Morgunblaðið - 29.05.2009, Side 27

Morgunblaðið - 29.05.2009, Side 27
Minningar 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2009 ✝ Guðmundur ÖrnSverrisson fædd- ist 10. maí 1982. Hann lést af slysförum 19. maí sl. Foreldrar hans eru Þórdís Ágústa Guðmunds- dóttir og Sverrir Pét- ursson. Fósturfaðir er Alfons Jónsson. Hálf- systur hans eru Krist- rún Jenný og Marisa Vala. Föðurforeldrar eru Valgerður Sig- urðardóttir og Pétur Þorbjörnsson. Móð- urforeldrar eru Kristrún J. Valdi- marsdóttir og Guðmundur Guð- varðarson, d. 2. maí 1987. Útför Guðmundar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 29. maí, kl. 13. Elsku Gummi minn. Litli, stóri sólargeislinn minn. Þetta er afskaplega þung ganga, sem ég hefði gjarnan vilja sleppa, en lífið er skrítið fyrirbæri sem enginn ræður nema sá sem öllu ræður. Ég veit þú ert kominn á betri stað, þar sem vel var tekið á móti þér. Farðu vel með þig, elska þig af öllu mínu hjarta. Sjáumst síðar. Hvíl í friði. Þín mamma, Þórdís Ágústa Guðmundsdóttir. Gummi var fóstursonur minn og er ég þakklátur fyrir að hafa gengið með honum þá lífsleið sem faðir, þar sem pabbi hans býr erlendis. Þau ár sem ég fékk með elsku Gumma mínum voru góð og gáfu okkur meðbyr gegn- um lífið. Gummi var mikill bílaáhuga- maður, elskaði flotta og kraftmikla bíla. Hann fór vel með þá bíla sem hann átti, og ef hann heyrði einhver hljóð kom hann strax til mín til að skoða hvað væri að. Nú er elsku Gummi minn farinn frá okkur, sem kom alltaf til mín með öll hljóð, stór eða smá. Ég þakka þér Guð faðir fyrir að hafa fengið að hafa Gumma minn þessi ár sem ég var með honum. Guð- mundur Örn, ég mun ávallt sakna þín, þú varst mér sem sonur. Hvíl í friði. Alfons Jónsson. Það er svo erfitt að meðtaka þetta elsku Gummi minn. Hvað ég á eftir að sakna þín elsku drengur, eins ljúfur og yndislegur og þú varst. Þegar Gummi litli fæddist þurfti að setja gifs á annan fótinn á honum. Vegna þessa þurfti hann að fara í ótal aðgerðir á fætinum sínum. Það var al- veg aðdáunarvert hversu duglegur hann var, þótt stundum væri erfitt fyrir hann að hreyfa sig, sér í lagi skólagangan þar sem hann þurfti að styðja sig við hækju, koma svo til ömmu og afa og þurfa að labba stig- ana, en ekki gafst hann upp. Hann var mikið afa- og ömmubarn og eyddi mörgum kærkomnum stundum með okkur, sat við eldhúsborðið að læra, borðaði brúnköku og drakk kalda mjólk. Hann hafði gaman af því að mála enda með eindæmum vandvirk- ur. Elsku hjartans strákurinn minn, vona að þér líði betur, elsku vinur. Hvíl í friði. Þín amma, Kristrún Valdimarsdóttir. Elsku Gummi frændi. Hvað er hægt að segja á svona stundu? Það eina sem maður getur gert er að hugsa um gömlu góðu dag- ana. Ég man eftir þegar þú komst til okkar 1988 til Bandaríkjanna, við vor- um alltaf að keppa um hvor okkar ætti að sitja í aftursætinu í húsbílnum okk- ar. Alltaf þurftum við að vilja það sama í gamla daga. Þegar við fjöl- skyldan fluttum aftur heim tókuð þú, mamma þín og amma á móti okkur með opnum örmum sem þú gerðir við alla sem þú kynntist. Hugsaðir vel um okkur Atla Inga þegar við vorum að fóta okkur í nýju umhverfi. Svo kom Hagaskóli, hjólabrettin og svo auðvit- að stelpurnar. Við höfð- um nú alltaf gaman hvor af öðrum og skemmtun okkur vel saman, hvort sem það var á djamminu eða bara í fjölskylduboðum. Daginn sem við Hild- ur giftum okkur varstu meira en til í að stússast í kringum okkur og vera bílstjórinn minn í þann tíma sem ég þurfti. Skötuveislan sem þú hélst hjá ömmu var alveg frábær. Takk fyrir allar góðu stundirnar. Hvíldu í friði elsku frændi. Kári Ingi Atlason. Elskulegi bróðir minn, hví varstu tekinn frá mér? Hví ert þú ekki hjá mér? Ég skil ekki, veit ekki, hví ert þú ekki hér. Þó veit ég að þú ert á fallegum stað, þar sem engin neikvæðni eða hatur eiga sér stað. Hin eina sanna paradís. Þar sem himinninn er blár, fallegri en nokkru sinni fyrr, Þar sem grasið er grænt sem aldrei fyrr. Þar sem bjórinn er kaldur sem jök- ull og ferskari en nýblómstraður