Morgunblaðið - 29.05.2009, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 29.05.2009, Blaðsíða 26
✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, dóttir mín og systir okkar, GUÐFINNA ÓSKARSDÓTTIR, Höfðavegi 28, Vestmannaeyjum, verður jarðsungin frá Hvítasunnukirkjunni í Vest- mannaeyjum laugardaginn 30. maí kl. 14.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Jóhönnu Jónasdóttur frá Grundarbrekku – Kristniboðasjóð. Samúðarkort fást hjá Önnu í síma 481 1711, Kristjönu í síma 481 1616 og Sigurbjörgu í síma 481 1916. Magnús Þór Jónasson, Þórarinn Magnússon, Elín Ósk Magnúsdóttir, Sævar Þór Magnússon, Elín Jónasdóttir, Haukur Óskarsson, Guðlaug Óskarsdóttir. 26 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2009 ✝ Björg Steindórs-dóttir fæddist á Þrastarhóli í Arn- arneshreppi í Eyja- firði 21. október 1912. Hún lést á Kristnes- spítala 19. maí sl. Björg var dóttir hjónanna Vigfúsar Steindórs Ásgríms- sonar, f. 20. ágúst 1883, d. 13. febrúar 1955, og Elínar Guð- rúnar Magnúsdóttur, f. 29. september 1871, d. 1. janúar 1922. Systir hennar var Guðrún, f. 7. september 1910, d. 5. október 1971. Eftir fráfall móður Bjargar og Guð- rúnar ólust þær áfram upp á Þrast- arhóli til fullorðinsára á vegum föð- urbróður þeirra Þórhalls Ásgrímssonar, f. 17. maí 1887, d. 5. mars 1954, og konu hans Sólveigar Sigjónsdóttur, f. 30. mai 1885, d. 9. júní 1969. Faðir þeirra og fyr- irvinna stundaði þá ýmis störf bæði til lands og sjávar. Hinn 7. júlí 1934 giftist Björg Höskuldi Magnússyni bónda og kennara í Skriðu í Hörgárdal, f. 8. október 1906, d. 27. janúar 1944. Sonur þeirra var Þórhallur, sókn- arprestur á Möðruvöllum í Hörg- árdal og síðar á Akureyri, f. 16. Sigluvík á Svalbarðsströnd, f. 24. apríl 1913, d. 20. september 1998. Dóttir þeirra er Hulda hjúkr- unarfræðingur, f. 11. ágúst 1950, gift Gesti Jónssyni bankastarfs- manni, f. 31. maí 1948. Synir þeirra eru: 1) Kristján fasteignasali, f. 17. ágúst 1974, kvæntur Ingibjörgu Dagnýju Jóhannsdóttur kennara, f. 31. desember 1973. Börn þeirra eru Birta Huld, f. 28. nóvember 1999, og Karl Lúkas, f. 11. ágúst 2006. 2) Jón Ásgeir kennari, f. 21. júní 1978, unnusta Hrund Steingrímsdóttir viðskiptafræðingur, f. 2. júní 1977. 3) Árni Björn háskólanemi, f. 28. apríl 1988. Björg var húsfreyja í Skriðu í Hörgárdal frá árinu 1934 til 1949 en þá fluttist hún til Akureyrar þar sem heimili hennar var frá árinu 1951 í Grænumýri 7. Hún stundaði nám við Húsmæðraskólann á Blönduósi veturinn 1932-1933 og framhaldsnám í vefnaði við sama skóla árið 1934. Björg vann ýmis störf utan heimilis, mest við sauma- störf, en lengst af vann hún hjá Hót- el Eddu á Akureyri. Hún sat í stjórn Kvenfélags Hörgdæla í rúm 30 ár og var gerð að heiðursfélaga þess árið 1976. Einnig starfaði hún með Kvenfélagi Akureyrarkirkju og Kvennadeild Slysavarnafélags Akureyrar um árabil. Útför Bjargar verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag, 29. maí, og hefst athöfnin kl. 13.30. nóvember 1942, d. 7. október 1995. Eig- inkona hans er Þóra Steinunn Gísladóttir sérkennari og fyrr- verandi skólastjóri, f. 1. desember 1941. Börn þeirra eru: 1) Björg sópransöng- kona og hjúkr- unarfræðingur, f. 27. nóvember 1964. 