Morgunblaðið - 06.10.2010, Page 11
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gleði Þær eru einstaklega brosmildar systurnar Maricia og Silbene og sú síðarnefnda er mikill ástríðukokkur.
Ég valdi seinni kostinn og hvatti
Marciu til að prófa eitthvað nýtt og
flytja til Íslands. Marcia er menntað-
ur kennari og fór úr góðu starfi til að
freista gæfunnar og ég er auðvitað al-
sæl með hennar ákvörðun og að hafa
fengið hana til mín,“ segir Silbene.
Og Íslandsförin varð örlagarík
ákvörðun fyrir Marciu því nú hefur
hún eignast íslenskan eiginmann og
þau eiga saman ársgamla dóttur sem
heitir Eduarda. Sú stutta er heilmikið
með mömmu sinni í vinnunni enda
tíðkast í þeirra heimalandi að börnin
séu á vappi í kringum foreldrana í
vinnunni, ef því verður við komið.
Gott að vera í kuldanum
En hvernig var fyrir þær að að-
lagast kalda veðrinu hér, komandi frá
hinni heitu Suður-Ameríku?
„Vissulega var það skrýtið til að
byrja með en núna kunnum við bara
vel við það, það er ákveðinn léttir að
vera ekki alltaf í rosalegum hita. Í
heimabænum okkar, Cuiaba, fer hit-
inn stundum upp í 46 gráður og það
er mjög þrúgandi. Auk þess hefur
húðin á mér aldrei þolað mikinn hita
og ég fékk mjög slæm útbrot og þess
vegna flutti ég til ömmu minnar í St.
Paulo. Ég bjó þar um tíma, en einmitt
þar kynntist ég íslensku vinum mín-
um sem urðu til þess að ég kom hing-
að upphaflega fyrir fimm árum, til að
heimsækja þá,“ segir Silbene og bæt-
ir við að þær hafi kynnst mörgu góðu
fólki hér á Íslandi og mætt mikilli vin-
semd. „Það eina sem vantar er fjör-
mikið karnival, eða kjötkveðjuhátíð.
Hver veit nema við stöndum fyrir al-
mennilegu brasilísku karnivali hér í
miðbænum einn góðan veðurdag, lát-
um loka Laugveginum og höldum lit-
ríka dans- og gleðihátíð.“
Þær segjast vissulega sakna
margs að heiman en þó aðallega
fólksins síns. Silbene segist hafa farið
á hverju ári í heimsókn til Brasilíu,
áður en hún opnaði veitingastaðinn.
„En núna get ég það ekki lengur, ég
gef allt mitt í þennan stað og vil hafa
fulla einbeitingu. Og ábyrgðin er mín.
Ég get ekki stokkið frá staðnum mín-
um,“ segir Silbene og hvetur fólk til
að koma á brasilíska veitingastaðinn
og prófa brasilískan mat. „Með því að
borða hér fær fólk að kynnast bragð-
inu af Brasilíu, því þetta er ekki bara
matur, líka upplifun. Fólki líður vel
sem kemur hingað, við leggjum upp
úr því að hafa heimilislegt og afslapp-
að andrúmsloft. Gestir okkar eru
hluti af fjölskyldunni. Brasilískir vinir
okkar sem búa á Íslandi koma mikið
hingað með börnin sín og það skapar
ákveðna stemningu.“
Girnilegt brauð Mikið er lagt upp úr meðlæti í brasilískri matargerð.
Fallegur Brasilískur matur er ekki aðeins bragðgóður heldur líka litríkur.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2010
Nýtt hefti
Þjóðmál – tímarit um stjórnmál og
menningu – hefur nú komið út í fimm ár
undir ritstjórn Jakobs F. Ásgeirssonar.
Þjóðmál koma út fjórum sinnum á ári –
vetur, sumar, vor og haust. Tímaritið fæst
í lausasölu í helstu bókabúðum og nokkrum
stórmörkuðum, en ársáskrift kostar aðeins
4.500 kr.
Hægt er að gerast áskrifandi
á vefsíðunni www.thjodmal.is
eða í síma 698-9140.
www.thjodmal.is Bókafélagið Ugla
!
"
#
!
$"
%
&
'(
)*
+
'
+ &
)
"
,+
+
-
.
/ 0
1
!"#
$%&'
(
$!) *
! +"!
",
-
23 +
43
56 7889
:;
<3288
&'.
/-
0
-
1
+(
-"
!02/
"0!&/
+
/ '
".-+
)(..
1 !.
-
*
&"
"
=
" !
&
&
(
* >
!
!
(
=
+ +"
!
& >
& 3
1
!
&
*
*
?
&
?
*
" +
!
(
&3
?
( &
"
*
! @
3
(
3
* !
-
*
?
+
!
*
A
! +
+
A
&
&
!
&
1 6
706
12
900
006
35
!
