Birtingur - 01.04.1956, Blaðsíða 11

Birtingur - 01.04.1956, Blaðsíða 11
F. M. DOSTOJEVSKI: SÚSÍLOV (Minnisblöð úr húsi dauðans) Þarna var til dæmis maður sem ég lærði ekki að þekkja til fulls fyrr en eftir mörg mörg ár, og þó var hann þarna með mér og snerist í kringum mig næstum allan þann tíma sem ég var í fangabúðunum. Þetta var fang- inn Súsílov.... Ég kallaði ekki á hann og leitaði hans ekki. Einhvernveginn fann hann mig sjálfur og tók að þjóna mér; ég man ekki einu sinni hvenær eða hvernig það vildi til. Hann byrjaði á að þvo af mér. Til slíkra hluta hafði verið útbúin stór þvottagryfja að baki fangaskálanna. Yfir þessari sömu gryf ju voru trog og þar voru einnig þvegin nærföt fanganna. Auk þess fann Súsilov sjálf- ur upp á margvíslegum og óteljandi skyldu- störfum til að gera mér til hæfis: hann ann- aðist fyrir mig tepottinn, hljóp ýmsa snún- inga, leitaði uppi hitt og þetta fyrir mig, fór með treyjuna mína til viðgerðar, bar á stíg- vélin mín fjórum sinnum í mánuði; allt þetta vann hann af stökustu iðni og samvizkusemi eins og það væri á vitorði guðs, hvaða skyld- ur hann hafði að rækja, í stuttu máli sagt: hann batt örlög sín fullkomlega við örlög mín og tók á sig öll mín vandamál. Hann sagði til dæmis aldrei: „Þér eigið nú svo margar skyrtur, treyjan yðar er rifin“ og þar fram eftir götunum, heldur alltaf: við eigum nú svo margar skyrtur, treyjan okkar er rifin“. Og svo leit hann þannig í augu mér, að helzt var að sjá að honum fyndist þetta megin til- gangur lífs síns. Hann kunni enga iðn af neinu tagi. hafði engar aukasporslur eins og fangarnir kölluðu það. Svo virtist að honum áskotnuðust ekki aðrir aurar en þeir sem hann fékk frá mér. Ég borgaði honum eins mikið og ég gat, það er að segja einn og einn eyri, og hann varð alltaf ánægður án þess að hafa um það nokkur orð. Hann gat ekki öðruvísi verið en þjóna einhverjum, og virtist hafa valið mig einkum vegna þess að ég var hæverskari og heiðarlegri í greiðsl- um en hinir. Hann var einn af þeim sem aldrei gátu orðið ríkir og náð sér á strik, einn af þeim sem í okkar hópi tóku að sér að standa á verði, þegar haldnar voru ó- leyfilegar svallveizlur, hímdu úti á hlaði heil- ar nætur í frosti og hlustuðu eftir hverju hljóði sem boðað gæti að yfirmaður fanga- varðanna væri á ferli í húsagarðinum. Fyrir þetta tóku þeir fimm kópeka og þá fyrir næst- um alla nóttina, en ef eitthvað kom fyrir, töpuðu þeir öllu og voru húðstrýktir. Ég hef skýrt frá þessum mönnum áður. Eðliseinkenni þeirra er að lítillækka sjálfa sig ávallt og allsstaðar frammi fyrir næstum hverjum sem er, og í samfélaginu leika þeir jafnvel ekki annarsflokks heldur þriðjaflokks hlutverk. Það er eins og þetta sé þeim með- fætt. Súsílov var mjög aumkunarverður ná- ungi, bældur og lítilsigldur, jafnvel kúskað- ur, ekki af því að neinn okkar berði hann, heldur var hann kúskaður að náttúrufari. Ég kenndi ávallt einhvernveginn í brjósti um hann. Ég gat ekki einu sinni litið á hann án þess að finna til þessarar tilfinningar; en hversvegna ég kenndi í brjósti um hann •— því hefði ég ekki sjálfur getað svarað. Ég gat ekki rætt við hann, og hann kunni held- ur ekki að taka þátt í samræðum. Slíkt olli honum bersýnilega mikilla erfiðleika, og það 9

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.