Morgunblaðið - 06.10.2010, Page 31
AF FJÖLSKYLDUMYNDUM
Inga Rún Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is
Það er gott og blessað þegar öllfjölskyldan getur skemmt séryfir sömu myndinni. Myndir
á borð við Leitin að Nemo, Mada-
gaskar, Ísöld og Leikfangasaga hafa
notið mikilla vinsælda. Þarna eru
dýr á borð við fiska, mörgæsir, rott-
ur og hvaðeina í stórum hlutverkum
auk talandi leikfanga af ýmsum
stærðum og gerðum. Fjölskyldu-
vænna getur það ekki orðið, eða
hvað?
Myndirnar eru kannski fjöl-
skylduvænar en ekki eru þær um
alla fjölskylduna, kvenkynið er að
stórum hluta skilið útundan. Kven-
persónur eru fáar og fæstar af þeim
gera eitthvað stórkostlegt. Sumar
eru líka fáklæddar eins og ein-
hverjar af barbídúkkunum í Leik-
fangasögu. Kúrekastelpan í Leik-
fangasögu er ágæt en hún er ekki í
aðalhlutverki, hún er á hliðarlín-
unni, í kantinum, stuðningur við aðr-
ar persónur.
Nú finnst einhverjum þettakannski öfgakennd lýsing,
byggð á einhverri tilfinningasemi og
andúð á bleikklæddum prinsessum
og svartklæddum sjóræningastrák-
um. Svo er alls ekki. Hvatinn til
skrifanna er heldur áfall yfir nýrri
rannsókn Annenberg-blaða-
mannaháskólans við Háskólann í
Suður-Karólínu, sem Newsweek rit-
aði grein um. Farið var í saumana á
122 fjölskyldumyndum, sem voru
frumsýndar á árunum 2006 til 2009.
Rannsókn Stacy Smith og Marc Cho-
ueiti leiddi í ljós að aðeins 29,2% per-
Það vantar fleiri Línur
REUTERS
Leikfangasaga Þetta eru að mörgu leyti skemmtilegar persónur en karl-
menninir eru svo miklu fleiri og í stærri hlutverkum.
sónanna voru konur. Og ein af fjór-
um kvenpersónum var sýnd í
„kynþokkafullum, þröngum, eða
tælandi fötum“. Kvenpersónurnar
voru líka líklegri en karlpersónur til
að vera fallegar og ein af hverjum
fimm sýndi bert hold nálægt nafla-
svæði. Ein af hverjum fjórum kven-
persónum var ennfremur með svo
mjótt mitti að höfundarnir fengu þá
niðurstöðu að það væri „lítið pláss
fyrir leg eða önnur líffæri“.
Rannsóknin var gerð fyrir
Stofnun Geenu Davis um kyn í kvik-
myndum, sem hefur verið að safna
að sér tölfræði um konur í kvik-
myndum. Davis sagði Newsweek að
rannsóknir sýndu að 17% teiknara
væru konur, konur mynduðu 17% af
hóp í hópatriðum í fjölskyldumynd-
um og aðeins 17% sögumanna eru
konur.
Leikkonan, sem er meðal ann-ars þekkt fyrir hlutverk sitt í
Thelma and Louise, bendir á að það
sem sé á skjánum skipti máli. Það
hafi áhrif á ímyndunarafl okkar og
takmarki það stundum. Einhliða
kvenpersónur í kvikmyndum hafi
því áhrif á hvernig strákar og stelp-
ur hugsi um stelpur.
Könnun sem var gerð árið 2003
af Kaiser-fjölskyldustofnuninni
leiddi í ljós að börn að sex ára aldri
eiga að minnsta kosti 20 mynddiska.
Helmingur þeirra horfir á að
minnsta kosti einn á dag. Davis
bendir á rannsóknir sem hafa leitt í
ljós að því meira sem stelpa horfir á
sjónvarp, því færri möguleika finnst
henni hún eiga í lífinu og því meira
sem strákur horfir því meiri karl-
remba verður hann.
