Morgunblaðið - 06.10.2010, Side 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2010
Blásið verður til hlustunarteitis
á skemmtistaðnum Austur annað
kvöld kl. 21.30. Hljómsveitin Hair-
doctor, skipuð Jóni Atla Helgasyni
og Árna Rúnari Hlöðverssyni, mun
fagna annarri plötu sinni, Wish You
Were Hair, með því að leika hana
fyrir gesti. Þá verður einnig hlýtt á
nýjustu afurð Retro Stefson, Kim-
bavwe, sem væntanleg er í versl-
anir. Þá verður gefinn forsmekkur
að plötu Bix, Animalog, og Sexy La-
zer og DJ Margeir gefa út tvö DJ
mix og getur fólk mætt með mp3
spilara og halað þeim niður frítt.
Eyrnakonfekt í hlust-
unarteiti á Austur
Stórsöngvarinn Helgi Björnsson hefur gert nokkuð af því að
rölta niður stræti minninganna að undanförnu. Þannig var
plata hans frá því í fyrra, Kampavín, óður til dægurtónlist-
arinnar sem þreifst áður en rokkið hóf innreið sína. Helgi
heldur nú áfram á svipuðum slóðum, en söngdagskrá, helguð
Hauki heitnum Morthens, hefst í kvöld í Salnum, Kópavogi.
„Þetta byrjaði með því að ég söng lagið „Vinarkveðja“,
sem Haukur gerði frægt, inn á síðustu Reiðmannaplötu,“ út-
skýrir Helgi. „Það lag sáði þessu fræi mætti segja. Þessi lög
Hauks eiga vel við mína rödd og mér finnst einstaklega gam-
an að syngja þessa tegund tónlistar. Þessi gamla dæg-
urtónlist býður upp á rýmra söngsvið og meiri túlkun. Pop-
plögin í dag eru meira niðurnjörvuð, þar er sungið á
taktinum en þarna er laglína meira fljótandi.“
Helgi segist alla tíð hafa verið hallur undir það að tónlist-
armenn rifji upp sína rætur og glími við þær á einn eða ann-
an hátt. Helgi rifjar upp að hann hafi legið á stofugólfinu
heima hjá ömmu og hlustað linnulaust á útvarpið hennar.
„Ég drakk í mig alla tónlist og þegar ég fór að skoða þessi
lög Hauks fann ég fljótt að ég þekkti þetta allt meira og
minna. Laglínan var þarna um leið og ég opnaði munninn.
Var þarna einhvers staðar í undirmeðvitundinni.“ Lögin
voru svo valin eftir tilfinningu, úr 50-60 laga grunni. „Við er-
um að tala um það helsta, þó ég verði ábyggilega skammaður
fyrir að sleppa ákveðnum lögum. „Borg mín borg“ verður
t.d. ekki! En Bjössi, Lóa og Simbi eru þarna öll (hlær).“
Söngvari fólksins
– En í hverju liggur töframáttur Hauks?
„Hann var fyrir það fyrsta mjög góður söngvari. Hann
nálgaðist lögin á mjög viðkvæman og einlægan hátt, söng
lögin afskaplega blítt og mjúkt og af ríkri tilfinningu. Það er
ein hliðin á þessu. Styrkur dægurtónlistarmanna felst annars
í tímasetningum. Haukur var að toppa á uppgangstímum í
þjóðfélaginu, það var bjartsýni og ákveðin vakning hjá fólki
eftir seinna stríð, síldin var vaðandi um alla firði og við feng-
um innspýtingu í gegnum Marshall-aðstoðina og fleira. Ís-
lenska lýðveldið var hálfgerður unglingur og allir bara al-
mennt séð kátir. Rödd Hauks heyrðist um allar sveitir í
gegnum útvarpið þar sem hann lofsöng landbúnað og sjávar-
útveg til skiptis. Þetta var söngvari fólksins.“
Fyrstu tónleikarnir verða í Salnum í kvöld og á morgun og
er uppselt á þá báða. Enn eru til miðar á þriðja kvöldið, sem
haldið verður 13. október næstkomandi.
Helgi Björns tekst á við Hauk Morthens
Rætur Helgi Björns tekst á við arfleifð Hauks Morthens.