2) Höskuldur Þór al- þingismaður og lög- fræðingur, f. 8. maí 1973. Kona hans er Þórey Árnadóttir viðskiptafræð- ingur, f. 29. maí 1975, börn þeirra eru Steinunn Glóey, f. 11. janúar 2003, Fanney Björg, f. 9. febrúar 2006, og Þórhallur Árni, f. 12. febr- úar 2008. 3) Anna Kristín lækna- kandídat, f. 26. júní 1983, unnusti Runólfur Viðar Guðmundsson verk- fræðingur. Sonur Þóru Steinunnar og stjúpsonur Þórhalls er 4) Gísli Sigurjón Jónsson vélstjóri, f. 9. júlí 1958. Sonur hans er Bjarni Þór verkfræðingur, f. 18. apríl 1980, kvæntur Guðrúnu Ólafsdóttur kennara, f. 6. apríl 1982, dóttir þeirra er Ingunn Erla, f. 1. ágúst 2005. Hinn 25. desember 1949 giftist Björg Kristjáni Sævaldssyni frá Drjúpi dropar Drottins náðar, á hjartans helgustu rósir. Svo að barnsára besti gróður endist allt þitt líf. Þessa vísu orti Árni Björnsson, kennari á Akureyri, til Bjargar frænku sinnar á fermingardegi henn- ar. Vísan var elskulegri tengdamóður minni afar hjartfólgin eins og annað sem frændi hennar orti og varð leið- arstjarna á hennar löngu vegferð. Björg eða Bogga eins og hún var jafnan nefnd af fjölskyldu og vinum fæddist og ólst upp á Þrastarhóli í Arnarneshreppi. Níu ára gömul missti hún móður sína en hún og systir hennar nutu þeirrar gæfu að eiga góða að og ólust þær upp við gott atlæti hjá Þórhalli föðurbóður sínum og Sólveigu konu hans og Ásgrími afa sínum og Guðrúnu ömmu sinni með- an þeirra naut við en þau voru einnig búsett á Þrastarhóli. Bogga var við nám í Húsmæðra- skólanum á Blönduósi og sumarið eftir veru hennar þar hóf hún búskap í Skriðu í Hörgárdal ásamt fyrri manni sínum, Höskuldi Magnússyni, en hann lést 1944 eftir erfið veikindi. Eftir andlát Höskuldar bjó hún áfram í Skriðu með ungan son sinn, Þórhall, í félagsbúi með tengdafor- eldrum sínum, Finni mági sínum og Ragnheiði konu hans. Árið 1949 giftist Bogga seinni manni sínum, Kristjáni, og fluttu þau þá til Akureyrar, í Þórunnarstræti 103. Árið 1951 fluttu þau í Grænu- mýri 7 og þar var hún búsett þar til hún fór á hjúkrunarheimilið Sel við FSA árið 2000. Það varð Boggu þung raun þegar sonur hennar, séra Þórhallur, lést langt um aldur fram og Kristján eig- inmaður hennar þrem árum síðar. Tengdamóðir mín tók þessum miklu áföllum af sama æðruleysi og öðrum áföllum sem hún hafði orðið að takast á við á lífsleiðinni og sýndi mikinn sálarstyrk og þrek. Bogga var heilsteypt kona og trú- uð. Hún var dugnaðaforkur, mikil húsmóðir, greind kona og minnug með afbrigðum og var gædd góðum frásagnargáfum. Heiðarleiki og rétt- sýni var henni í blóð borin. Bogga var félagslynd og starfaði ötullega að ýmsum félagsmálum. Fjölskyldan vill færa öllu starfsfólki í Seli alúðar- þakkir fyrir alla þeirra umhyggju og elskusemi við Björgu og fjölskyldu hennar, en hún dvaldi í Seli í rúm 8 ár. Einnig viljum við færa starfsfólki á Kristnesspítala innilegar þakkir fyrir góða umönnun, en þar dvaldi hún síðustu mánuði