ÍAnnenberg-rannsókninni voru7% leikstjóranna, 13% rithöfund-
anna og 20% framleiðendanna kon-
ur. Þetta er hugsanlega einhver
helsta ástæðan fyrir þessari kynja-
slagsíðu. Það er ekki boðlegt að
kvenpersónur í fjölskyldumyndum
séu alltaf á hliðarlínunni, þær eiga
líka að vera í miðjunni, ekki bara að
klappa fyrir strákunum og sýna á
sér naflann.
Strákum finnst líka gaman að
horfa á sterkar kvenpersónur. Þar
er Lína langsokkur kannski besta
dæmið. Teiknimyndir um ævintýri
Línu eru mjög vinsælar á heimili
mínu hjá tæplega þriggja ára dreng.
Það mættu alveg vera fleiri Línur í
heiminum.
» Því meira semstelpa horfir á sjón-
varp, því færri mögu-
leika finnst henni hún
eiga í lífinu og því meira
sem strákur horfir því
meiri karlremba verður
hann.
Fáklædd Lítil hafmeyja í litlum
brjóstahaldara.
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2010
NÝTT Í BÍÓ!
GORDON GEKKO ER
MÆTTUR AFTUR Í
STÓRMYND OLIVER
STONE!
"Hörkugóð. Douglas
er alveg jafn flottur
og áður fyrr."
T.V. - Kvikmyndir.is Magnaður
tryllir í þrívídd!
SÍMI 564 0000
12
L
L
16
L
L
L
SÍMI 462 3500
L
16
L
L
EATPRAYLOVE kl.5.30-8-10.25
PIRANHA3D kl. 10.25
WALLSTREET2 kl. 8
AULINNÉG 3D kl. 5.30
SÍMI 530 1919
12
16
L
L
12
BRIM kl.6-8 -10
R kl.6-8
EATPRAYLOVE kl.6-9
SUMARLANDIÐ kl. 6-8-10
THEOTHERGUYS kl.10
BRIM kl.4-6-8-10
EATPRAYLOVE kl.5-8-10.45
EATPRAYLOVELÚXUS kl.5-8-10.45
PIRANHA3D kl. 8-10.10
WALLSTREET2 kl. 8-10.45
SUMARLANDIÐ kl. 4-6
AULINNÉG 3D kl. 3.40-5.50
.com/smarabio
Brim er köld og blaut
en gerð af ást og hlýju"
-H.V.A., FBL
-S.V., MBL
-H.G., MBL
ALÞJÓÐLEG
KVIKMYNDAHÁTÍÐ
Í REYKJAVÍK
2010
Sýnd kl. 10
ÍSLENSKT TAL
Sýnd kl. 8
STEVE CARELL
Sýnd kl. 7 og 10
Sýnd kl. 5:45, 8 og 10:20
Sýnd kl. 5 2D íslenskt tal
FRÁ LEIKSTJÓRA MEET THE PARENTS
Frábær gamanmynd frá þeim
sömu og færðu okkur “40 Year
old Virgin” og “Anchorman”
HHH
T.V. - Kvikmyndir.is
HHH
S.V. - Mbl.
-bara lúxus
Sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
Leikhúsgagnrýnandi Financial Tim-
es, Ian Shuttlesworth, gefur upp-
færslu Borgarleikhússins og Vest-
urports á Faust þrjár stjörnur af
fimm mögulegum. Segir m.a. að leik-
stjóri verksins, Gísli Örn Garðars-
son, hafi ætlað að vekja leikverkið
Faust til lífsins með því að hleypa
miklum rafmagnsstraumi í það.
Straumurinn hafi hins vegar verið of
öflugur þannig að verkið hafi verið
„steikt“.
Faust Hilmir Snær sem Mefistó.
„Steikt“
Faust
Kvikmyndaleik-
stjórinn Zack
Snyder hefur
fengið það verk-
efni að gera enn
eina kvikmyndina
um Ofurmennið,
Superman. Snyd-
er er ekki
ókunnugur því að
færa teikni-
myndasögur upp á
hvíta tjaldið, á að baki myndirnar
300 og Watchmen. Framleiðandi
verður leikstjórinn Christopher Nol-
an, sá er blés eftirminnilega lífi í
Leðurblökumanninn.
Tekst á við
Ofurmennið
Ofurmennið