ávöxtur. Eitt veit ég fyrir víst, að á endanum munum við hittast á ný, sú ást og hamingja mun umvefjast mér að vera komin til þín á ný. Kristrún Jenny Alfonsdóttir. Það er erfitt að trúa að þú sért far- inn frá okkur, man svo vel eftir því þegar þú passaðir mig í Hagaskóla, finnst eins og það hefði skeð í gær. Kenndir mér á hjólabretti, svo var það tímabilið sem allt snerist um körfu- boltamyndir. Við skiptumst á mynd- um, svo lést þú mig fá helling af þínum myndum sem ég á ennþá. Það eru engin orð sem lýsa því hversu mikið ég mun sakna þín frændi, ég mun aldrei gleyma þér og öllum þeim skemmtilegu stundum sem við áttum saman. Ég veit að þú ert kominn á betri stað og þér líður vel. Þar til við hittumst næst kveð ég þig. Hvíl í friði. Atli Ingi Atlason. Í dag kveðjum við Gumma frænda okkar. Mikið getur lífið verið óréttlátt, en á svona sorgartíma reynir maður að hugsa um góðu og skemmtilegu tímana. Frændi minn fékk hjá mér viðurnefnið litli glókollur, hann var svo ljóshærður og sætur. Gummi var snyrtipinni alheimsins, það sást best á honum sjálfum, bílnum hans og her- bergi. Hann vildi alltaf hafa hreint og flott í kringum sig. Hann var greiða- gjarn ef hann mögulega gat og unni mömmu sinni systur og ömmu mikið. Hann var vinmargur, og á hans yngri árum var alltaf mikið að gerast í kringum hann og hans vini. Hann missti besta vin sinn árið 2000 og eftir það var einsog öll hans lífsorka væri horfin. Það vantaði þennan lífsneista sem hann hafði alltaf. Elsku frændi, við vonum svo inni- lega að þér líði betur núna og engl- arnir taki utan um þig, elski þig og varðveiti. Elsku systir mín, Rúna og Alli, það er mikill missir að missa hann Gumma, það er stórt skarð komið í þessa litlu fjölskyldu. Við höldum áfram og höldum minningu hans í hjarta okkar. Takk fyrir samveruna, elsku frændi. Hvíl í friði. Guðrún V. Guðmundsdóttir. Gummi minn, ég man það vel þegar ég hitti þig fyrst. Ætli ég hafi ekki ver- ið fjögurra ára. Það var mikill snjór úti og ég sé lítinn ljóshærðan, bláeygðan strák koma labbandi til mín á planinu fyrir utan húsin okkar sem spurði hvort ég vildi leika, svo bauðst þú mér heim til þín. Ég man ennþá að þú varst með fullt af litlum dótabílum og búinn að raða þeim saman í röð og reglu sem var svo einkennandi fyrir þig. Upp frá þessu þróaðist mikil vinátta sem varð að dögum, mánuðum og árum. Þegar ég rifja upp gamlar minning- ar man ég sérstaklega eftir að við vor- um með lítið upptökutæki og tókum upp raddirnar okkar og sungum há- stöfum. Ég man að við skellihlógum þegar við heyrðum í sjálfum okkur. Við hlustuðum oft á Michael Jackson og hoppuðum í sófanum og hlupum um stofuna, svo kom mamma þín og hægði á leiknum en um leið og hún var farin hófust lætin að nýju. Við gerðum nánast allt saman. Hvort sem það var fótbolti, körfubolti eða hjólabretti að ógleymdu karatenámskeiðinu og í ein- um karatetímanum vorum við eitthvað þreyttir og geispuðum mikið. Við höf- um getað hlegið fram á þennan dag þegar við rifjum upp svipinn sem kom á þjálfarann þegar hann sá geispana, en hann fór eftir ströngum japönskum agavenjum. Ég minnist margra prakkarastrika sem við gerðum og skemmtum okkur við að rifja upp. Ég man þegar systir þín fæddist, hún Kristrún, hvað þú varst spenntur og stoltur. Þetta er bara lítið brot af öllum þeim góðu minningum sem ég á. Við vorum litlir, reynslulausir pottormar og alvara lífsins ekki ennþá tekin við. Ég finn að þessar minningar vekja með mér hlýju og hve sárt ég sakna þín. Ég er í raun ekki búinn að átta mig á því að þú sért farinn, en þú ert á góðum stað og fylgist með okkur og gefur okkur styrk. Þú varst ávallt minn besti vinur og það varst þú sem alltaf stóðst með mér þegar ég átti í erfiðleikum, en ég gat alltaf leitað til þín hvort sem það var dagur eða nótt. Þú varst mér góður vinur. Ég votta Ágústu, Kristrúnu, Alfons og fjölskyldum ykkar mína dýpstu samúð. Þinn vinur, Örn. Elsku Gummi minn. Að setjast niður og skrifa þessi orð tekur mig þyngra en tárum taki. Ég hef þekkt þig frá