Morgunblaðið - 06.10.2010, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2010
Guðbjartur Hannesson stýrði fjár-laganefnd þegar hún fjallaði
um Icesave-samninginn fræga.
Hann fékk á sig íslenska furðustimp-
ilinn þegar hann svaraði í hvert sinn
sem stórfréttir bárust af því máli:
„Ég sé ekki að neitt
nýtt hafi gerst.“
Talið var að þaðhafi helst minnt
á ummæli skipstjór-
ans á Titanic forðum
tíð, sem taldi að ekk-
ert nýtt hefði gerst
þegar skipið kyssti ísjakann.
Þjóðin hafði með hörkunni framþjóðaratkvæðagreiðslu um Ice-
save. Guðbjartur formaður taldi það
enn eitt öruggt merki um „að ekkert
nýtt“ hefði gerst í málinu.
Formenn stjórnarflokkannasögðu þjóðaratkvæðagreiðsl-
una rugl þar sem „nýtt tilboð lægi á
borðinu.“ ( Það tilboð liggur enn á
borðinu, en vandinn er sá að borðið
virðist týnt). Þess vegna myndu þau
ekki taka þátt í henni og hvöttu aðra
til að gera slíkt hið sama.
Fólkið gaf foringjunum langt nef,fjölmennti á kjörstað og felldi
Icesave með stórbrotnum yfirburð-
um.
Guðbjartur sá í hendi sér að þarmeð hefði ekkert nýtt gerst í
málinu.
Og nú hefur Guðbjartur veriðverðlaunaður fyrir staðfestu
sína og verið gerður að of-
urráðherra norrænna velferð-
armála.
Sjálfsagt er hann alveg sann-færður um að ekkert nýtt hafi
gerst á Austurvelli mánudaginn 4
október.
Guðbjartur
Hannesson
Ekkert nýtt gerðist
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 5.10., kl. 18.00
Reykjavík 9 skýjað
Bolungarvík 5 rigning
Akureyri 8 skýjað
Egilsstaðir 11 skýjað
Kirkjubæjarkl. 10 skúrir
Nuuk 5 skýjað
Þórshöfn 11 þoka
Ósló 11 skýjað
Kaupmannahöfn 12 skýjað
Stokkhólmur 10 skýjað
Helsinki 7 heiðskírt
Lúxemborg 13 skýjað
Brussel 17 skýjað
Dublin 15 léttskýjað
Glasgow 15 léttskýjað
London 17 léttskýjað
París 17 skúrir
Amsterdam 18 léttskýjað
Hamborg 17 heiðskírt
Berlín 15 skýjað
Vín 10 súld
Moskva 7 léttskýjað
Algarve 21 heiðskírt
Madríd 22 heiðskírt
Barcelona 22 léttskýjað
Mallorca 23 léttskýjað
Róm 22 léttskýjað
Aþena 20 léttskýjað
Winnipeg 16 heiðskírt
Montreal 16 léttskýjað
New York 13 alskýjað
Chicago 16 heiðskírt
Orlando 25 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
6. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:52 18:41
ÍSAFJÖRÐUR 8:00 18:42
SIGLUFJÖRÐUR 7:43 18:25
DJÚPIVOGUR 7:22 18:10
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Kvikuholan við Vítismó í grennd við
Kröflu hefur blásið af krafti síðustu
mánuði. Hún hefur verið aflmæld og er
ljóst að hún er með kraftmestu borhol-
um hérlendis. Talið er að holan gæti
gefið allt að 27 MW, en til samanburð-
ar má nefna að um 20 borholur eru
nýttar til að framleiða um 60 megawött
í Kröfluvirkjun.
Holan var hin fyrsta í svokölluðu
djúpborunarverkefni, sem er sam-
starfsverkefni innlendra og erlendra
aðila. Bora átti niður í um 4.500 metra,
en borunin fékk snöggan endi í júní í
fyrra er hraunkvika kom upp af um
2.100 metrum og borinn stóð fastur. Til
að varpa ljósi á það dýpi sem bormenn
voru að vinna á má nefna að turn Hall-
grímskirkju er 73 metrar á hæð.
Strax síðasta sumar komu upp hug-
myndir um að virkja kvikuholuna,
sem endaði í sjóðandi hrauninu, og
nýta síðan til raforkuframleiðslu í
Kröfluvirkjun. Kostnaður við bor-
unina nam um 1,5 milljörðum króna
og er Landsvirkjun eigandi holunnar.
Vökvinn erfiður viðureignar
„Það er ljóst að þessi borhola getur
gefið mikið af orku,“ segir Bjarni
Pálsson, verkfræðingur hjá Lands-
virkjun Power. „Holan gefur 32 kíló
af mjög heitri gufu á sekúndu og úr
henni væri hægt að fá 17 til 27 mega-
wött eftir því hvernig túrbína verður
fyrir valinu. Ef orkan yrði nýtt í nú-
verandi Kröflustöð þá gæfi hún 17-20
megawött, en ef keypt yrði túrbína,
sem væri sniðin að þessari holu og
gufugerðinni þá gæfi hún 25-27 mega-
wött. Það er fimmföld meðalhola í
Kröflu.