Í tilefni af
fæðingardegi
listakonunnar
Ástríðar
Tómasdóttur,
sem lést af slys-
förum sl. sumar,
munu vinir
hennar og
vandamenn
halda menningarveislu á Venue í
kvöld. Húsið verður opnað kl. 21 og
hljómsveitin Svarti dauði spilar kl.
21.20. Þá munu Sólveig Pálsdóttir,
Ásta Fanney Sigurðardóttir og
Kristín Svava Tómasdóttir lesa ljóð
og hljómsveitin Witches leika tón-
list kl. 22, Caterpillarmen koma
fram kl. 22.40 og hljómsveitin
Manslaughter kl. 23.20. Mammút
lýkur kvöldinu með tónleikum sem
hefjast á miðnætti.
Fæðingardags Ástríðar
Tómasdóttur minnst
Breska heimildarmyndin The
Future of Hope, sem fjallar um
framtíðarmöguleika Íslendinga í
skugga kreppunnar, hlýtur já-
kvæða gagnrýni í dagblaðinu The
Irish Times. Segir þar m.a. að Ís-
lendingarnir sem teknir eru í tali í
myndinni gætu virst fullbjartsýnir
en þeir séu þó ástríðufullir og það
sé skárra en að vera aðgerðalaus,
lamaður af ótta.
Framtíð vonar hampað
í The Irish Times
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Næsta laugardag, 9. október,
verða liðin 70 ár frá því að John
Lennon, einn frægasti – og má ég
segja – einn mikilvægasti dæg-
urtónlistarmaður allra tíma, fædd-
ist. Af því tilefni mun ekkja tónlist-
armannsins, japanski
listamaðurinn og friðarsinninn
Yoko Ono, koma fram á tónleikum
í Háskólabíói ásamt hljómsveit
sinni Plastic Ono Band. Fyrr um
daginn mun Ono svo afhenda
LennonOno-friðarverðlaunin í
Höfða og stuttu áður en kvöld-
stundin í Háskólabíói hefst verður
ljósið tendrað á friðarsúlunni í Við-
ey, listaverki eftir Ono sem var
vígt í eyjunni fyrir þremur árum.
Jaðarinn á nótunum
Í fyrra endurvöktu Ono og sonur
hennar, Sean Ono Lennon, Plastic
Ono Band og gáfu út plötuna
Between My Head and the Sky
sem hefur hlotið mikið lof gagn-
rýnenda. Ömurleg viðhorf rasss-
íðra Bítlaaðdáenda í garð Ono eru
líklega með því mest þreytandi í
öllum umræðum um dægurtónlist,
og ágætt að hnykkja á því að Ono
var ábyrg fyrir einkar flottri og
framsækinni tónlist á áttunda ára-
tugnum, tónlist sem hún gaf út í
eigin nafni (tékkið t.d. á Fly frá
’71). Nýja útgáfan af Plastic Ono
Band inniheldur m.a. Cornelius og
Yuka Honda úr Cibo Matto og hélt
um daginn tvenna tónleika í Los
Angeles þar sem margar
stórstjörnur komu einnig fram (sjá
fylgju). Blaðamaður átti lauflétt
spjall við listakonuna, sem deilir
með honum afmælisdegi. Ég skal
segja ykkur það …
„Halló Arnar …“
– Hæ hæ.
„Hvernig hefur þú það?“
– Ég er bara mjög fínn. Degi er
byrjað að halla hérna megin
heimsins og svona.
„Ó, hann er rétt að byrja hérna.“
– Segðu mér nú aðeins frá þess-
um bráðkomandi tónleikum …
„Já, ég hlakka mjög mikið til að
takast á við þetta. Við (Plastic Ono
Band) erum þegar búin að halda
nokkra tónleika, í Brooklyn og svo
vorum við að spila í Los Angeles
fyrir stuttu. Og fengum rosa góða
gagnrýni fyrir þá tónleika. Trúir
þú því? Ég fékk góða gagnrýni fyr-
ir eitthvað sem ég hef gert (hlær).
En þetta gekk afskaplega vel. Er
það ekki stórkostlegt?! (eða „amaz-
ing“, orð sem hún endurtekur með
reglulegu millibili út viðtalið).“
– Það er merkilegt að þó að þér
hafi verið úthúðað af Bítlaaðdáend-
um í gegnum tíðina hefur þú alltaf
verið í miklum metum hjá þeim
sem fylgjast með jaðartónlist og
þú þykir meira að segja brautryðj-
andi á því sviðinu …
„Já, ég veit að jaðarlistamenn í
Japan voru nú alltaf með á nót-
unum en rokkararnir hafa verið
hægari í gang (brosir í gegnum
símann). Það er bara nýverið sem
þeir hafa verið að samþykkja mig.
