Morgunblaðið - 29.05.2009, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 29.05.2009, Blaðsíða 16
16 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2009 Þetta helst ... ● VELTA á skuldabréfamarkaði nam 10,7 milljörðum króna í viðskiptum gærdagsins og hækkuðu nær allir skuldabréfaflokkar ríkissjóðs og Íbúða- lánasjóðs í verði. Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins má rekja hluta hækkunarinnar til þess að nýir verð- bréfasjóðir bankanna sæki nú í auknum mæli í styttri ríkisskuldabréf, sem leiði til verðhækkunar. bjarni@mbl.is Eftirsótt skuldabréf ● Í Morgunblaðinu í gær var fjallað um tengsl Jóns Kr. Sólnes og Jóns Þor- steins Jónssonar í gegnum félagið Njarðarnes. Rétt er að árétta að Njarð- arnes er 100% í eigu Byrs sparisjóðs og gegna þeir störfum fyrir félagið vegna starfa og stjórnarsetu í spari- sjóðnum. Er því ekki um persónuleg fjárhagsleg tengsl að ræða, að því er segir í athugasemd frá sparisjóðnum. Njarðarnes var áður í eigu Sparisjóðs Norðlendinga og var sett á laggirnar á sínum tíma vegna fasteignaverkefna, samkvæmt upplýsingum frá Byr. thorbjorn@mbl.is Njarðarnes í eigu Byrs Eftir Helga Vífil Júlíusson helgivifill@mbl.is GJALDEYRISEFTIRLITIÐ, ný deild hjá Seðlabankanum, tekur til starfa eftir helgi til þess að auka eft- irlit með gjaldeyrishöftum, sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins. Ingibjörg Guðbjartsdóttir lög- fræðingur mun leiða þennan þriggja manna starfshóp. Hún starfaði áður hjá Straumi fjárfestingarbanka. Gjaldeyriseftirlitið mun fylgjast með krónueignum erlendra aðila og skilaskyldu innlendra aðila. Hafa ber í huga að gjaldeyrismiðlun er leyf- isskyld starfsemi frá Fjármálaeftir- litinu. Slíkt eftirlit er þó ekki nýlunda hjá Seðlabankanum. Hann hefur haft eftirlit með þessum þáttum og vísað nokkrum málum til Fjármálaeftir- litsins, sem bíða niðurstöðu. Morg- unblaðið fékk ekki upplýsingar um hve mörg mál er að ræða frá Seðla- bankum. Gjaldeyrishöftum var komið á í nóvember í kjölfar bankahrunsins síðastliðið haust til þess að stemma stigu við útflæði erlends gjaldeyris með það fyrir augum að styrkja krónuna, en gengi krónu féll við bankahrunið. Höftin voru aukin í apríl því gengi krónu hafði sigið, þrátt fyrir gjaldeyrishöft. Talsverður munur hefur verið á gengi krónu hér á landi og erlendis. Hann hefur þó minnkað. Það er því hægt að hagnast á mismuninum. Samkvæmt upplýsingum Reuters kostar evran 210 krónur en 178 sam- kvæmt Seðlabankanum. Seðlabankinn herðir eftir- lit með gjaldeyrishöftum Eftirlit stofnað hálfu ári eftir setningu laga um gjaldeyrishöft is Íslandsbanka á Árvakri í þessu samhengi. Landsbankinn mun fara með eign- arhlut sinn í Teymi í samræmi við svokallaða Lundúnaleið, en bankinn hefur stofnað sérstök eignaumsýslu- félög til að fara með eignir sem bank- inn tekur yfir vegna erfiðleika skuld- ara. Um er að ræða Regin ehf. undir stjórn Helga Gunnarssonar, fyrrver- andi framvæmdastjóri Portusar, og Vestia ehf. sem Steinþór Baldursson stýrir, en hann var yfir fyrirtækjaráð- gjöf Landsbankans og kom að und- irbúningi Icesave-reikninganna. Færeyingar vilja kaupa Vodafone Þreifingar átt sér stað milli Landsbankans og Føroya Tele Morgunblaðið/Golli Skútuvogur Føroya Tele hefur haft samband við Landsbankann vegna Vodafone Íslandi, en bankinn fer með 57,2% hlutafjár í móðurfélaginu. Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is FÆREYSKA fjarskiptafyrirtækið Føroya Tele er meðal þeirra fyrir- tækja sem hafa haft samband við Landsbankann með það fyrir augum að kaupa Vodafone á Íslandi, sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær hafa fjölmörg fyrirtæki haft samband við bankann og lýst yfir áhuga á Vodafone á Íslandi. Fyrir- tækið er eitt af níu dótturfélögum Teymis en sem kunnugt er hefur fyr- irtækið leitað nauðasamninga. Ef nauðasamningur Teymis verður samþykktur á fundi lánardrottna á fimmtudaginn í næstu viku mun Landsbankinn eignast 57,2% í félag- inu og þar með sama eignarhlut í Vodafone, en Landsbankinn var lang- stærsti kröfuhafi félagsins. Í samkeppni í Færeyjum Ef Vodafone yrði selt Føroya Tele myndi það setja félagið í athyglis- verða stöðu, því helsti samkeppnis- aðili þess í Færeyjum er Vodafone Føroya, sem er einmitt í eigu Teymis. Ekki fékkst uppgefið hjá Lands- bankanum í gær hvort eða hvenær af sölu Vodafone verður. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum verður tilboðsferli, ef af því verður, opið og gegnsætt og tilkynnt með formlegum hætti. Er vísað til söluferl- Í HNOTSKURN »FjarskiptafyrirtækiðFøroya Tele er það stærsta sinnar tegundar í Færeyjum og er í eigu fær- eyska ríkisins. »Fyrirtækið er í beinni sam-keppni við Vodafone Föro- ya, sem starfaði áður undir nafninu Kall P/F. Vodafone Föroya er í eigu Teymis. Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is STÍFAR viðræður hafa staðið yfir undanfarna tvo daga á milli Exista og kröfuhafa félagsins um hvernig framtíðarskipulagi þess verði háttað. Meðal annars var haldinn stór kröfuhafafundur á miðvikudagsmorgun þar sem fulltrúar stærstu er- lendu kröfuhafa félagsins voru mættir að borðinu. Stærstu innlendu kröfuhafarnir, skilanefndir gömlu bankanna og Nýja Kaupþing, hafa þó ekki slegið af kröfum sínum um að þeir vilji taka félagið yfir og að stjórnendur þess víki. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins skiptast kröfuhafarnir í tvær fylkingar. Skila- nefndir gömlu bankanna vilja ganga fram af hörku og taka yfir Exista en erlendu kröfuhafarnir og líf- eyrissjóðirnir vilja stíga varlegar til jarðar. Í miðj- unni er svo Nýja Kaupþing. Nýja Kaupþing og skilanefndirnar sendu Ex- ista bréf fyrir síðustu helgi þar sem bankarnir fóru fram á að fá að taka yfir félagið og að stjórn- endur þess myndu víkja. Þeirri kröfu var hafnað og Exista-menn brugðust harkalega við henni. Af- staða deiluaðila hvors til annars hefur þó mildast töluvert á síðustu dögum. Í viðræðunum er samt lögð ofuráhersla á að kröfuhafar muni ráða ferð- inni hjá Exista, en ekki þykir ráðlegt að setja fé- lagið í þrot. Ástæðan er sú að nauðsynlegt þykir að halda rekstri dótturfélaga Exista, eins og Síman- um og VÍS, eðlilegum. Viðmælendur Morgun- blaðsins úr hópi kröfuhafa virðast þó á einu máli um að eign hluthafa í Exista verði líklegast færð niður og að kröfuhafarnir eignist það að fullu. Framtíð Exista undir  Stífir fundir síðustu daga um framtíð Exista  Kröfuhafar krefjast enn að fá að stjórna félaginu Morgunblaðið/Eggert Stjórnendur Áhersla er lögð á að setja Exista ekki í þrot vegna mikilvægis dótturfélaga. SAMKVÆMT upplýsingum frá Teymi hefur fyrirtækið svarað fyr- irspurnum Kauphallarinnar vegna meintra brota á reglum um upplýs- ingaskyldu og afkomuviðvörun og telur að málið sé í eðlilegum far- vegi. Teymi lítur svo