Vandinn er hins vegar sá að vökv-
inn sem við fáum er erfiður viðureign-
ar þar sem mikið klórgas er í honum
og hætta er á sýrutæringu í lögninni.
Við þurfum að koma gufunni í öruggt
ástand til að setja inn á túrbínu. Það
er í sjálfu sér þekkt vandamál, en
þarna er verkefnið af annarri stærð-
argráðu en áður hefur verið glímt við.
Við þurfum líka að tryggja að holan
endist,“ segir Bjarni.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun
um framhald djúpborunarverkefnis-
ins. Á eftir borun í Vítismó var fyr-
irhugað að bora á Hellisheiði og
Reykjanesi, en aðstæður orkufyrir-
tækja hafa breyst á síðustu árum.
Auk Landsvirkjunar standa OR, HS,
Orkustofnun, Alcoa og Statoil að
rannsóknum á holunni við Vítismó.
Þekkingarsetur í jarðhitanýtingu
Í gær var haldinn fundur í stýrihópi
um djúpborunarverkefnið í tengslum
við alþjóðlega fundi um jarðhita og
nýtingu sem haldnir eru hér á landi í
þessari viku. Hingað til lands eru
komnir yfir 100 erlendir sérfræðingar,
tengdir jarðhita, úr fjórum heimsálfum
vegna þessara funda, sem ÍSOR og
Orkustofnun beittu sér fyrir að haldnir
yrðu hér í sömu vikunni.
„Það er athyglisvert að margar al-
þjóðlegar stofnanir kjósa að halda ráð-
stefnur og fundi á Íslandi og í því felst
ákveðin viðurkenning á því starfi sem
hér er unnið. Menn líta á Ísland sem
ákveðið þekkingarsetur í jarðhita-
nýtingu,“ segir Bjarni Pálsson.
Kvikuholan eins og
fimm Kröfluholur
Borholan við Vítismó gæti gefið allt að 27 megawött
Djúpborun
Á rúmlega tveggja kílómetra dýpi
kom borinn niður á hraunkviku.
Kraftmiklar holur
» Þrjár holur Orkuveitu
Reykjavíkur á Hellisheiði gefa
hver um sig um eða yfir 20
MW.
» Í Hverahlíð þurfti að end-
urfóðra öfluga holu og er búist
við að hún geti gefið um 20
MW eftir þrengingu, en ekki 25
megawött eins og áður var
áætlað.
» Kraftmestu holur Hitaveitu
Suðurnesja á Reykjanesi gefa
nú um og yfir 15 megawött.
„Verði þetta nið-
urstaðan er ein-
faldlega verið að
leggja niður heil-
brigðisþjónustu í
Vestmanna-
eyjum í þeirri
mynd sem við
höfum hingað til
þekkt. Fjárlaga-
frumvarpið er
ekki bara illa unnið heldur nánast
óunnið hvað þessar hugmyndir
varðar,“ segir Elliði Vignisson, bæj-
arstjóri í Vestmannaeyjum, um boð-
aðan niðurskurð í frumvarpinu á
framlögum til Heilbrigðisstofnunar
Vestmannaeyja um 37% á næsta
fjárlagaári. Elliði segir ekkert sam-
band hafa verið haft við heima-
menn, hvorki sveitarstjórn né
starfsmenn Heilbrigðisstofnunar.
Verið að leggja
heilbrigðisþjónustu
niður í Eyjum
Elliði Vignisson
Háfell ehf. átti langlægsta tilboðið í
seinni áfanga Suðurstrandarvegs
en tilboðið var um 41,3% af þeim
kostnaði sem Vegagerðin hafði
áætlað. Tilboðið hljóðaði upp á tæp-
lega 179 milljónir króna en áætl-
aður kostnaður var 433 milljónir.
Alls bárust 15 tilboð í verkið.
Næstlægsta tilboðið í Suður-
strandarveg var frá Suðurverki hf.
sem bauðst til að leggja veginn fyr-
ir 242,3 milljónir. Tilboð þeirra var
því um 63,4 milljónum hærra en
Háfells og nam 56% af áætluðu
kostnaðarverði Vegagerðarinnar.
Ingileifur Jónsson ehf. átti þriðja
lægsta boð, 259,2 milljónir.
Háfell bauð 41% af
kostnaðaráætlun
Röng
mynd
Röng mynd birt-
ist með frétt um
góðan árangur
Eddu Gunn-
arsdóttur Thors
fatahönnuðar á
baksíðu Morg-
unblaðsins á mánudag. Beðist er vel-
virðingar á þessu.
LEIÐRÉTT