Morgunblaðið - 29.05.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.05.2009, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 9. M A Í 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 144. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is «AÐALSKONA VIKUNNAR LÍFIÐ ER SÁTT OG SAMVISKUSEMI «HJALTALÍN ÁSAMT KAMMERSVEIT  Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is FØROYA Tele, stærsta fjarskipta- fyrirtæki Færeyja, hefur haft sam- band við Landsbankann vegna hugs- anlegra kaupa á Vodafone á Íslandi, samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins. Føroya Tele er í eigu færeyska ríkisins og er í beinni samkeppni við Vodafone í Færeyjum, sem er dótt- urfélag Teymis, móðurfélags Voda- fone á Íslandi. Á grundvelli nauða- samnings Teymis mun bankinn fara með 57,2% hlutafjár í Teymi, en á fimmtudag í næstu viku á fundi lán- ardrottna kemur í ljós hvort samn- ingurinn fær brautargengi. Lands- bankinn var langstærsti lánar- drottinn Teymis. Fjölmörg fyrirtæki hafa haft sam- band við Landsbankann undanfarið með fyrirspurnir um Vodafone. Ef bankinn ákveður að selja eignarhlut sinn í náinni framtíð verður það að- eins að undangengnu ströngu og gegnsæju tilboðsferli, en nýlega stofnaði bankinn tvö umsýslufélög vegna yfirtekinna eigna. | 16 Føroya Tele vill kaupa Vodafone Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is GJÖLD hækka á áfengi, tóbak, bensín og olíu nú þegar frumvarp Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra þess efnis hefur verið samþykkt. Gjöld á áfengi og tóbak hækka um 15%, bens- íngjald hækkar um 10 krónur á lítrann en olíugjaldið um fimm krónur. Þá hækka bifreiðagjöld um 10%. Áætlað er að þetta skili 4,4 milljörðum í rík- issjóð á ári. Þar af eiga álögur á áfengi og tóbak að skila 1.700 milljónum. Hermann Guðmundsson, forstjóri N1 segir álögurnar á eldsneyti nú mjög miklar miðað við fyrir nokkrum mánuðum. „Stjórnvöld hafa nú hækk- að eldsneytisverð um 16 krónur á fáum vikum og eru álögur ríkisins nú í hæstu hæðum.“ Forstjóri Skeljungs, Einar Örn Ólafsson, heitir á stjórn- völd að ná árangri í gengismálunum svo að hækkunin gangi til baka. Félag íslenskra bifreiðaeigenda sagði yfirvöld í skattavíking gegn bif- reiðaeign og -notkun landsmanna. Fulltrúar bæði SA og ASÍ mættu fyr- ir þingnefndir í gærkvöldi og töluðu samkvæmt heimildum mjög gegn frumvarpinu þar. Þórður B. Sigurðs- son, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, segir að setja hefði átt há- mark á verðtrygginguna áður en farið var út í svona aðgerðir, svo að þær spiluðu ekki með skuldir heimilanna. Hann talar um ríkisverðbólgu. 8 milljarðar á bök heimilanna Tryggvi Þór Herbertsson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, sagði í umræðum á Alþingi í gærkvöldi að frumvarpið þýddi 2,7 milljarða króna tekjuauka ríkisins á þessu ári, en átta milljarða hækkun á skuldum heimil- anna. Hagfræðingar sem rætt var við í gærkvöldi rengja ekki þessa fullyrð- ingu, hún sé nokkuð nærri lagi. Þór- ólfur Matthíasson prófessor bætir því þó við að tekjuaukinn komi strax í rík- issjóð en skuldaaukningin leggist á á næstu áratugum. Tryggvi beri því saman epli og appelsínur. Gylfi Zoëga prófessor rengir ekki heldur fullyrð- ingu Tryggva Þórs. Enginn góður kostur sé hins vegar í stöðunni, þótt mismunandi skattahækkanir hafi mismunandi áhrif.  Sækja milljarða 4 Mjög óvinsælar aðgerðir Óánægja heyrist úr öllum hornum með skattahækkanir Steingríms í gærkvöldi  SIGRÍÐUR Björnsdóttir, for- maður félagsins Blátt áfram, fagnar átta ára fangels- isdómi Hæstaréttar yfir manni sem beitti stjúpdóttur sína kynferðisof- beldi um árabil. Sig- ríður vonar að dómurinn verði þol- endum hvatning til þess að kæra. »2 Fagnar þyngsta dóminum fyrir kynferðisofbeldi Sigríður Björnsdóttir SUNNLENDINGAR eru enn að vinna úr afleiðingum jarðskjálft- anna sem riðu yfir fyrir sléttu ári og færðu Hveragerði um 15-20 cm. Gróðurhúsin í Fagrahvammi í Hveragerði skemmdust ásamt tækjabúnaði og var ekki talið borga sig að gera við. Ekki verður byggt upp að sinni og því verða Fagra- hvammsrósirnar þekktu ekki rækt- aðar þar næstu árin. »12 Ár liðið frá jarð- skjálfta                     Morgunblaðið/RAX HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK R E Y K J A V Í K U N I V E R S I T Y LÖGFRÆÐI BA / ML LÁTTU TIL ÞÍN TAKA! W W W .H R .I S Umsóknarfrestur er til 31. maí VIÐ HRSérblað um TÍSKU fylgir Morgunblaðinu í dag Lífstíl Förðun Heilsa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.