Morgunblaðið - 06.10.2010, Síða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2010
Vilja samstarf við Geert Wilders
Kristilegir demókratar í Hollandi samþykkja myndun minnihlutastjórnar
Flokkur Wilders styður stjórnina gegn því að hann hafi áhrif á stefnu hennar
Þingmenn Kristilegra demókrata í Hollandi sam-
þykktu einróma í gær samkomulag um myndun
minnihlutastjórnar með stuðningi Frelsisflokks-
ins (PVV), flokks Geerts Wilders, sem er þekkt-
astur fyrir andstöðu sína við íslam.
Maxime Verhagen, leiðtogi Kristilegra demó-
krata, sagði að allir þingmenn flokksins hefðu
samþykkt stjórnarsáttmála hans og hægriflokks-
ins VVD á fundi í Haag í gær. Frelsisflokkurinn
fær ekki aðild að stjórninni en tryggir henni meiri-
hluta í atkvæðagreiðslum á þinginu gegn því að
hann hafi áhrif á stefnu hennar.
Ætlar að banna búrkur
Wilders hefur sagt að stjórn hægriflokkanna
ætli meðal annars að banna búrkur og draga úr
innflutningi fólks um helming, m.a. með strangari
skilyrðum fyrir því að veita útlendingum hæli sem
flóttamönnum.
Frelsisflokkurinn er mjög umdeildur og Wild-
ers hefur verið sóttur til saka í Hollandi fyrir
hatursáróður gegn múslímum. Hann á yfir höfði
sér allt að árs fangelsi og sekt fyrir að lýsa íslam
sem „fasisma“ og líkja Kóraninum við „Mein
Kampf“, bók Hitlers.
Evrópski þjóðarflokkurinn (EPP), þingflokkur
hægri- og miðjumanna á Evrópuþinginu, hefur
gagnrýnt Kristilega demókrata og VVD fyrir að
fallast á samstarf við Frelsisflokkinn.
VVD fékk mest fylgi í þingkosningunum í Hol-
landi í júní og 31 sæti af 150. Kristilegir demókrat-
ar fengu 21 sæti og fylgi þeirra minnkaði um helm-
ing. Flokkurinn hefur verið í nær öllum
ríkisstjórnum sem myndaðar hafa verið í Hollandi
frá síðari heimsstyrjöldinni.
Fylgi Frelsisflokksins stórjókst í kosningunum
og þingmönnum hans fjölgaði úr níu í 24.
Eftir samþykkt þingflokks kristilegra demó-
krata er ekkert talið því til fyrirstöðu að Beatrix
drottning veiti Mark Rutte, leiðtoga VVD, form-
legt umboð til að mynda ríkisstjórn. bogi@mbl.is
Frelsisflokkurinn er mjög um-
deildur og Geert Wilders hef-
ur verið sóttur til saka í Hol-
landi fyrir hatursáróður gegn
múslímum.
Orðrómur er á kreiki í Suður-
Kóreu um að Kim Jong-Un, ríkis-
arfi í Norður-Kóreu, hafi gengist
undir lýtaaðgerð til að líkjast
meira afa sínum, Kim Il-Sung,
fyrsta forseta kommúnistaríkisins.
Orðrómurinn komst á kreik eft-
ir að fjölmiðlar í Norður-Kóreu
birtu í fyrsta skipti mynd af arf-
takanum sem er um það bil 27 ára
gamall.
Jong-Un þykir nauðalíkur afa
sínum, með bústnar kinnar, undir-
höku og niðurdregin munnvik eins
og hann.
Mörgum Suður-Kóreumönnum
þykir þetta grunsamlegt vegna
þess að Kim Jong-Un þótti ekkert
líkur afa sínum á myndum sem
teknar voru af honum þegar hann
var yngri. Suðurkóresk dagblöð
segja að hann hljóti að hafa geng-
ist undir aðgerð til að líkjast afa
sínum. Suður-Kóreumönnum þykir
það sérstaklega grunsamlegt
hversu mikið hakan hefur breyst.