á að fyrirtækið hafi uppfyllt upplýsingaskyldu um tilkynningu á bakfærslu hækkunar á bókfærðu verði farsímakerfis Vodafone. Í fylgiskjali með nauða- samningi félagsins sem stjórn Teymis samþykkti 17. apríl var hækkun á bókfærðu verði kerfisins bakfærð, en kerfið var fært upp til gangvirðis á fyrsta ársfjórðungi í fyrra og við það hækkaði verðmæti þess um 5,4 ma.kr. Kauphöllin er nú að athuga hvort Teymi hafi ekki verið skylt að tilkynna þessa ákvörðun um leið og hún var tekin, enda er fyrirtækið með skráð skuldabréf í Kauphöllinni og um að ræða upplýsingar sem kunna að vera verðmótandi. Algengir skilmálar í lánasamn- ingum eru ákvæði um gjaldfelling- arheimildir vegna lækkunar á eig- infjárstöðu. Við uppfærslu á virði farsímakerfis Vodafone hækkaði eigið fé Teymis um 4,6 milljarða króna. Engar vísbendingar eru um að tengsl séu á milli hækkunar bók- færðs virðis farsímakerfisins og lánasamninga Teymis. thorbjorn@mbl.is Telja sig uppfylla skyldur Teymi svarar Kauphöllinni ()* ()*      + + ()* .,* !"#$ $"  %  + + - .!  ""/ $!& & !# %' % + + 012 -* &!'$$ &!''   & + + ()*/ ()*03  "  # %   + + Viðskipti með krónur eiga sér stað erlendis sem Seðlabanki Íslands getur ekki fylgst með. Ekki er vitað hversu umfangs- mikil þessi viðskipti eru. Ekkert óeðlilegt þarf að vera við þessi viðskipti ef ekki er um að ræða gjaldeyri innlendra aðila sem lúta skilaskyldu. Fyrrverandi bankastarfsmenn hér á landi hafa séð tækifæri í því að para saman fólk sem vill selja krónur og fá gjaldeyri í staðinn, til dæmis evrur. Þetta geta verið erlendir aðilar sem vilja losna við krónurnar og Ís- lendingar sem eiga gjaldeyri og þurfa krónur. Þá er betra að kaupa ódýrar krónur erlendis en skipta þeim á Íslandi. Kringum höftin KAUPHÖLLIN hefur ákveðið að áminna Stoðir/FL Group, Eglu, Nýsi, Landic Property og Existu opinberlega og beita þau févíti vegna brota á reglum fyrir útgef- endur fjármálagjörninga. Févítin eru allt að 1,5 milljónir króna. Brot- in eru vegna þess að félögin birtu ekki ársreikninga sína opinberlega fyrir árin 2008 innan þeirra tíma- marka sem þeim bar að gera það. Stoðir/FL Group, Exista, Landic Property og Nýsir þurfa öll að greiða 1,5 milljónir króna í févíti auk þess að þau verða áminnt op- inberlega. Egla þarf að greiða eina milljón króna. Félögin ákváðu öll að nýta sér undanþáguheimilid í lögum um verðbréfaviðskipti til að skila ekki ársreikningum sínum, en það áttu þau að gera í síðasta lagi fyrir apr- íllok samkvæmt samningi sínum við Kauphöllina. Stoðir mótmæltu áminningunni í gær og sögðu hana órökstudda. Félagið hefði sinnt upplýsingaskyldu. thordur@mbl.is Fimm félög áminnt Morgunblaðið/G.Rúnar ● Nokkrir stofn- fjáreigendur í Byr sparisjóði eru að að skoða þann möguleika að krefjast sérstaks fundar stofnfjár- eigenda. Eig- endur 10% stofnfjár geta óskað eftir slíkum fundi á grundvelli samþykkta Byrs. Séu skilyrði uppfyllt þarf stjórn Byrs að boða til fund- arins innan fjórtán daga. Óánægja er meðal ákveðinna stofn- fjáreigenda í Byr vegna umboðs sem Ágúst Ármann fékk til að greiða at- kvæði á aðalfundi sparisjóðsins 13. maí síðastliðinn fyrir Karen Millen. Efast þeir um lögmæti umboðsins. Millen hafi ekki verið á lista yfir stofnfjáreigendur í sam- ræmi við 8. grein samþykkta Byrs. FME er með málið til skoðunar. Skoða boðun fundar stofnfjáreigenda

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.