Birtingur - 01.04.1956, Blaðsíða 36

Birtingur - 01.04.1956, Blaðsíða 36
THORSTEN JONSSON: AMMA Hérna koma þeir og fara, og þeir fara og koma, og hérna ligg ég. Ég hef aldrei legið eins mikið og síðan ég kom hingað á sjúkra- húsið. Hérna ligg ég, og get ekki annað. 1 morgun sagði ég við lækninn, þegar hann kom í vitjun eins og þeir kalla það, að nú ættuð þér að láta mig fá þennan tréfót strax, svo ég geti komist á lappir hérna hér, því hann ætti nú að geta skilið, sagði ég við hann, að ekki gæti ég legið hér til eilífðamóns án þess að gera neitt til gagns, það skildi hann. Ég er sjötíu og níu, sagði ég við hann, og hingað til hefur mér ekki fallið verk úr hendi, svo hann yrði að skilja að ekki gæti ég haldið áfram að flatmaga svona. Og svo hef ég séð svo marga deyja. Jafn- vel í stofunni hérna hafa þær dáið, þær hafa dáið hérna fimm síðan ég kom hingað. Hérna ligg ég og þær deyja hver af annarri, og þeg- ar ég sé þá trilla þeim út í líkhúsið, þá fer ég að hugsa um að Hjálpimér, nú liggurðu hérna sjálf eins og dauðyfli, og nú koma þeir auðvitað og trilla þér líka út til hinna. En þá flýti ég mér að hugsa, að það sé nú varla hætta á því, því hjá mér er það bara fóturinn. Aldrei hef ég vitað að fólk hafi dá- ið af beinátu. Hérna er það hara fóturinn sem þeir hafa tekið. Annað er ekki að mér. Lapparlaus getur maður lifað. Ég vissi ekki fyrr til en þeir höfðu tekið hann af mér. Hann Thodfcten Jonsson var talinn einn efnilegasti rithöfundur Svía laust eftir heimsstyrjöldina síðari. Hann var hámenntaður höfundur, víðlesinn í heimsbókmenntunum og naut mikillar virðingar í heimalandi sínu sem skarpur gagnrýnandi og ó- venjulega vandvirkur og listrænn höfundur. Fyrsta bók hans kom út 1933, ljóðabókin Utflykt. 1938 gaf hann út nýja ljóða- bók, Som ett trad. Sú bók mun hafa haft töluverð áhrif á síðari ljóðagerð Svía. 1939 kom smásagnasafnið Som det brukar vara (sem meðfylgjandi skissa er þýdd úr). 1941 nýtt smásagnasafn: Fly till vatten och morgon. Og loks gaf hann út skáldsöguna Konvoj 1947. Sú bók var almennt talin bezta bók ársins í Sviþjóð. Thorsten Jonsson lézt fyrir fáum árum, aðeins um fertugur að aldri. Og fyrir tveim árum lézt Stig Dagermann, annar höfundur, sem Svíar höfðu bundið miklar vonir við. Fáa höf- unda hafa Svíar harmað meir en þá tvo. Síðar mun birtast þýðing á sögu eftir Dagermann í Birtingi. pabbi þinn, hann Georg, hann heimsótti mig daginn áður, og þá sagði hann við mig, á morgun áttu að f ara á skurðarborðið, mamma, en þeir ætla bara að skrapa beinið, og þegar ég vaknaði aftur eftir að ég kom af skurð- arborðinu, þá hafði ég svo skrítna tilfinn- ingu í löppinni, og ég var eitthvað svo mátt- farin, en hafði þó rænu á að athuga fótinn, og þegar ég gáði undir teppið sá ég að þeir höfðu tekið af mér löppina. Mér varð eitt- hvað svo illt, og ef einhverntíma hefði liðið yfir mig, þá hefði liðið yfir mig þá, en það hefur aldrei liðið yfir mig. Þarna geturðu séð að það líður ekki yfir fólk þótt það missi eina löpp. Maður deyr ekki af bakverk og beinátu. Hérna deyja flestir úr tæringu. Mér verður bara hugsað til krakkanna minna: fimm þeirra dóu úr tæringu. Fyrst var það hann Mylkir, og hann dó þegar hann var lítill. Og svo var það hann Ágúst, og hann var seytj- án, og svo var það hún Soffía, og hún var tuttugu og níu, og hún var vinnukona 1 Upp- sölum, og svo var það hún Ragna og hún var tuttugu og þriggja, og hún var heima. Og 34

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.