Hafi Jong-Un gengist undir
slíka aðgerð er talið að markmiðið
hafi verið að styrkja stöðu hans
sem ríkisarfa. Afi hans hefur verið
dýrkaður sem guð í Norður-Kóreu
og var ávallt nefndur „okkar mikli
leiðtogi“. Því var haldið fram að
Kim Il-Sung væri „merkasti mað-
ur mannkynssögunnar“ og per-
sónudýrkunin hefur verið stór-
furðuleg. Til að mynda er sagt að
eftirlætisblóm „leiðtogans mikla“
magnolían, blómgist enn þegar
nafn hans er nefnt og yfirskilvit-
legur og óhagganlegur regnbogi
er sagður liggja yfir fæðingarstað
hans.
Sonur Kims Il-Sungs og faðir
ríkisarfans, Kim Jong-Il, hefur
verið nefndur „okkar ástkæri leið-
togi“, en hann hefur einnig verið
lofsunginn sem „hershöfðinginn
himinborni“, „mesti rithöfundur
allra tíma“, „leiðarstjarna 21. ald-
arinnar“ og „gæslumaður jarðar-
innar“. bogi@mbl.is
Sagður hafa farið í aðgerð
til að líkjast afa sínum
Þykir grunsamlega
líkur „merkasta
manni mannkynsins“
Reuters
Arfi Kim Jong-Un
Reuters
Leiðtogarnir Kim Il-Sung (t.v.) og Kim Jong-Il.
Vel hefur gengið
að bora göng að
33 námumönnum
sem urðu inn-
lyksa í námu-
göngum í Chile
fyrir tveimur
mánuðum. Verk-
fræðingar sem
taka þátt í
björgunar-
aðgerðunum
vona nú að hægt verði að bjarga
mönnunum mun fyrr en talið hef-
ur verið.
Björgunargöngin eru nú þegar
um 464 metra löng og aðeins eru
um 160 metrar eftir. Búist er við
að borinn verði komin að námu-
mönnunum um helgina, en ekki er
ljóst hvort hægt verður að bjarga
þeim strax þar sem ekki er enn
vitað hvort nauðsynlegt er að
klæða göngin að innan áður en
mennirnir verða hífðir upp.
Sebastian Pinera, forseti Chile,
kveðst vona að hægt verði að
bjarga mönnunum áður en hann
fer til Evrópu á föstudaginn í
næstu viku.
Vona að hægt verði
að bjarga námu-
mönnum um helgina
Hjálp Björgunar-
göng boruð.
CHILE
Neðri deild þingsins á Filippseyjum
hefur samþykkt lagafrumvarp um
hert viðurlög við því að syngja
þjóðsöng landsins falskt eða að
bregða út af upprunalegum takti
hans. Þeir sem vanvirða þjóðsöng-
inn með þessum hætti eiga yfir
höfði sér allt að tveggja ára fang-
elsi og sekt að andvirði 260.000
króna, ef öldungadeildin staðfestir
lagafrumvarpið.
Samkvæmt fánalögum, sem sett
voru árið 1998, varðar það allt að
árs fangelsi og lágri sekt að syngja
þjóðsönginn falskt eða með óviðeig-
andi hætti. Þingmennirnir sögðu
nauðsynlegt að herða viðurlögin
vegna þess að algengt væri að þjóð-
söngurinn væri færður í óvirðu-
legan búning, t.a.m. fyrir einvígi
filippseyska hnefaleikakappans
Manny Pacquiao.
Hert viðurlög við því
að syngja þjóð-
sönginn ranglega
FILIPPSEYJAR
Bókamessan í Frankfurt var sett í gær og starfsmaður þýskrar bókaútgáfu
raðar hér síðustu bókunum í stóra sýningarhillu. Argentínumenn eru
heiðursgestir bókamessunnar í ár og Cristina Kirchner, forseti Argentínu,
setti hana ásamt utanríkisráðherra Þýskalands. Bókamessan er stærsta
bókasýning heimsins. Framkvæmdastjóri hennar segir að 7.533 sýnendur
frá 111 löndum taki þátt í henni í ár, um 3% fleiri en í fyrra.
Bókamessan í Frankfurt sett
Reuters