Morgunblaðið - 06.10.2010, Síða 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2010
Raðauglýsingar
Tilkynningar
Auglýsing um
deiliskipulagstillögu
í Skaftárhreppi
Samkvæmt 1. mgr. 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73 1997 er hér með
auglýst eftir athugasemdum við eftirfar-
andi deiliskipulagstillögu.
Deiliskipulag ferðaþjónustusvæðisins
Mýrar, Hrífunesi
Skipulagssvæðið er 31 ha með aðkomu um
Hrífunesveg nr. 209, frá Hringvegi. Svæðið er
óbyggt en þar hefur verið rekið tjaldsvæði um
áratugaskeið. Gert er ráð fyrir uppbyggingu
hótels og ferðaþjónustu. Gert er ráð fyrir bygg-
ingu veitingahúss, aðalhúss og 18-20 tjaldhýsa
sem eru gistirými hótelsins. Deiliskipulagið er í
samræmi við aðalskipulag Skaftárhrepps 2002-
2014 og einnig í samræmi við aðalskipulag
Skaftárhrepps 2010-2022 sem er í lögbundnu
skipulagsferli.
Uppdrættir og önnur meðfylgjandi gögn liggja
frammi á skrifstofu Skaftárhrepps, Klausturvegi
15, Kirkjubæjarklaustri, frá 6. október til og
með 3. nóvember nk. Einnig verður hægt að
nálgast uppdrætti og greinargerð á heimasíðu
Skaftárhrepps, www.klaustur.is.
Athugasemdafrestur er til kl. 16:00
miðvikudaginn 17. nóvember 2010.
Athugasemdum, ef einhverjar eru, skal skila
skriflega á skrifstofu Skaftárhrepps, fyrir lok
ofangreinds frests. Þeir sem ekki gera athuga-
semd við tillöguna teljast samþykkir henni.
F.h. Skaftárhrepps,
Anton Kári Halldórsson,
yfirmaður tæknisviðs
Skaftárhrepps.
Félagslíf
I.O.O.F. 7. 19110671/2
GLITNIR 6010100619 III
I.O.O.F.9 191061071/2 Rk
HELGAFELL 6010100619 IV/V
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Gisting
Hjá okkur gista hópar og
fjölskyldur allt árið
Frábær aðstaða fyrir ættarmót, fyrir-
tæki. Heitir pottar, grill og samkomu-
salur. Ódýr gisting á góðum stað.
www.minniborgir.is
Sími 868-3592
Geymslur
Geymi tjaldvagna, fellihýsi ofl.
Ímynd gæða. Fjögurra stjörnu. 13
ára reynsla. Í símaskrá ja.is undir;
geymsla asgeirs eirikssonar ehf.
Upplýsingar 897 1731
klettar@heimsnet.is
Sumarhús
Bláskógabyggð Til sölu gott 48
m² sumarhús með öllu innbúi í Brekk-
uskógi. Rafm., hitav. & heitur pottur.
Skipti möguleg á góðum húsbíl,
lágþekju. Uppl. í s. 552 8329.
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Tómstundir
Nýkoming sending af nýjum,
öflugum fjarstýrðum bílum í
úrvali. Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 5870600
www.tomstundahusid.is
Til sölu
Steypusög - Til sölu Partner
K-3500 steypusög (þessi gamla góða)
og dælustöð. Vel yfirfarin.
Upplýsingar í síma 897-7162.
Ódýr blekhylki og tónerar í
HP, Dell, Brother, Canon og Epson.
Send samdægurs beint heim að
dyrum eða í vinnuna. S. 517 0150.
Sjá nánar á blekhylki.is
STIGA – borðtennisborð
Mikið úrval, sjá;
www.pingpong.is
Suðurlandsbraut 10 (2.h.),
S. 568 3920.
Viltu læra eitthvað nýtt?
Námskeið í japönskum pen-
nasaumi - Skráning í síma: 848
5269. Pennasaumsmyndir í miklu
úrvali - póstsendum.
Annora, sími 848 5269.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi. Kaupi
allt gull, nýlegt, gamalt og illa
farið. Leitið til fagmanns og fáið
góð ráð. Upp. á demantar.is, í
síma 699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13 (við Austurvöll).
Verið velkomin.
Ýmislegt
...þegar þú vilt þægindi
Kr. 6.500,-
Dömu sandalar með frönskum
rennilás. Litir: Ljósblátt, dökkblátt.
Stærðir 36-42.
Bonito ehf. Praxis
Faxafeni 10, 108 Reykjavík
Sími: 568 2878
Opnunartimi: mánud- föstud. kl.
11.00 - 17.00
www.praxis.is
Lúxus á færibandi
Teg. AGATHA push up í skálum
A,B,C,D,DD á kr. 7.680,-
Buxur í stíl á kr. 2.990,-
Teg. LILA - push up haldari í skálum
A,B,C,D,DD á kr. 7.680,-
Buxur í stíl á kr. 2.990,-
Teg. BARBARA - push up fyrir
stærri brjóstin í C,D,DD,E,F,FF,G
skálum á kr. 7.680,- Buxur í stíl á kr.
2.990,-
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán. - fös. 10-18.
Laugardaga 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
- vertu vinur
Bílar
Dodge RAM 2500 Van árg. ´96
6-cyl, 3,9. Sjálfsk., ek. aðeins 48.000
mílur. Gott lakk og mikið endur-
nýjaður. Góður og öruggur bíll.