ævi sinnar eftir að Seli var lokað. Nú er komið að kveðjustund. Eftir stendur minning um einstaka móður, tengdamóður og ömmu. Ég þakka fyrir allt það góða sem hún var mér og fjölskyldu minni og allan kærleika sem hún gaf okkur í gegnum lífið og þá hlýju og vináttu sem hún sýndi mér frá fyrstu kynnum. Hér fylgir lokaerindið í ljóði sem Steindór, faðir Bjargar, flutti við útför Elínar eig- inkonu sinnar og móður Bjargar: Þér voru indæl áraskifti eftir hérvistar gengna braut; élinu þunga loks af lyfti liðin og unnin sérhver þraut. Guðs englar syngja sigurlag og sólarljóð um frelsis dag. Megi góður Guð gefa okkur styrk og blessa okkur allar góðu minning- arnar. Minningin um einstaka og stór- brotna konu lifir. Gestur Jónsson. Amma mín og nafna hefur nú kvatt þennan heim á nítugasta og sjöunda aldursári. Þótt hjarta mitt gleðjist og þakki að hún fékk loks hvíldina sem hún þráði, þá er söknuðurinn mikill. Hún var svo stór hluti af lífi okkar allra í fjölskyldunni. Hún átti viðburðaríka og góða ævi og naut mikillar gæfu í lífinu þrátt fyrir stór áföll sem mörkuðu djúp spor á lífsgöngu hennar. Hún var sterk kona og trúuð. Hún bjó yfir einstöku æðruleysi og innri styrk, auðmýkt fyrir lífinu og því sem það hefur að færa, dugnaði og þraut- seigju. Það ásamt hennar glaða sinni hjálpaði henni að takast á við sorgina og söknuðinn sem áföllunum fylgdi. Trúin var þar hennar styrkasta stoð. Hún sótti styrk í bænina og ljóðin sem hún lærði á sínum yngri árum. Það ljóð sem hafði mest áhrif á hana og má segja að hafi verið hornsteinn allrar hennar tilveru var ljóð frænda hennar og uppáhaldsvinar, Árna Björnssonar, sem hann orti til henn- ar þegar hún var 15 ára: Oft af lífsins geislaglóð glampar fölna og dvína. Reyndu að geyma í sálarsjóð sólskinsdaga þína. Ein er list, sem ýmsum brást eins og fleiri gátur, sú, að geyma yl og ást æsku og léttan hlátur. Ef að skyggir yfir brá ævivonar þinnar. Reyndu að lauga líf þitt þá ljósi trúarinnar. Hún var einstök amma. Umhyggja hennar fyrir velferð okkar allra var óendanleg. Hjá henni var alltaf opinn og hlýr faðmur, hvatning, takmarka- laus áhugi og óbilandi trú á hæfileika okkar. Hún stóð alltaf með manni alla leið, efaðist aldrei. Það var alltaf sami fögnuðurinn þegar maður birtist og blessunarorðin og góðu óskirnar sem fylgdu þegar maður kvaddi hana voru einstök. Amma var einstök myndarkona til allra verka. Eftir hana liggur fjöldi fallegra hannyrða og íslenskra búninga. Hún saumaði á mig fallega kjóla þegar ég var barn og upphlut saumaði hún á mig þegar ég var 8 ára. Ég fékk þá fallegan rauðan bát á höfuðið en ég vildi fá að vera með skotthúfu eins og amma og mamma. Amma brást mér ekki með það frekar en fyrri daginn, saumaði handa mér skotthúfu og gaf mér fal- legan silfurhólk. Bátinn setti ég aldr- ei upp! Síðustu orð ömmu voru bænarorð, fallegar kveðjur og hlý orð til allra sem hún unni og eilíf þakkarorð fyrir allt sem fyrir hana var gert. Ég þakka Huldu minni sérstaklega fyrir hvernig hún af einstakri umhyggju og alúð hugsaði um ömmu alla tíð og af mikilli