Birtingur - 01.04.1956, Blaðsíða 41

Birtingur - 01.04.1956, Blaðsíða 41
hornrétt á hreyfingarstefnuna, er hann jafn- langur. Þetta er skiljanlegt af því, að þá eru báðir endar á sama stað á pallinum, og sam- tími á sama stað í einu miðunarkerfi er sam- tími á sama stað í öllum kerfum. — Ef ten- ingur væri settur í lestina, styttist hann í hreyfingaráttina, en hæð og breidd er óbreytt, séð frá pallinum. Ef hann er mældur í lestinni, eru lengd, hæð og breidd jafnar, því að mæli- kvarðinn, sem notaður er, styttist að sama skapi og teningurinn, þegar hann er lagður í hreyfingaráttina. — Þessa gætir þó ekki fyrr en hraðinn fer að nálgast hraða ljóssins, 300.000 km. á sek. Ef hraðinn er einn tíundi af hraða Ijóssins, er styttingin aðeins hálfur af hundraði, en lengdin fer niður í núll, þegar kemur að hraða ljóssins. Gangur klukkna verður einnig fyrir áhrif- um af hreyfingu þeirra þannig, að þær ganga hægar því hraðar, sem þær hreyfast. Til að athuga gang klukku, sem hreyfist með lest- inni, er hún borin saman við klukkur á pall- inum, sem hún fer fram hjá. Ef hún sýnir sama tíma, þegar hún fer fram hjá einhverri klukku á pallinum og hún er svo borin sam- an við pallklukku, sem hún fer fram hjá síðar, kemur í ljós, að hún er á eftir. Af því dregur maður þá ályktun, að hún gangi hægar en klukkurnar á pallinum. Þetta gildir ekki ein- ungis um venjulegar klukkur, heldur um alla starfsemi eða breytingar, svo sem starfsemi lífvera, t. d. hjartslátt, sem líta má á sem eins konar klukku (Galileo notaði eitt sinn hjart- slátt sinn sem klukku við fræga athugun, sem hann gerði). Maður getur hugsað sér tvíbura, annar er kyrr á jörðunni, en hinn fer með geysihraða út í geiminn og kemur til baka eftir t. d. 50 jarðnesk ár. Þá er sá, sem eftir sat kominn á efri aldur, en ferðalangurinn er á bezta aldri, vegna þess, að öll lífsstarf- semi hans hefur gengið hægar. Þessa fyrirbrigðis um gang klukkna gætir þó ekki fyrr en hraðinn er mjög hár. Til að tvíburinn eldist helmingi hægar, þarf hann að fara með um 250,000 km. hraða á sekúndu. Af þeim sökum hefur það aðeins komið fram í sérstökum tilfellum, en þar er það líka mjög skýrt. Sumar tegundir frumeinda, svokall- aðar mesónur „lifa“ aðeins milljónasta part úr sekúndu, þegar þær eru kyrrar. Nú er það svo, að þær myndast efst í gufuhvolfinu og fara með geysihraða til jarðar. Ef „ævi“ þeirra væri eins stutt og hún mælist, þegar þær eru kyrrar, mundu þær „deyja" (þ. e. breytast í aðrar frumeindir) löngu áður en þær kæmust til jarðar. Staðreyndin er þó sú, að þær komast til jarðar og skýringin er ein- mitt, að ,,ævi“ þeirra lengist margfaldlega vegna hins mikla hraða, sem þær hafa. Þar sem hreyfing er afstæð, má líta á lest- ina kyrra, en pallinn á hreyfingu. Sá, sem í lestinni er, kemst þá að þeirri niðurstöðu, að mælikvarðinn á pallinum sé styttri en sinn og klukka á pallinum gangi hægar, þegar hún er borin saman við klukkur í lestinni. 1 þessu felst engin mótsögn, því að hvor athugandi gerir samanburðinn á sinn hátt og hvor miðar við sitt kerfi. Á það hefur verið bent, að ekkert getur farið með meiri hraða en ljósið. Ljóshraðinn er því hámarkshraði, og enginn hlutur getur náð þeim hraða, því að massinn, sem Newton áleit fastan og óbreytanlegan eiginleika hlut- arins eykst með hraðanum og verður óend- anlega mikill, ef hraði hlutarins nálgast ljós- hraðann. Það verður því æ erfiðara að auka hraðann eftir því sem hann verður meiri. Þetta kemur mjög skýrt 1 ljós hjá frumeind- um. Ein af merkustu niðurstöðum afstæðis- kenningarinnar er samband það, sem Einstein sýndi fram á, að er milli massa og orku. Stað- festing þess sambands hefur komið mest á- berandi fram við atómsprengingar og starf- 39

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.