Steve Race í Jazz Journal, Júní ,52.
Hafnarstræti 5 . Laufásvegi 19
18 flazzLtaáií
f