Er það ekki stórkostlegt?!“
Mjög náin
– Það voru engar smáræðis ka-
nónur með þér þarna í Los Angel-
es. Iggy Pop og Lady Gaga!
„Já, ég er rokkari!“
– Þetta hefur verið allsvaðalegt?
„Já, ég átti ekki von á neinu og
vissi eiginlega ekkert hvernig
myndi spinnast úr þessu. En allt
fór þetta vel og gekk upp.“
– En hví að endurvekja Plastic
Ono Band?
„Nú, elskulegan son minn lang-
aði endilega til þess. Þannig að ég,
mamman, sagði svona: „Jæja, allt í
lagi þá …“. Hann spurði mig
reyndar mjög kurteislega. Ég
skildi ekki alveg þennan áhuga
hans á þessu en þá áttaði ég mig á
því að þetta hafði auðvitað mikla
merkingu fyrir hann; pabbi hans
og mamma höfðu verið hluti af
þessu.“
– Fjórir aðilar fá nú frið-
arverðlaunin ykkar. Einhver
ástæða fyrir því?
„Bara, þetta er 70 ára afmæli,
svolítill áfangi og því langaði mig
til að gera þetta dálítið veglega.“
– Það er mikið talað um þau
áhrif sem þú hafðir á Lennon sem
listamann. En hvað um áhrif hans
á þína list?
„Hmmm … það er eiginlega ekki
hægt að tala um það á þann hátt.
Við vorum mjög náin eins og þú
veist ábyggilega, vorum saman all-
an sólarhringinn og áherslur og
hugmyndir voru allar í einum potti.
Það var aldrei mikið rætt um hlut-
ina þannig, þetta bara gerðist í
nokkurs konar samvinnu.“
Friðarsúlan
– Og svo verður kveikt á frið-
arsúlunni … mér finnst hún svo
flott, er ekki hægt að hafa kveikt á
henni allt árið?
„Ha ha … nei, ég skil þig. Nei,
verðum við ekki að halda einhverju
táknrænu inni í þessu? En ég er
ánægð með hana og hlakka til
Reykjavíkurfarar. Hver veit,
kannski tek ég með mér einhverja
mjög sérstaka gesti,“ segir Ono að
lokum, leyndardómsfull.
„Ég er rokkari!“
Yoko Ono heldur tónleika í Háskólabíói á laugardaginn Tilefnið er 70 ára
afmæli Johns Lennons Kveikt verður á friðarsúlunni í Viðey sama dag
Rokkari Ono segir þau Lennon hafa verið saman allan sólarhringinn og að
áherslur og hugmyndir tengdar listsköpun þeirra hafi verið í einum potti.
Henni Yoko Ono, sem er
komin á áttræðisaldur,
er ekki fisjað saman. Svo
virðist sem endurkoma
hennar og Sean, sem
Plastic Ono Band, hafi
fallið furðu vel í kramið
hjá rokkelítunni vestra.
Stjörnur stóðu nánast í
biðröð eftir því að kom-
ast upp á svið á tvennum
tónleikum sem fóru fram
í Los Angeles fyrir
stuttu. Perry Farrell,
kenndur við Jane’s
Addiction og sjálfur
pönkafinn, Iggy Pop, fóru
þar fremstir í flokki. Ekki má heldur gleyma poppdrottningunni Lady
Gaga en einnig mátti þar sjá leiðtoga The Wu-Tang Clan, RZA, og Kim
Gordon, bassaleikara jaðarrokkaranna knáu í Sonic Youth. Það verður
því spennandi að sjá hvaða seiður verður magnaður upp hér í Reykja-
víkinni og ekki síst hvort að einhver óvæntur gestur verður á sviðinu.
Munum við rekast á sjálfan Iggy Pop, sprangandi upp og niður Lauga-
veginn, næsta laugardag?
Atorka á áttræðisaldri
ENDURKOMA PLASTIC ONO BAND
Þaulreynd Ono með hálfstrípuðum Iggy Pop.