fæðingu og það að þurfa að kveðja þig í dag er óraun- verulegt. Ég man svo vel þegar ég passaði þig lítinn dreng. Ætli það hafi ekki verið fyrsta ábyrgðarfulla verkefnið mitt þegar ég fékk stundum að sækja þig í leikskólann með strætó. Ég man þegar Summi bróðir dró þig um allt á snjóþotu, man þegar þú fórst í allar aðgerðirnar á fætinum, man hve mikið þér þótti bílskúrinn hjá pabba spennandi. Ég hugsa til allra gamlárskvöldanna á Brekkustíg og hversu oft þú heimsóttir mig í blóma- búðina. Ég minnist þess hve montinn þú varst þegar þú eignaðist litlu syst- ur þína Kristrúnu og hversu óendan- lega góðhjartaður þú varst. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Við erum öll vanmáttug gagnvart dauðanum og lífið hefur sinn gang. Eftir standa minningar um góðan og fallegan dreng sem ég var svo heppin að fá að kynnast. Ég mun alltaf sakna þín Gummi minn. Guð geymi þig. Elsku Gústa, Alli, Kristrún Jenný, Kristrún og Sverrir, Guð styrki ykkur í sorginni. Ágústa Valdís Jónsdóttir. Nú sit ég hér elsku Gummi minn með þungt fyrir brjósti og reyni að átta mig á þessu öllu saman. Ég trúi þessu ekki ennþá. Aldrei nokkurn tímann grunaði mig að ég ætti eftir að skrifa minningargrein um þig. Þú varst alltaf svo glaður þegar þú komst og hittir okkur og varst alltaf að bralla eitthvað nýtt í sambandi við bíla. Ég gleymi aldrei stundunum sem við átt- um saman elsku frændi minn, en ég hef ákveðið að ég vil eiga þær fyrir sjálfan mig. Við kynntumst ekki af alvöru fyrr en seint á þinni stuttu ævi en gerðum margt skemmtilegt saman. Ég gleymi því heldur aldrei hversu góður þú varst við Védísi mína, gafst henni allt- af jólagjafir og í hvert skipti sem við töluðum saman var eitt af því fyrsta sem þú spurðir hvernig hún hefði það. Sambandið á milli okkar hafði minnk- að því miður seinustu mánuðina en ég hélt alltaf að við hefðum allan tíma í veröldinni til að bæta úr því. Því finnst mér óendanlega sárt að hafa ekki tek- ið upp símann og slegið á þráðinn. Við höfðum alltaf ráðgert að hittast í léttu spjalli og tala saman um daginn og veginn eða fara út og skemmta okkur saman. Núna verður aldrei af því. Ég veit að þú ert núna á mun betri stað með bros á vör. Loks þegar hlutirnir voru farnir að líta betur út hjá þér þá fellur þú frá. Lífið er ekki sanngjarnt. Ég veit þó að þú munt vaka yfir Védísi og passa upp á hana á hennar lífsleið. Elsku Sverrir, Ágústa, Alli, Rúna og aðrir aðstandendur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Guð gefi ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Þinn frændi, Egill. Guðmundur Örn Sverrisson                          ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, MAGNÚSAR FINNBOGASONAR frá Lágafelli, Gilsbakka 2, Hvolsvelli. Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilisins Kirkjuhvols fyrir góða umönnun. Auður Hermannsdóttir, Vilborg Magnúsdóttir, Gunnar Hermannsson, Finnbogi Magnússon, Þórey Pálsdóttir, Ragnhildur Magnúsdóttir, Guðmundur Erlendsson og barnabörn. ✝ Konan mín, SONJA GUÐLAUGSDÓTTIR, Sandholti 7, Ólafsvík, verður jarðsungin frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 30. maí kl. 14.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Helgi Kristjánsson. ✝ Elskulegur faðir minn og sonur, ÁRNI RAGNAR ÁRNASON, Þrastargötu 8, Reykjavík, sem lést af slysförum fimmtudaginn 21. maí, verður jarðsunginn frá Neskirkju þriðjudaginn 2. júní kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hans er bent á reikning 0115 -14-750663 kt. 250797-2579. Elmar Freyr Árnason, Ingigerður R. Árnadóttir. ✝ Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN ERLINGUR ÞORLÁKSSON tryggingastærðfræðingur, lést á líknardeild Landspítala Landakoti fimmtu- daginn 28. maí. Sigrún Brynjólfsdóttir, Brynjólfur Jónsson, Dagný Guðnadóttir, Þorlákur Jónsson, Anna Guðrún Ívarsdóttir, Þorgerður Jónsdóttir, Guðrún Ragnheiður Jónsdóttir, Jón Erlingur Jónsson, Anna Stefánsdóttir, Þuríður Jónsdóttir, Atli Ingólfsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.