"! # $! ! %&'( )**+ % , -!.**
!
" #$ %&
' ( $ #
#
/0
1
23 45
6
)
*
+&,$
7 3
8
4 9 !
-./ %012/'/3%%43
:
5
.50 "././%43
%56/0/ 1233./%%43
;
/637% %8"/.
<
/2% 3%%43
4
9 )0"%%43
=
3
.:2/ '/3 30+%+3
>
#
4/%5+033 9%%43
?
@
1233.212/ ;2%%43
5 6
.13./ 3.%%43
: A
-4;30%5.-2/<
9 3
4 3
4
4 5
! " # $
%& $
'(
)
%
* #
%
+ ,
-
! .
, /( 0
12 3 1 % 4 %
!" #$%&!''()*'!
.
2
.5
6 . 7!8 96
. " 4: 1 6
8 4
.5 :
:;
<; = >; ?@ AB<B
? C <;DBB
;
"#) '+,+%#" #$
%'-."*/, / 01 2,3 $
2 % %
% <D; 2
$ #
# :
8 2E
;
)*!,!-!4("5&%,)6
#$ ,!7+ !$"!
!
"
#
$%
#
& '
(
)
*
+
&
$
, -
'
. / ' ,
- &$'
0
) / ' 1 # #
'
. )
'
, &
'.
2. &
1 3. 45 2676
8 7.966 .
! "#$%#
#!&'()
)
'
$
,
. / ,
,
' &
#' , -
,.
+'
) (: &$ #,
&
,
#
,. / ,
-
0
#
)$ # '
#
$ ,
).
*!$#*% +))(
,!-.(/-!!0((
%#$!&%0 $)1(,%$-.
Gangahlaupið var haldið á laugardag-
inn í tilefni opnunar Héðinsfjarð-
arganga á milli Siglufjarðar og Ólafs-
fjarðar, boðið var upp á tvær
vegalengdir 12 km í gegnum nýju
göngin og 27 km í gegnum öll fern
göngin í sveitarfélaginu.
Alls tók 71 hlaupari þátt í hlaup-
unum en mun fleiri fóru á hjólum og
hjólaskíðum í gegnum göngin.
Í kvennaflokki sigraði Sigríður Ein-
arsdóttir í 12 km og Rannveig Odds-
dóttir í 27 km. Í karlaflokki sigraði
Sigurbjörn Árni Arngrímsson í 12 km
og Stefán Viðar Sigtryggsson í 27
km.
Hlaup
Gangahlaupið
27 km Stefán Viðar Sigtryggsson og
Rannveig Oddsdóttir sigurvegarar.
„Uppáhaldsveðrið mitt eru stillur
og bjartviðri, sem sagt gott útivist-
arveður. Það eru reyndar tvær hlið-
ar á þessu því brjálað veður og
ófærð er alltaf í svolitlu uppáhaldi
líka,“ segir Þór-
anna Pálsdóttir
veðurfræðingur
spurð út í uppá-
haldsveðrið sitt.
Þóranna er úti-
vistarkona og
því eðlilegt að
stillur séu í
uppáhaldi.
„Það er að-
allega vindurinn
sem skiptir máli.
Á meðan það eru
stillur eða frekar hægur vindur, er
mér alveg sama hvort það er
smáúrkoma, sólskin eða skýjað.
Það er oftast þurrast og hægast í
maí og júní og er sá árstími í uppá-
haldi hjá mér.
Svo skiptir líka máli hvar maður
er á landinu hvaða veður er í uppá-
haldi, mér finnst best að hafa still-
ur í Reykjavík og á hálendinu. Þeg-
ar ég er fyrir norðan vil ég hafa
suðaustanátt. Það er líka gaman
þegar veðrið lætur á sér kræla, lík-
lega finnst mér það vegna þess ég
vinn með veðrið,“ segir Þóranna.
Uppáhaldsveður
Þórönnu Pálsdóttur
Morgunblaðið/Ómar
Vetur Stillur og snjór fara vel saman.
Stillur og
bjartviðri
Þóranna
Pálsdóttir
300 g þorskur
100 g rækjur
1 rauð paprika
1 græn paprika
1 rauðlaukur
1 hvítlauksrif
1 rauður chilli
1dl kókosmjólk
Salt og pipar eftir smekk.
Fyrst er byrjað á að steikja
laukinn, paprikuna, hvítlaukinn
og rækjurnar. Steikt í rúmar 2
mínútur. Eftir það er kók-
osmjólkinni hellt út í. Tóm-
atsósu er bætt út í til að fá fal-
legan lit. Ekki gleyma að salta
og pipra eftir smekk. Einnig er
hægt að bæta kóríander eða
perseley eftir smekk. Eftir að
allt þetta er komið að suðu er
fiskurinn settur út í og látið
malla í 10 mínútur.
Muqueca
Bahiana
FISKRÉTTUR