Sko. 2011. Fæst á litlar 410.000 stgr.
Ath. skipti á bíl. S. 893-5201.
Land Rover Discovery 3 Windsor
S. 4/2007. Dísel. Ekinn 63 þús. km.
7 manna. Ljóst leður. Loftpúða-
fjöðrun. Dráttarkúla. Einn eigandi.
Þjónustubók. Verð aðeins 6.990
þús.
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 - sími 577 3344.
Bílaþjónusta
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, 4WD.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla -
akstursmat - kennsla fatlaðra
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i.
8921451/5574975. Visa/Euro.
Húsviðhald
Þak og
utanhússklæðningar
og allt húsaviðhald
Ragnar V Sigurðsson ehf
Sími 892 8647.
Þakviðgerðir: Ryð- og lekavarnir
Öll göt og samskeyti þétt með seig-
fljótandi gúmmíkvoðu. 100% leka-
vörn. Góð ending og margir litir í
boði. Tilboð í síma 777-5697.
ÞAKVERND ehf.
Í dag, 6. október,
hefði elsku besta
mamma mín orðið 53
ára. Einungis 20 mánuðir eru síðan
hún kvaddi í faðmi okkar eftir erf-
iða baráttu sem einkenndist af
miklum verkjum og kvölum. Erfitt
er að sætta sig við það að eina
lausnin undan sjúkdómum hafi fal-
ið það í sér að þú hafir þurft að
Guðrún Jóna
Gunnarsdóttir
✝ Guðrún JónaGunnarsdóttir
fæddist í Reykjavík 6.
október 1957. Hún
lést á krabbameins-
deild Landspítalans
við Hringbraut 9.
febrúar 2009.
Útför Guðrúnar fór
fram frá Fríkirkjunni
í Reykjavík 16. febr-
úar 2009.
fara frá okkur.
Elskulega móðir mín
fór ekki auðveldustu
leiðina í gegnum lífið.
Ég undra mig á
hverjum degi á því
hvernig hún stóð bein
í baki eftir hvert
áfallið á eftir öðru.
Ég fyllist oft reiði út
í fólkið sem vó að
henni en átta mig svo
á að það þýðir ekki
að vera reiður. Ég
tek þessi áföll og læri
af þeim. Ég trúi á
karma og lifi eftir því. Best er að
taka allar góðu minningarnar og
halda þeim fast að sér og gleyma
þeim aldrei. Mínar uppáhaldsminn-
ingar eigum við frá Krít 2008. Viss-
um við fjölskyldan að þetta væri
síðasta ferðin okkar saman og nut-
um við hennar í botn. Sváfum við
mæðgurnar saman hönd í hönd
eins og þegar ég var lítil stelpa og
hef ég aldrei sofið betur. Ég minn-
ist einnig síðustu jólanna með gleði
í hjarta þar sem við litla fjölskyld-
an, skytturnar þrjár ásamt gull-
molanum okkar henni Heiðu, feng-
um yndislegan tíma saman.
Áramótin einkenndust af þreytu
enda sváfum við mæðgurnar þau af
okkur, rétt vöknuðum til að kíkja á
sprengjurnar. Ég hefði ekki viljað
eyða þeim öðruvísi.
Mamma var, er og verður ávallt
hetjan mín. Fyrirmynd í lífi og
starfi. Besta vinkona mín og trún-
aðarvinur. Hún var frábær hjúkr-
unarfræðingur og ekki síðri kenn-
ari. Mér þykir miður að hafa ekki
fengið að vinna með henni en ég
veit að hún muni leiða okkur Haffa
í gegnum námið og í gegnum
læknastarfið. Ég er ennþá að læra
af henni og mun halda áfram að
læra af henni um ókomna tíð.
Bloggið var hennar leið að vinna
sig úr sorginni og sjúkdómnum og
dreg ég mikinn lærdóm af því. Við
erum ótrúlega heppin að geta haft
hennar orð með okkur í framtíðina
og munum við varðveita þau eins
og gull.
Við systkinin erum loksins kom-
in á ágætt ról þó að vegurinn hing-
að hafi verið afar erfiður. Ég veit
að þú tekur á móti mér þegar tím-
inn kemur og ég mun koma með
allavega tvo bjóra með mér enda
þurfum við að taka ABBA-dans
saman. Söknuðurinn er ennþá gríð-
arlegur og sársaukinn ekki síðri.
Að geta ekki fengið að tala við
mömmu sína, kysst hana og knúsað
er óbærilegt. Við systkinin munum
að halda utan um hvort annað og
hlúa að hvort öðru því við lofuðum
að halda áfram að berjast. En
fjandi er baráttan erfið.
Í dag höldum við Haffi upp á af-
mælið að hætti múttu. ABBA verð-
ur í botni, skálað verður í bjór og
jafnvel fáum við okkur eina rækju-
tertu eða svo. Til hamingju með
daginn, elsku besta mamma, og ég
veit að því verður fagnað þarna
uppi líka með ærlegum hætti.
Love you 2
Þín dóttir
Katrín Björg.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins.
Smellt á reitinn Senda inn efni á for-
síðu mbl.is og viðeigandi efnisliður
valinn.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi
tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að
senda lengri grein. Lengri greinar
eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt
er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur.
Ekki er unnt að tengja viðhengi við
síðuna.
Minningargreinar