fórnfýsi hin síðustu ár. Ég þakka Guði fyrir að hafa gefið mér ömmu og allt það sem hún kenndi mér og gaf. Ég kveð hana með þeim bænarorðum sem hún hafði á vörum þegar hún kvaddi þennan heim: Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) Ég bið algóðan Guð að taka ást- kæra ömmu mína í faðm sinn og blessa okkur sem eftir lifum minn- ingarnar um hana um ókomna tíð. Björg Þórhallsdóttir. Meira: mbl.is/minningar Hún elsku amma mín er fallin frá, 96 ára gömul. Að undanförnu hef ég oft velt fyrir mér hvað amma hefur lifað fjölbreytta tíma. Ekki bara að hún hafi verið þátttakandi á mestu umbrotatímum íslensks þjóðfélags heldur upplifði hún bæði gleði og sorg, vonbrigði og sigra. Ef einhver hefur lifað lífinu lifandi með öllu því sem það hefur upp á að bjóða þá var það hún amma mín. Betri ævi gæti ég sjálfur ekki hugsað mér. Síðustu árin voru það allar hlýju minningarnar sem voru henni efst í huga. Öll samtölin um fólkið sem stóð henni næst verða ómetanlegt vega- nesti fyrir mig á komandi tímum. Amma náði í lýsingum sínum alltaf að draga fram bestu eiginleikana í fólk- inu sem hafði kvatt fyrir minn tíma þannig að það stóð ljóslifandi fyrir framan mig. Frásagnir ömmu, sér- staklega um hann Höskuld afa minn, munu gera það að verkum að allt þetta góða fólk verður hluti af mínum eigin minningum. Ég upplifði ömmu mína aldrei öðruvísi en að hún væri klettur í haf- inu. Hlýja og umhyggja sem hægt var að ganga að vísu í Grænumýri 7. Þar tók hún á móti manni bein í baki með opnum örmum og bros á vör. Þú fórst ekki svangur út frá ömmu. Það var tryggt og hvort sem það var steikti fiskurinn, kleinurnar, soðið brauðið eða pönnukökurnar. En þú fórst ekki bara saddur út líkamlega. Amma hafði einstakt lag á því að ná manni niður á jörðina og koma sólargeisla inn í sálina. Hvort sem það var ég eða aðrir í fjölskyld- unni þá bjóst hún aldrei við öðru en því besta af manni. Annað gat það ekki verið. Þessi metnaður hafði líka á sér skemmtilega hlið. Við systkinin fór- um oft og spiluðum við ömmu og afa Kristján. Keppnisandinn var slíkur að þau víluðu ekki fyrir sér að kíkja á spilin hjá okkur og deildu svo um það hvort þeirra væri að hafa rangt við. Alltaf endaði spilamennskan samt í sátt og samlyndi og allir með bros á vör. Minningar mínar um hana ömmu verða alltaf líka minningar um hann afa minn. Yfirvegunin en um leið hin ríka réttlætiskennd voru einkenni hans og alltaf fann maður fyrir hlýj- unni og umhyggjunni. Einstakt sam- band hans og pabba sem hann gekk í föðurstað er mér ofarlega í huga. Það einkenndist af gagnkvæmri virðingu og órjúfanlegri samstöðu. Afi var nefnilega eins og hún amma alltaf til staðar og aldrei skoraðist hann und- an að rétta manni hjálparhönd. Festa, hlýja og umhyggja fyrir mönnum og málefnum er veganesti okkar afkomenda frá henni ömmu. Ég mun alltaf búa að hlýju minning- unum um samveru okkar og vona að eins og ég fékk að njóta frá ömmu minni geti ég sagt mínum afkomend- um frá henni og öllum hinum sem gengu á undan okkur og mörkuðu sporin til framtíðar. Um leið og ég þakka