Birtingur - 01.04.1956, Blaðsíða 40

Birtingur - 01.04.1956, Blaðsíða 40
MAGNÚS MAGNÚSSON M.A.: Albert Einstein 2. GREIN I kenningu Einsteins er hraði ljóssins einn aðalþátturinn og það grundvallaratriði, að ekkert getur farið með meiri hraða en ljósið. í því sambandi er það eftirtektarvert, að Ein- stein hafði frá því hann var 16 ára oft verið að velta því fyrir sér, hvað skeði, ef maður elti ljósgeisla með hraða, sem nálgast hraða ljóssins. Lausn þeirrar spurningar leiddi til afstæðiskenningarinnar. Þetta sýnir eitt af höfuðeinkennum Einsteins, að sjá í atriðum, sem öðrum virðast vera einföld eða ómerki- leg, lykil að dýpri skilningi á lögmálum nátt- úrunnar og geta velt sömu spurningunni fyrir sér ár eftir ár, þar til lausnin er fundin. Samtími er afstæður, þ. e. tveir atburðir, A og B, sem gerast samtímis á mismunandi stöðum í einu miðimarkerfi, gerast ekki sam- tímis í öðrum kerfrnn, sem hreyfast með jöfn- um hraða í beina línu miðað við það. 1 þeim geta þeir gerzt í ólíkri röð, eftir því, hver hreyfing kerfisins er, A á undan B í einu, en á eftir B í öðru. Af þessari breytingu tíma- raðar atburða eftir miðunarkerfi, gæti mað- ur haldið, að ekki sé lengur hægt að tala um, að einn atburður sé orsök annars, því að í venjulegum skilningi er auðvitað orsökin á undan afleiðingunni í tímarásinni. En einnig verður samband þeirra að vera þannig, að á- hrif geti borizt frá þeim atburði, sem er or- sök, til þess, sem er afleiðing. Nú geta engin áhrif borizt hraðar en ljósið, og þess vegna má fjarlægð þeirra í rúminu ekki vera meiri en svo, að ljós komizt á milli á þeim tíma, sem milli þeirra er. Þegar þessum skilyrðum fyrir orsakasamhengi tveggja atburða er fullnægt í einu miðunarkerfi, kemur í Ijós frá kenn- ingu Einsteins, að það samhengi helzt í öllum miðunarkerfum. Þeir atburðir, sem tímaröðin getur breytzt á, eru hins vegar þannig, að engin áhrif geta borizt milli þeirra, þeir ger- ast samtímis á mismunandi stöðum 1 einu kerfi, og einn getur því ekki verið orsök hins. Kenning Einsteins raskar því engu um or- sakalögmálið, heldur frekar skýrir það. Atburðir eru aðgreindir, bæði með mismun á tíma og fjarlægð milli þeirra í rúminu. Nú getur tímamismunur breytzt eftir miðunar- kerfinu, en hvað verður um f jarlægðir í rúm- inu? Ef aftur er notað dæmið um beina járn- brautarpallinn og lestina, sem fer fram hjá með jöfnum hraða, er hægt að hugsa sér, að tveir athugendur, annar á pallinum og hinn í lestinni, ætli báðir að mæla fjarlægð milli tveggja punkta í lestinni. Sá, sem á pallinum er, þarf þá að finna tvo punkta á pallinum, sem eru andspænis punktunum í lestinni sam- tímis eftir klukkum á pallinum. En það, sem er samtímis á pallinum, er ekki samtímis í lestinni, og er því ekki við að búast, að báðir athugendur fái sömu fjarlægð milli punkt- anna. Án þess að nota stærðfræðilega útreikn- inga er ekki hægt að skýra þetta nánar, og einungis er hægt að skýra frá þeim merkilegu niðurstöðum, sem fram komu. Hugsum okkur tvo eins mælikvarða, sem eru jafnlangir, þegar þeir eru bornir saman á pallinum. Nú er annar settur í lestina og hreyfist með henni. Ef athugandinn á pallin- um ber sinn mælikvarða saman við þann í lestinni, þegar hann fer fram hjá, sér hann að sá síðarnefndi er styttri, þegar hann snýr í þá átt, sem lestin hreyfist. Sé hann lagður 38

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.