Fréttablaðið - 01.10.2011, Page 91

Fréttablaðið - 01.10.2011, Page 91
LAUGARDAGUR 1. október 2011 59 Útsölustaðir: Apótek, heilsubúðir, Krónan og Fríhöfnin. www.celsus.is lifestream™ lífræn næring fyrir alla - engin málamiðlun í gæðum. notar Lifestream til að bæta árangur sinn. ™ LIFESTREAM ÓSKAR TIL HAMINGJU MEÐ ÍSLANDSMEISTARATITILINN !! 25% AF JOHN FRIEDA HÁRVÖRUM Í OKTÓBER Poppdívan Beyoncé Knowles hefur sett eiginmanninum Jay-Z skýrar reglur nú þegar hún geng- ur með fyrsta barn þeirra. Söng- konan segist vera ótrúlega næm á lykt og það þýðir að bóndinn verður að gæta að hreinlæti sínu. „Ég finn lyktina af öllu – ólétt- an magnar allt upp. Ef það er vond lykt, þá finn ég hana,“ segir Beyoncé. Þessi næmni hefur haft í för með sér breytingar fyrir rapp- arann Jay-Z. Hann þarf að finna sér nýjan rakspíra: „Ég hef alltaf elskað lyktina sem maðurinn minn notar, en ég þoli hana ekki núna.“ Viðkvæm á meðgöngunni BURT MEÐ RAKSPÍRANN Beyoncé hefur skipað Jay-Z að skipta um rakspíra því hún þolir ekki lyktina af þeim sem hann notar núna. NORDICPHOTOS/GETTY Tónlistarmaðurinn Þórir Georg tók upp sína nýjustu plötu, Afsakið, á aðeins tíu klukkustundum. Þetta er fyrsta sólóplatan hans á íslensku. „Ég hef alltaf skrifað á íslensku líka. Núna átti ég svo mikið af lögum að mig langaði að gefa þau út á plötu,“ segir Þórir. Spurður um tímann sem fór í upptökurnar segir hann: „Ég eyddi svona tíu klukku- tímum í að gera þessa plötu, hámark. Þegar ég var búinn að semja lögin eyddi ég einu laugardagskvöldi í að taka hana upp og einum sunnudegi í að klára að vinna hana. Ég tók hana upp sjálfur eins og ég hef eigin lega alltaf gert en munurinn var að núna var ég með tilbúin lög og ákvað bara: „Ég ætla að taka þau upp í kvöld“.“ Afsakið er fyrsta plata Þóris undir eigin nafni. Áður hefur hann gefið út þrjár undir nafninu My Summer As a Salvation Soldier og kom sú fyrsta, I Believe in This, út 2004 við góðar undirtektir tónlistargagnrýnenda. Vegleg safnplata með því besta af plötunum þremur er einmitt væntanleg. Tónlist Þóris er sem fyrr melódísk og tregablandin með persónulegum sögum hans úr daglegu lífi í fyrirrúmi. „Þetta er ekkert ólíkt því sem ég var að semja á ensku. Þetta er mín útgáfa á mannfræði. Ég er að rannsaka mig og fólkið í kringum mig.“ Þórir hefur einnig starfað með Gavin Portland, Fighting Shit, The Deathmetal Supersquad og Ofvitunum. Plata með pönk- sveitinni síðast nefndu kom einmitt út í sumar. - fb Tíu klukkutíma með eina plötu PLATA Á TÍU TÍMUM Þórir eyddi aðeins tíu klukkustundum í að taka upp sína nýjustu plötu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Courtney Love hefur undirritað samning við bókaforlagið Willi- am Morrow um útgáfu sjálfsævi- sögu. Í bókinni fjallar hún um hjónaband sitt við Kurt Cobain, fyrrum söngvara Nirvana, og feril sinn sem rokkstjarna og leikkona. Einnig fjallar hún um sambönd sín við aðrar stjörnur og dótturina Frances Bean. Fyrr á þessu ári sagði rithöfundurinn Neil Strauss frá því að Love hefði boðið honum að sjúga ösku Cobains uppi í nefið á sér er hann ræddi við hana á heimili hennar í tengslum við bók sína Everyone Loves You When You Are Dead: Journeys into Fame and Mad- ness. Love með ævisögu RITAR ENDURMINNINGAR Courtney Love ætlar að rita endurminningar sínar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.