fyrir allar góðu stundirnar og þá sérstaklega stundina um páskana þegar við Eyja hittum ömmu ásamt börnunum okk- ar þeim Steinunni Glóeyju, Fanneyju Björgu og Þórhalli Árna þá vil ég einnig þakka Huldu frænku fyrir að vera alltaf til staðar fyrir ömmu mína. Hlýjan og umhyggjan gengur í erfðir, um það eru þær vitnisburður. Höskuldur Þór Þórhallsson. Svo ljúft er allt í þessum heiða hyl, svo hátt til lofts og mjúkur barmur jarðar, að víst er engin veröld fegri til en vornótt björt í hlíðum Eyjafjarðar. (Davíð Stefánsson.) Í „Nei“, einu bók hins gáfaða ljóð- skálds, Ara Jósefssonar, sem var þekktur að því að vera ómyrkur í máli, er að finna þennan ógleyman- lega sannleik: „Fólk er alveg lygilega gott“. Hann átti þarna við alþýðuna. Franska nóbelsskáldið Albert Ca- mus segir í sömu veru í skáldsögunni „Pestinni“, að þrátt fyrir allt muni búa með mönnunum meira af góðu en illu. Hvar værum við annars stödd? Alþýða þessa heims, öld eftir öld, kynslóð fram af kynslóð, hefur þræl- að sér út, varðveitt lífsneista okkar mannanna, okkar sem nú lifum og komandi kynslóða, af yfirmáta þraut- seigju, auðmýkt og innbornum kær- leika. Og gerir enn. Þótt nöfn þessa fólks sé ekki að finna á spjöldum sög- unnar, lifir það samt hið innra með okkur og djúpt í þjóðarsálinni um aldur. Það sópaði forðum af eyfirsku al- þýðustúlkunni, Björgu Steindórs- dóttur, sem nú kvaddi aldin að árum. Ung giftist hún Höskuldi Magnús- syni, virtu prúðmenni, sem um aldur fram varð berklunum að bráð. Einka- sonur þeirra, séra Þórhallur, valin- kunnur baráttumaður fyrir andleg- um gildum og ósérhlífinn félags- og réttlætishyggjumaður, varð bráð- kvaddur á besta aldri, mannskaði og harmdauði öllum. Eftirlifandi dóttir Bjargar frá síðari hjúskap er Hulda Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðing- ur, hin mætasta kona. Björgu kynntist ég fyrst sem barn í sveitinni, á Skriðu í Hörgárdal. Hún var sterkur persónuleiki og svipmikil mynd hennar máist ekki. Hún var ákveðinn og drífandi dugnaðarfork- ur. Kröfuhörð við sjálfa sig, heil- steypt, siðfáguð og vönd að virðingu sinni, gædd óaðfinnanlegri snyrti- mennsku, nægjusöm, umtalsgóð, greind, fróð og skemmtileg og hafði góða frásagnarhæfileika. Frænd- rækin var hún og vinföst, lét sér annt um annarra hag, ráðholl og hjálpfús. Hjá henni fann maður sig velkominn vegna gestrisni hennar, geislandi brosmildi og viðmóts. Slík manneskja er ein af hinum dæmigerðu fulltrúum hins gegnheila alþýðufólks, sem í hógværð og hlé- drægni var og er hornsteinn hins góða og lífvænlega með þessari þjóð. Ég og við systkinin þökkum sam- fylgdina og vottum hennar nánustu, frændfólki okkar og vinum, innilega samúð. Magnús Skúlason Björg Steindórsdóttir ✝ Elskuleg systir okkar og mágkona, SIGRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR frá Syðstu-Fossum, kennari í Fránsta í Svíþjóð, er látin. Þeir sem vilja minnast hennar láti Krabbameinsfélög njóta þess. Þóra Stella Guðjónsdóttir, Sveinn Gestsson, Sigríður Guðjónsdóttir, Snorri Hjálmarsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.