Morgunblaðið - 06.10.2010, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 279. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2218
1. „Ég sofnaði vel eftir þetta“
2. Grýttu hnullungi í lögreglu
3. Meiddist á Austurvelli
4. Hreinsað til við Alþingi
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
„Sem kvikmyndatökumaður þarf
maður fyrst að átta sig á því hvaða
sýn leikstjórinn hefur á myndina, það
er það sem þú þarft að ná fram,“ seg-
ir Ari Kristinsson, reyndasti kvik-
myndatökumaður Íslands. »33
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þarf fyrst að átta sig
á sýn leikstjórans
David Cameron,
forsætisráðherra
Breta, kann að
meta tónlist Emil-
íönu Torrini. Þetta
kemur fram í um-
fjöllun breska
dagblaðsins The
Telegraph. Came-
ron segir m.a. í
viðtali við blaðið að hann geti vart
talist svartsýnismaður fyrst hann
kunni að meta lag Emilíönu, „Sunny
Road“, frá árinu 2005.
Cameron hlustar á
Emilíönu Torrini
Blaðamaður kvikmyndaritsins In-
dieWire, Peter Knegt, birtir á bloggi
sínu stutt „ástarbréf“ helgað Al-
þjóðlegri kvik-
myndahátíð í
Reykjavík, RIFF.
Segir hann skipu-
leggjendur RIFF hafa
sýnt sér mikla gest-
risni og að hátíðin hafi
verið frábær í alla
staði. Það sama eigi
við um Reykjavík, Ís-
land og Íslendinga.
„Ástarbréf“ til kvik-
myndahátíðar
Á fimmtudag Sunnan 5-10 m/s og skúrir, en þurrt og bjart að mestu á Norður- og Aust-
urlandi. Hiti 7 til 12 stig.
Á föstudag Fremur hæg suðlæg átt og skýjað á sunnanverðu landinu og sums staðar lít-
ilsháttar væta, en víða bjart norðanlands. Hlýnandi veður.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG NA strekkingur á Vestfjörðum, annars mun hægari austlæg eða
breytileg átt. Rigning eða skúrir víða um land. Hiti 6 til 13 stig, hlýjast sunnanlands.
VEÐUR
„Þetta hefur mikla þýðingu
fyrir mig sem sundkonu að
komast inn í svona stóran
skóla,“ segir sundkonan
Hrafnhildur Lúthersdóttir
úr SH. Hún heldur til Banda-
ríkjanna í byrjun næsta árs
og byrjar að keppa fyrir
Flórída-háskólann sem er
einn sá sterkasti í sund-
íþróttinni vestanhafs.
Hún stefnir á að keppa
á ÓL í London árið
2012. »3
Hrafnhildur mun
synda í Flórída
„Ég tel okkar lið betra en það skoska
en við gerum okkur vel grein fyrir því
að þetta verða tveir mjög erfiðir leik-
ir,“ sagði Eyjólfur Sverr-
isson, þjálfari U21 árs
landsliðsins í knatt-
spyrnu, í gær. Á morgun
mæta íslensku strák-
arnir liði Skota í fyrri
viðureigninni í umspili
um sæti í úrslitakeppni
Evrópumótsins. »1
„Ég tel okkar lið betra
en það skoska“
Hermann Hreiðarsson, landsliðs-
maður í fótbolta, samdi við enska lið-
ið Portsmouth í gær til eins árs. Her-
mann sleit hásin fyrir hálfu ári og er
Eyjamaðurinn ánægður með að
samningurinn sé í höfn. Varnarmað-
urinn er í landsliðshópi Íslands sem
mætir Portúgal í næstu viku. „Ég er
maður í allt en við sjáum hvað setur,“
sagði Hermann við Morgunblaðið. »1
Hermann samdi við
Portsmouth á ný
ÍÞRÓTTIR
Franskur hermaður leitar að vel falinni gervi-
sprengju hryðjuverkamanna við olíuleiðslu í
Helguvík gær, Daninn Lars Möller, sem er yf-
irmaður í flotanum, fylgist með. Sprengjuleit-
arsveit Landhelgisgæslunnar stendur nú fyrir 10
daga fjölþjóðlegri æfingu hér á landi og eru
þátttakendur um 90 frá nokkrum Evrópulönd-
um, að sögn Sigurðar Ásgrímssonar, yfirmanns
sveitarinnar, en Atlantshafsbandalagið greiðir
kostnaðinn. „Lars sér um að gagnrýna vinnu-
brögðin til þess að við getum lært af mistök-
unum,“ segir Sigurður. kjon@mbl.is
Sprengjuleitarmenn við öllu búnir í Helguvík
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bubbi Morthens
kemur víða við í
tónlistinni, hef-
ur nú snúið sér
að sálartónlist
og er plata með
sálarlögum eftir
Bubba vænt-
anleg næsta vor.
Bubbi sækir inn-
blástur sinn í
gullöld sálartónlistarinnar, menn
á borð við Sam Cook og Marvin
Gaye. Eitt lag af plötunni er
komið í spilun, „Sól“, og ekki úti-
lokað að platan muni bera sama
titil. »32
Sól og sál Bubba
Morthens
Bubbi Morthens
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Ekki hefur verið hringt eins mikið í
1717, hjálparsíma Reykjavíkurdeild-
ar Rauða krossins, undanfarnar vik-
ur og á sama tíma í fyrra en símtölin
hafa verið alvarlegri en áður. „Það er
okkar tilfinning að það sé erfitt
framundan og við búum okkur undir
það,“ segir Karen H. Theodórsdótt-
ir, verkefnastjóri Reykjavíkurdeild-
ar Rauða krossins.
Í september var hringt 1.513 sinn-
um í hjálparsímann, þar af 663 símtöl
vegna sálrænna vandamála og 88
símtöl vegna félagslegra vandamála.
Sjálfsvígshugsanir falla undir sál-
ræn vandamál og segir Karen að
símtölum með þetta vandamál hafi
fjölgað. „Það er mjög þungt í fólki,“
segir hún og bætir við að starfsfólk
og sjálfboðaliðar finni fyrir meiri
reiði og vonleysi fólks en áður. Eins
virðist sem símtölum frá yngra fólki
hafi fjölgað töluvert.
Karen segir að almennt hafi
þyngstu símtölin verið á kvöldin og á
næturnar en nú berist þau líka á
daginn og það sé töluverð breyting
frá því sem áður var. Erfiðara sé að
taka á móti þessum vonleysissímtöl-
um en áður vegna þess að fólk hafi
iðulega reynt þau úrræði sem bent
sé á og því veiti þau enga von.
Alvarlegri símtöl nú
Starfsfólk hjálparsíma Rauða krossins finnur fyrir vonleysi
„Mikil breyting
hefur verið und-
anfarnar vikur til
hins verra“
Karen H. Theodórsdóttir